blaðið - 14.02.2006, Side 2
14 I BÖRW OG UPPELDI
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Börn segja rangt írá séu þau
spurð leiðandi spurninga
Samkvœmt bandarískum sálfrœðingi sýna rannsóknir að með leiðandi spurningum muni
barn segjast hafa verið misnotað kynferðislega þó sú sé ekki raunin
BlaOií/Frlkki
Monica McCoy:„Ef við förum mjög varlega í að yfirheyra börnin og gerum allt rétt þá
munum við missa af einhverjum málum svo það munu sekir menn ganga lausir."
Gullmolar
„Viktoría þú verður að geyma
alla peningana þína i bauknum,
ekki vera með þá út um allt.
Þú veist ekki einu sinni hvar
þeir eru allir. Uhmm, ég veit
nú alveg um þá. En ég held að
ég verði bara að fá mér svona
kort, þá eru þeir bara þar inni
og þá eru þeir ekki út um allt.“
Ég var að klæða mig í buxurnar
í morgun, þær sneru vitlaust
og Baddi afi sagði mér að þær
sneru öfugt, ég hélt bara áfram
að klæða mig og svaraði: „Það
er allt í lagi, ég er í sumarfríi“
Aron
Kristín: „Mamma, af hverju
er fíllinn svona stór?“
Mamma:„Guð skapaði
hann svona stóran.“
Kristín: „Af hverju eru þá
hin dýrin svona smá?“
Mamma: „Þetta er
sköpunarverks Guðs elskan.“
Kristin: „En fíllinn er svo stór
að hann gæti ekki verið inni
í þvottahúsinu hjá okkur.“
Mamma: „Hv...hvað þá?“
Kristín: „Ég ætla þá bara að
fá mér eitthvað annað dýr.“
Daníel (með grástafinn í
kverkunum): „Mamma, við
verðum að flytja til Spánar.
Hvert einasta mannsbarn á
íslandi skuldar 3 milljónir,
ég sá það í fréttunum!"
Bandaríski sálfræðingurinn Mon-
ica McCoy hélt í gær fyrirlestur
við Háskóla íslands þar sem
meðal annars kom fram að séu
börn spurð leiðandi spurninga
muni þau segja að þau hafi verið
misnotuð kynferðislega, þótt slík
sé ekki raunin. Monica lagði því
mikla áherslu á að sérfræðingar
töluðu við börn ef grunur eru
uppi um kynferðislega misnotkun
og ætíð yrði að spyrja opinna
spurninga, jafnvel þó slíkt yrði til
þess að einhverjir gerendur gengu
lausir.
„Rannsóknir sýna að ef við spyrjum
börn sem ekki hafa verið kynferðis-
lega misnotuð rangra spurninga þá
munu þau segja að þau voru mis-
notuð. Það er því mögulegt að fá
börn til að segja ranga hluti, með
því einu hvernig þau eru spurð. Það
eru þó ekki öll börn sem myndu
segja rangt til en töluverður fjöldi.
Þetta er erfitt því það þarf að spyrja
ungt barn opinnar spurningar, sem
sagt spurningar þar sem svarið er
ekki já, nei, rangt eða rétt. Auk þess
þarf spyrillinn að vera viss um að
það sé ekkert í spurningunni sem
er leiðandi eða hlutdrægt. Ef þú ert
með barn sem talar lítið þá getur
verið mjög erfitt að spyrja opinna
spurninga og það getur verið að þú
fáir ekki þær upplýsingar sem þú
þarft á að halda. Það gæti merkt að
barnið hafi ekki verið kynferðislega
misnotað eða að það viíji hreinlega
ekki tala um það, vegna hræðslu eða
vegna þess að þau hreinlega vita ekki
að misnotkunin sé þeim hættuleg.“
Það er í lagi að segja fullorðnum
að þau hafi rangt fyrir sér
Monica segir að flestir álíti að börn
sem hafa ekki verið beitt kynferðis-
legu ofbeldi hafi ekki ímyndunarafl
til að lýsa slíku ofbeldi. Það sé þó
börn sem grunur er uppi um að hafi
verið beitt kynferðislegu ofbeldi þá
má sjá að fólkið sem spyr börnin
býður í raun fram þessar upplýs-
ingar, með leiðandi spurningum. Til
að mynda gæti spyrill spurt hvort
barnið hafi verið snert á óviðkvæmi-
legan hátt og barnið segir nei. Spyrj-
andi myndi þá spyrja barnið aftur
hvort það hefði verið snert og barnið
hugsar með sér að það hafi nú þegar
svarað neitandi sem var rangt
svar þannig að nú sé best að svara
játandi. Barn getur í raun dregið
mjög grafískar lýsingar úr spurn-
ingunum og því verður spyrill að
vita betur heldur en að spyrja svona
spurninga," segir Monica og bætir
við að börn geri ráð fyrir því að
fullorðnir viti allt. „Enda erum við
alltaf að spyrja þau spurninga sem
við vitum svarið við; Hvaða litur er
þetta? Hvernig telur maður upp á
tíu og svo framvegis. Þau telja því að
fullorðnir viti svörin og horfa í and-
lit þeirra og giska á rétta svarið. Það
þarf því að kenna börnunum nýjar
samtalsreglur, að það megi segja
að þau viti ekki svarið og að það sé
í lagi að segja spyrlinum, mömmu
eða pabba að þau hafi rangt fyrir
sér.“
Sekir menn munu ganga lausir
Gallann segir Monica þann að slíkar
opnar spurningar verði alltaf til þess
að einhver kynferðisbrotamál muni
ekki upplýsast. „Ef við förum mjög
varlega í að yfirheyra börnin og
gerum allt rétt þá munum við missa
af einhverjum málum svo það munu
sekir menn ganga lausir. Núna eru
sálfræðingar að reyna að finna
betri samtalsaðferðir án þess að
skapa falskar upplýsingar. Það hefur
gengið mjög vel að finna aðferðir
fyrir börn eldri en sjö ára en það er
ennþá vandamál hvernig sé best að
tala við börn undir þeim aldri. Þar
sem það er bara orð barnsins gegn
orði gerandans í kynferðislegum
brotamálum þá verðum við að gera
allt sem við getum til að vera viss
um að barnið segi satt og rétt frá.“
Einungis sérfræðingar
eiga að spyrja börnin
Vigdís Erlendsdóttir, sálfræðingur
og forstöðumaður Barnahúss, tekur
undir að það sé vel hægt að skapa
ranga frásögn með því að leiða
barnið um of, spyrja það ítrekað og
á rangan hátt. „Börn eiga það til að
reyna að þekkjast viðmælanda sinn.
