blaðið - 18.10.2005, Page 4
20 I HÚSBYGGINGAR
4
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 biaðió
Nýjungar
fyrir helmlUð
Pret-A-Porter frá Whirlpool er
nýjung í meðhöndlun á fatnaði
þannig að krumpuð og rök föt
heyra sögunni til. Með tækinu
má á stuttum tíma þurrka fatnað,
viðra flíkur og losna við krumpur
úr fatnaði. Ferlið tekur aðeins um
hálftíma. Leggja má tækið saman
og geyma til dæmis undir rúmi.
Tækið er væntanlegt á markað
á íslandi snemma á næsta ári.
Frá Philips er komin nýjung
sem allir, sem hafa gaman af því
að prýða heimilið með myndum,
ættu að skella sér á - byltinga-
kenndur myndarammi. Ramm-
ann má tengja við myndavél eða
tölvu og hægt er að láta margar
myndir rúlla á skjánum þannig
að aldrei er sama myndin í ramm-
anum lengur en fólk kærir sig um.
Tilvalin uppfinning fyrir alla sem
hafa gaman af því að taka myndir
og vilja leyfa gestum og gang-
andi að njóta - án fyrirhafnar. ■
0IM Gluggar • Sólhýsi
m VHuröir • Svalalokanir
Frábær lausn í bæói
gamalt og nýtt:
Einbýlið, fjölbýlið,
sumarhúsið eða
hvar þar sem fegurð
og gæði njóta sín.
Hvítt
Gulleik
Maghagony
Emang/unnrglcr - Oryggisglcr - Spcglar
Hnfðu samband og vlð ráðleggfum þér
GLUGGA- OG
GLERHÖLLIN
Æ0«stxaul 30 • 300 Akranes • S«ru <31 2028 • fw: 4313828
Neflang: giertiotltnOaknetis • Hetmasiða www.gicrhoiun is
ALLT í VASKINN!
SORPKVARNIR FYRIR HEIMIUSVASKA
Minna heimilissorp, minni lykt úr ruslafötunni,
meiri þægindi! Ávefsíðu okkar, www.kvarnir.is
finnur þú bækling um sorpkvarnir fyrir heimili.
IKVNRNIR
' Tunguháls 15 •
Sími: 564 6070
Svart háglans eða rómantík
„Það má segja að í dag eru óskap-
lega margir að fara út í miklar
andstæður, mjög dökkan við eins
og til dæmis dökka eik og svo
hvítt háglans með eða svart há-
glans sem hefur einnig verið mjög
vinsælt. Síðan hefur verið mjög
sterkt að hafa hvassar ákveðnar
línur. Sem betur fer er engin ein
sál í þessu þannig að þetta er
mjög fjölbreytt,“ segir Egill Svein-
björnsson, sölustjóri hjá
Eldaskálanum.
Egill segir líka marga vilja hefð-
bundnari innréttingar.
„Það eru þessar sem kalla má
notalegar rómantískar innrétting-
ar. Hurðir með frönskum gluggum
og heilmiklum útskurði. Þetta er
í herragarðsstíl og fer einkar vel í
gömlum húsum,“ segir Egill.
Hvað áherslubreytingar síðustu
ára varðar segir Egill fólk mikið
vera að opna eldhúsið til að skapa
meira rými.
„Það er áberandi breyting að fólk
er að opna mikið í eldri húsum sem
er verið að breyta, þá er verið að
sameina borðstofu og eldhús. Þá er
kannski komið 10-12 manna borð
sem er alltaf notað í stað þess að
hafa lítinn eldhúskrók. Þetta hefur
verið kallað alrými," segir Egill.
Mikil breyting hefur orðið á gólf-
efnum að sögn Egils.
„Hiti í gólfum er orðin algeng sjón
og gólfflísar, náttúrusteinn og þess
háttar. Miklar framfarir hafa líka
orðið í korki. Það er verið að nota
hann allt að 8 mm þykkan og hann
lítur jafnvel út eins og marmari.
Þetta er gott efni að standa á, fer bet-
ur með fæturna en steinn. Ef maður
missir glas eða disk er minni hætta
á að það brotni. Eins með lítil börn,
þau meiða sig ekki á korkinum ef
þau detta. En þegar öllu er á botn-
inn hvolft er þetta allt saman bara
smekkur hvers og eins, einkunnar-
orðin hjá okkur er persónulega eld-
húsið,“ segir Egill. ■
Hringrás i tískunni
„Eikin er vinsælasta viðartegund-
in nú í dag. Þetta er allt frá því
sem fólk kallar shakerstíl, sem
eru svokallaðar rammahurðir,
eða þá að fólk kjósi einfaldleik-
ann, slétta eik,“ segir Páll Þór
Pálsson hjá Birninum í Ármúla
20.
„Hvítsprautaðar höldulausar inn-
réttingar eru líka mjög vinsælar,
hálfglans eða hálfmatt. Það er líka
alltaf mikið um glerskápa, vinrekka
og punthillur,“ segir hann.
Páll segir helstu brey tinguna vera
mikla sveiflu milli viðartegunda.
„Það eru tískusveiflur í þessu, allt
sem var kemur aftur. Það er hring-
rás í þessu eins og útvíðum gallabux-
um, þetta kemur allt aftur. Núna er
mikið um það, sérstaklega hjá unga
fólkinu, að það vill hafa mikið opið
rými.“ Athyglisverðustu breyting-
una segir Páll vera þá að fólk er farið
að hafa leirtauið í skúffum í innrétt-
ingum. „Fólk er ekki jafn fast á því
Blaölö/FMi
að leirtauið fari í efri skápa. Við er- neðri skúffum og við erum farin að
um öll alin upp við það að það eigi læra það. Þetta er gjörbreyting mið-
alltaf að setja leirtau í efri skápa. Það að við það sem var,“ segir Páll. ■
er siður úti í löndum að hafa leirtau í