blaðið - 14.02.2006, Qupperneq 4
16 I BÖRN OG UPPELDI
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 blaAÍÖ
Vöggusett - barnasett
Margar gerðir
Glæsibæ, S?5S2 0978
www.damask.is
Skeifan opið laugardag 10-16
Smáralind opið laugardag 11-18
Smáralind opið sunnudag 13-18
Umhverfið stuðlar að offitu
íslensk börn hafa þyngst umfimm kíló á síðustu sextíu árum
Aukin hreyfing og hollt matarræði nauðsynlegt til að sporna við offitu.
tíðkast á íþróttamótum. Við eigum
að innræta börnum að borða holla
fæðu og forðast skyndibita." Er-
lingur gefur ekki mikið fyrir það að
tímaskortur fólks komi í veg fyrir
reglulegar máltíðir og hollustu. „Ég
á sjálfur þrjú börn og þau fá hollan
mat þegar þau koma heim úr skól-
anum“, segir Erlingur og bætir við
að þetta sé spurning forgangsröðun
á heimilinu.
í Bandaríkjunum læra börn að
lesa á matvæli og telja kaloríur og
er þessi fræðsla kominn inn i skóla-
kerfið hjá þeim. Hér þarf að búa til
fleiri langtíma átaksverkefni sem
tengjast matarvenjum og hreyfingu
barna.“
Þegar talið berst að skólamál-
tíðum segir Erlingur að fræðslu
skorti til þeirra sem sjái um skólamál-
tíðir í skólunum. „Það er mikilvægt
að skólayfirvöld og kennarar setji
sér sameiginlega stefnu í þessum
málum. Átakið verður að vera til
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
lengri tíma og höfða til krakkanna
þ.a. þau vilji taka þátt í því. Erlingur
tekur Latabæjarátakið sem dæmi
um vel heppnað átak sem höfðar vel
til ungu kynslóðarinnar.
hugrun@bladid.net
Árið 2003 reyndust 20% barna á
íslandi of þung miðað við alþjóð-
lega stuðla. í Bandaríkjunum
er hlutfallið fjórða hvert barn. í
kvöld verður málþing á Hótel Loft-
leiðum sem Náttúrulækningafé-
lagið stendur fyrir en þar verður
fjallað um neysluvenjur barna,
hreyfingu og annað tengt efni.
„I rannsóknum þar sem árgangar
níu ára barna eru bornir saman
kemur í ljós að þessi aldurshópur
hefur þyngst um hálft kíló á sex ára
tímabili", segir Erlingur Jóhannsson
dósent við íþróttafræðasetur Kenn-
araháskóla Islands. Erlingur segir
þyngdartölur til yfir þennan ald-
urshóp frá árinu 1968 en börn hafa
þyngst um þrjú kíló síðastliðin 30 ár
og fimm kíló síðustu sextíu árin.
Þyngdaraukningu barna tengir
Erlingur breyttum lífsháttum og
breytingu á neysluvenjum og telur
skyndibitamenningu eiga nokkra
sök á.
„Lífstíll fólk hefur breyst á nei-
kvæðan hátt og með aukinni
kyrrsetu og breyttum matarvenjum
hefur hætta á offitu aukist. Fram-
boð á mat er orðið griðarlegt og
ákveðið hlutfall sjónvarpsdagskrár
snýst um mat og matargerð. Út frá
þessu má því segja að umhverfi
okkar sé orðið offituvænt. Foreldrar
gegna lykilhlutverki í neysluvenjum
barna sinna og oft taka börn upp
lífstíl foreldra sinna. Þá hefur komið
í ljós samræmi á líkamlegu ástandi
foreldra og barna. Það er á ábyrgð
foreldra að ræða við börn sín um
hollustu, koma á reglulegum mat-
málstímum og stöðva snakk á milli
mála.“
Ekki veita matarverðlaun
„Ég er alveg á móti því að börn séu
verðlaunuð með mat eins og hefur
Verið velkomin
austu
1. Búðu til áætlun með barninu
sem segir til um hvenær lær-
dómur hefst og hvenær ráðgert er
að hann klárist. Best er að vinna
heimanámið snemma á daginn
en þó þarf að gera ráð fyrir því
að barnið vilji slaka aðeins á srax
eftir að skóla lýkur. Föstudagar
henta best fyrir námsefni sem
þarf að vinna um helgar.
2. Hvettu barnið til að skipta heima-
náminu í tvo hluta, annars vegar
efni sem það getur unnið sjálft
og hins vegar efni sem það þarf
hjálp með. Þú skalt aðeins hjálpa
barninu með heimalærdóm sem
það getur ekki unnið upp á eigin
spýtur. Þannig verður það sjálf-
stæðara og lærir að taka ábyrgð.
3. Sjáðu til þess að barnið hafi
viðunanadi lærdómsaðstöðu
heima, með nægri lýsingu og
fáum truflunum. Orðabók, skrif-
föng, blöð o.þ.h. ættu að vera til
staðar. Ef barninu gengur betur
að læra með tónlist ættirðu að sjá
til þess að það sé mögulegt.
4. Vertu til staðar þegar barnið er
að læra svo það geti leitað til þín
ef það lendir í vandræðum. Best
er að þú sért í öðru herbergi þar
sem auðvelt er að ná í þig en þú
veldur samt ekki truflun.
5. Lærdómshópar geta verið góð
leið og mögulega gengur barninu
þínu betur að læra með einum
eða tveimur skólafélögum. Vertu
þó viss um að þau séu að nota
tímann til að læra.
6. Vertu dugleg/ur að hrósa barn-
inu þínu og vertu uppbyggjandi.
Segðu barninu hvað það muni
standa sig vel í prófinu ef það
læri, en ekki hvað það muni
standa sig illa ef það læri ekki.
7. Ekki leyfa sjónvarp eða annað
fyrr en barnið hefur lokið heima-
lærdómnum. Gera þarf þó ráð
fyrir að barnið vilji fá sér að
borða eða drekka og teygja úr sér
inn á milli.
Sjö ráð til að hafa i huga
fyrir heimanám barnsins