blaðið - 18.10.2005, Page 8
24 I HÚSBYGGINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaöiö
Stœlar og ör á mœnu borgarinnar
Flestir láta sig umhverfi sitt varða að einhverju marki og eru óhrœddir við að láta heyra í sér þegar þeimfinnst eitthvað illa gert á
þeim vettvangiy hvort heldur afskiptin felast í skrifum reiðilegra pistla í dagblöð eða á Netið, þá eða bara með reiðilegu muldri og
skáskotningu augna þegar gengið erframhjá skipulags- oghönnunarklúðrum. Blaðið hafði samband við nokkra arkitekta ogfékk
þá tilþess að nefna dœmi um það sem hefur verið vel og illa gert í hönnun ogskipulagi á höfuðborgarsvœðinu.
Blaðið/Steinar Hugi
Helgi Bollason Thoroddsen,
arkitekt hjá Kanon
Bílastæðahús austur af
Borgarleikhúsi: Gott!
,Af nógu er að taka enda margt vel
gert hér í borg. Ég ákvað að hafa
umferðarþema í svörum mínum
og vil því nefna bílastæðahúsið við
Kringluna, austur af Borgarleikhús-
inu. Það er gert af mikilli natni og er
mjög fínt, sérstaklega í samanburði
við önnur bílastæðahús í borginni."
Þess má geta að teiknistofan Gláma/
Kím var samstíga Helga í vali sínu
og kallaði húsið „einstakt mann-
virki, þar sem hönnuðir hafa náð
tökum á öllu sem máli skiptir."
Nýja Hringbrautin: Slæmt!
,Nýja Hringbrautin, án efa. Sá verkn-
aður að setja svona venjulega hring-
braut sem gæti verið hvar sem er á
hringvegi eitt í hjarta borgarinnar
eru hræðileg mistök. Hérna gæti
hæglega verið breiðstræti eða bara
eitthvað annað - flest væri skárra.
Það var kannski nauðsyn að leggja
þessa braut, en áður en ráðist var
í framkvæmdirnar hefði þurft að
skipuleggja meginlínur Vatnsmýr-
arinnar ítarlega.“ Hér sem fyrr er
Gláma/Kím samstiga Helga í vali
sínu á skipulagsslysum, þau kalla
nýju Hringbraut „ör á mænu borg-
arinnar“ og „óskiljanlega hálend-
ishraðbraut þar sem ætti að vera
„b orgarbúle varður“.“
Magnús Skúlason, arkitekt
ogforstöðumaður Húsafrið-
unarnefndar ríkisins
Viðbygging við Alþingishús: Gottl
„Við getum alveg tekið viðbygging-
una nýju við Alþingishúsið sem
dæmi um vel heppnað hús. Ég held
að þar hafi vel tekist til, bæði í mæli-
kvarða og efni. Húsið er og kurteist
gagnvart húsinu sem það tengist,
sem og sínu nánasta umhverfi og
götumynd. Það er inndregið og treð-
ur sér ekki inn í götumyndina við
Austurvöll. Svo má ekki gleyma að
það styður við starfsemi Alþingis,
sem gerir okkur enn frekar kleift að
nýta gamla Alþingishúsið áfram.“
Austurstræti 8-10: Slæmt!
„Austurstræti 8-io, þar sem nefnd-
arsvið Alþingis er til húsa. Gamla
Isafoldarhúsið stóð þarna en var illu
heilli flutt og þessari nýbyggingu
komið fyrir í staðinn. Illu heilli,
meðan Isafoldarhúsið var og hét
skein sól í Austurstrætið og tengdist
húsunum á bak við vel. Nýbygging-
in er sérstaklega vont dæmi um verk
arkitekta á seinni árum, hönnun
sem virðast ekki taka tillit til um-
hverfisins og er jafnvel með hreina
„arkitektóniska“ stæla, sem lýsa sér í
notkun alls kyns áberandi forma án
tilefnis. Það lætur bera á húsinu þar
sem ætti ekki að bera á því og eyk-
ur á ókurteisi þess. Svona lagað eru
bara stælar.“