blaðið - 06.02.2006, Side 10
24 I BfLJIH
MÁNUDAGUR 6. FEBRÖAR 2006 Maöi6
Volvo S80 er hátœknibíll
Nýr Volvo hefur að geyma árekstrarvara, nýjar vélar og hjartsláttarskynjara.
Næsta alþjóðlega bílasýning verður
haldin í Sviss í mars og þá verður
Volvo S8o kynntur i nýrri útgáfu.
Eins og sjá má að ofan er bíllinn sér-
staklega glæsilegur og mun því án
efa marka sér sérstöðu í harðri sam-
keppni við vönduðustu lúxusbílana.
I bílnum eru eftirtektarverðar nýj-
ungar og ber þar hæst árekstrarvari.
Varinn lætur ökumann vita með að-
vörunarhljóði og upplýstri aðvörun
á framrúðu nálgist bíll það hratt
að hætta skapast á aftanákeyrslu.
Volvo S8o bregst við með því að
setja sjálfvirkt aukinn þrýsting á
hjálparhemlunarkerfi bilsins til að
draga úr hraða á eins öruggan hátt
og kostur er. Auk þess er gagnvirkt
öryggiskerfi (PCC) í Volvo S8o sem
vaktar læsingar bílsins og lætur vita
sé farið inn í bílinn. Ekki nóg með
það heldur er Volvo S8o búinn hjart-
sláttarskynjara sem nemur hvort
einhver sé inni í bílnum.
Mengar minnst
Það er margt fleira nýtt í Volvo S8o,
svo sem fullkomin hljómflutnings-
tæki af bestu gerð, háþróað, tölvu-
stýrt fjöðrunarkerfi sem hefur þrjá
stillimöguleika til að mæta mismun-
andi yfirborði vegar eða mismun-
andi akstursstíl auk nýrra véla. í
nýjum Volvo S8o verða tvær nýjar
vélar kynntar. önnur er 315 hestafla
V8 vél með 440 Nm togi og með
þeirri vél verður bíllinn einnig fjór-
hjóladrifinn (AWD) með átaksdeili
(Instant Traction) fýrir hámarksdrif-
getu og akstursánægju. Fjórir meng-
unarkútar og þróuð rafeindastýring
gera V8 vélina að einni háþróuðustu
vél sinnar tegundar í heiminum
og þá sem mengar minnst á mark-
aðnum. Hin vélin er algjörlega ný
235 hestafla 3,2 lítra sex strokka vél
sem gefur 30oNm tog. Líkt og aðrar
vélar frá Volvo liggur hún þverstætt
til að hámarka plássið í bílnum og
auka árekstravörnina að framan
með meira loftrými.
svanhvit@bladid. net
Aðal þjónustuaðili Bernhards og Ingvars Helgasonar.
Dalvegi 16b • Sími 517 1800
icefilmur@icefilmur.is • www.icefilmur.is
MEIRAPRÓF - Nýir tímar
NÆ5TA NÁMSKEIÐ BYRJAR 15. FEBRÚAR
NÝLEGIR KENNSLUBÍLAR SEM UPPFYLLA
Euró 2 mengunarstaðal, lærðu í nútímanum
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 567 0300
Volvo S80 er sérstaklega glæsilegur bíll og verður til sölu á fslandi (vor.
Fallegur bíll að innan sem utan.
Opið til kl. 23 og 9-12 aðfangadag
Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
.4
FDRJVERK
Formverk ohf.
OtBtarflote 112 Reytgavðt
Swrtt 567-7660 / 691 -6050
ftu 567-7666
Nottang lormorm v»rk »
ómsTumúsio
RHMMB
J
Torfærutrukkur sem sameinar styrk og kraft.
HPI Savage 25 Limited Edition, sér-útgáfa hlaðinn
aukahlutum, takmarkað upplag.
f Golf GT er TSI vél sem hlaut hin virtu
Paul Pietsch verðlaun fyrir árið 2006.
Afburðar þróunar-
vinna innan
bílaiðnaðarins
TSI-vélin sem er í Golf GT
bílunum hlaut hin virtu Paul
Pietsch verðlaun fyrir árið 2006
frá sérfræðitímaritinu Auto
Motor und Sport. Dómnefndin
sagði að hin nýja, hagkvæma og
skilvirka Golf GT vél með miklu
kraftvægi væri afburðadæmi um
framsækna þróunarvinnu innan
bílaiðnaðarins.
Við hönnun nýju vélarinnar settu
hönnuðir Volkswagen sér það mark-
mið að draga úr heildareldsneytis-
neyslu en jafnffamt að auka vélaraf-
köstin. Áhrifaríkasta leiðin til þess
að draga úr eyðslunni er að beita
því sem kallað er „smættun" (downs-
izing). í því felst að annars vegar er
dregið úr strokkstærð sem dregur
úr orkutapi vegna núningsmótstöðu
og hins vegar úr vélarþyngd sem
leiðir til minni eyðslu en það eykur
afköst vélarinnar. „Hámarks orka
og lágmarks eldsneytiseyðsla. Þessi
stutta lýsing er í raun samantekt
á kostum TSI-vélarinnar,“ segir
Rudolf Krebs, yfirmaður vélaþró-
unardeild Volkswagen. „Sé miðað
við venjulegar vélar án forþjöppu
en svipuð afköst hefur verið dregið
úr eldsneytiseyðslunni um tíu af
hundraði þótt snerpa og kraftur
hafi ótvírætt aukist. Við setjum
viðmiðin í þessum flokki og ég er
mjög ánægður með verðlaunin!"
Porsche smíðar bila til almenns aksturs
en um leið leiktæki sem fá standast
snúning
Leiktæki sem
fá standast
snúning
Cayman S, nýjasta afkvæmið frá Por-
sche, var frumsýndur nýlega í Bíla-
búð Benna. Cayman S er staðsettur
á milli Boxster og 911 Carrera. Cay-
man S er byggður á sömu hugsun
og Boxster þar sem vélin liggur í
miðjum bílnum sem tryggir honum
fullkomna þyngdardreifingu. Ný og
öflugri vél gerir bílinn að skemmti-
legri viðbót í Porsche fjölskylduna.
Cayman er smíðaður eftir sömu
forskrift og allir aðrir Porsche bílar
en það hefur verið ófrjávíkjanlega
regla síðustu 20 árin hjá Porsche
að smíða bíla til almenns aksturs
en um leið leiktæki sem fá standast
snúning.
Nurburg hringurinn á 8 mínútum
Vélin í Cayman S er 6 strokka, 3,4
lítrar sem skilar 295 hestöflum við
6250 snúninga. Cayman S er 1340 kg
og hröðun frá 0-100 km/klst er 5,4
sekúndur, hámarkshraði er 275 km/
klst. Jöfn þyngdardreifing ásamt
framúrskarandi stífleika í yfirbygg-
ingu gerir Cayman S að einstöku
aksturstæki sem fer Nurburg hring-
inn á aðeins 8,11 mínútum. Caman
S er til sýnis i sýningarsal Bílabúðar
Benna.
svanhvit@bladid.net