Ég tek því undir að sú hætta sé svo
sannarlega fyrir hendi og það er mik-
ilvægt að þeir sem taki þessi viðtöl
hafi til þess þekkingu og reynslu. 1
Barnahúsi notum við aðferð við að
spyrja börnin sem er alþjóðlega við-
urkennd, hefur verið rannsökuð um
árabil og gefist vel.“ Monica segir
einnig að það sé æskilegt að þeir sem
spyrja börn hafi réttu þjálfunina.
„En jafnvel þó spyrillinn sinni sínu
verkefni fullkomlega þá gerirðu ráð
fyrir að mamma og pabbi hafi verið
búin að spyrja barnið í margar vikur
áður. Það fyrsta sem við getum gert
er að sérfræðingarnir sinni sínu
hlutverki rétt og það hefur verið
erfitt. Þegar einhver er handtekinn
þá telur lögreglan að hann sé sekur,
þess vegna var hann handtekinn. Ef
ég er að fara að yfirheyra barn og
tel að eitthvað ákveðið hafi gerst,
þá þarf ég bara að láta barnið segja
það. Spyrlarnir eru ekki að reyna að
skapa falskar minningar, en vilja
bara virkilega að þetta gangi upp.“
Kynferðislega misnotuð
börn spjara sig best
„Það er önnur umdeild skoðun sem
vekja má athygli á,“ segir Monica.
„Það finnst öllum kynferðislegt
ofbeldi hræðilegur glæpur og við
viljum vernda börnin okkar. En
ef litið er á hvernig börn sem hafa
verið beitt andlegu ofbeldi, líkam-
legu ofbeldi, vanrækt eða beitt kyn-
ferðislegu ofbeldi þá eru það börnin
sem voru beitt kynferðislegu ofbeldi
sem spjara sig best sem hópur. Þau
virðast því ekki verða fyrir eins
miklu tjóni og börn sem eru beitt
líkamlegu ofbeldi eða börn sem eru
vanrækt. Það er vitanlega möguleiki
að þau verði fyrir einhvers konar
tjóni sem við getum ekki skilgreint.
Lögin virðast álíta að kynferðislegt
ofbeldi sé það versta sem getur hent
barn en í raun og veru virðist það
skaða barn meira að segja því að það
sé einskis nýtt, heimskt og það hefði
aldrei átt að fæðast.“
Vigdís vill þó ekki alveg taka undir
þetta og segir að það sé hægara sagt
en gera að gera slikan samanburð.
„Vitanlega fer þetta eftir því hvernig
hóparnir eru bornir saman. Ef
kynferðislegt ofbeldi stendur yfir í
langan tímaþáerþað mjög eyðileggj-
andi fyrir þann sem fyrir því verður
en viðbrögð við hvers konar ofbeldi
er einstaklingsbundið. Mér finnst
þetta gáleysislegur samanburður,
líkt og verið sé að bera saman epli
og appelsínur vegna þess að afleið-
ingar fyrir þolendur kynferðisbrota
eru öðruvísi en fyrir þolendur öðru-
vísi brota. Það var til dæmis staðfest
að 80% þeirra stúlkna sem voru
innlagðar á barnageðdeild í Noregi
á ákveðnum tímapunkti voru þol-
endur kynferðisofbeldis og talið að
fleiri væru það. Ég verð því að segja
að þetta kemur mér dálítið spánskt
fyrir sjónir.“
svanhvit@bladid.net
rangt. „Þegar horft er á viðtöl við
m 0
SPORTPRENNA
er góð leið fyrir þá sem viljð styrkja sig til árangurs og auka
getu (Iþróttum og Mcamsrækt. iafnframt fyrir þá sem viljá
aukafitubrennslu eiginletka Ukamans. Hver dagskammtur
ef 53 Sportþrennu mmheldur 1 fiðMtamlntoflu, 2 L-
Karnitlntóflur og eitt hytki af omega-3 frtusýrum