blaðið - 03.04.2006, Page 2
18 I BÍLAR & FARARTÆKI
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 blaöiö
LrffiiiniriilB
Japan/U.S.A
VIÐGERÐIR FYRI
www.kistufell.com
Subaru Forester faer „hæstu einkunn" samkvæmt hinni virtu TUV AutoReport 2006, en þar kemur fram að einungis hafi fundist
bilanir í 3% bfla af þessari gerð, sem voru allt að þriggja ára gamlir. Forester er þriðja Subaru-gerðin sem fær hæstu einkunn fyrir
áreiðanleika en áður fékk framleiðandinn viðurkenningu fyrir Legacy árið 1999 og Justy 2001.
*WWWtfBVARAfíL*UTIRyS +
EIGUM ÁVALLT Á LAGER VARAHLUTI í FLESTAR GERÐIR BÍLA
VIÐ ERUM YKKAR BÓNUS! ^
5)
MB-VARÁHtUTm BODDÝHLUTIR - 6RINDUR - UOS - SPL6LAR - SLirHLUIIR - VATNSKASSA:- í !l:A
Bildshöföa 18 - Simi: 567 6020 - ab@abvarahlulir.is - www.abvarahlutir.is OPIÐ FRÁ: 8.00 - 18.00
Fyrirtækið Fjallasport hefur sérhæft
sig í hönnun og breytingum á 4x4
jeppum síðan starfsemin hófst árið
2001 og hefur nú sótt allverulega í
sig veðrið. Fjallasport var nýverið
stofnað í Noregi og að auki hefur fyr-
irtækið meðal annars hannað breyt-
ingar á jeppum fyrir Þýskaland, Am-
eríku og Luxemborg.
Að sögn Reynis Jónssonar, eig-
anda Fjallasports, eru íslendingar
vel með á nótunum og gera miklar
kröfur til þeirra bíla sem þeir keyra.
„Það er auðvitað frábært að fólk geri
Auðveldari ferðir um hálendið
Breyttir bílar og
færir í flestan snjó
Litil bilanatíðni Subaru Forester
Hér gefur að lita nokkra af þeim jeppum sem Fjallasport hefur hækkað
miklar kröfur til bílanna og það má
alveg taka fram að þetta eru ekki
bara einhverjir torfærufíklar sem
láta hækka bílana heldur einnig fólk
sem hefur áhuga á ferðamennsku
um hálendið og vill komast ferða
sinna áhyggjulaust," segir hann og
bætir við að oftast láti fólk breyta
bílunum til þess að ferðast um
landið. „Það er náttúrlega gott að
geta komist út um allt á hálendinu,
heimsækja fallega staði og gista næt-
urlangt í hinum ýmsu fjallakofum
sem fyrirfinnast þar.“
Reynir segir kosti breytinganna
mikla fyrir ferðafólk, bæði vegna
þæginda í bílnum og aukinnar færni
bílanna. „Flestir láta hækka bílana
til þess að komast á fjöllin, enda
komast jepparnir mun lengra á há-
lendinu og auk þess fer miklu betur
um fólk á slæmum vegum ef dekkin
eru stór. Stærri breytingarnar eru
sérstaklega gerðar fyrir þessar fjalla-
ferðir en svo eru margir sem láta
gera minni breytingar til þess eins
að komast auðveldar upp í bústað
eða annað slíkt. Svo finnst mörgum
bíllinn einfaldlega fallegri þegar
hann er kominn á stærri dekk.“
Stórog mikil endur-
hönnun á bílnum
Breytingar sem þessar krefjast mik-
illar hönnunar enda að mörgu að
huga og mikilvægt að vel takist svo
að bíllinn sé vel undirbúinn. Reynir
segir fólk þó almennt ekki gera sér
grein fyrir mikilvægi hönnunar-
innar og allra smáatriða þegar bíll
er hækkaður.
„Þegar það kemur nýr bíll til
okkar þurfum við að setjast niður
og fara gaumgæfilega yfir það sem
við ætlum að gera og hanna alla
breytinguna sem slíka. Það þarf
að ákveða hvernig á að hækka bíl-
inn upp, athuga hvort og þá hversu
mikið þarf að klippa úr, hanna nýja
brettakanta og útfæra í rauninni allt
sem að þessu kemur. Þetta eru fullt
af smáatriðum sem fólk gerir sér
ekki grein fyrir, enda er þetta í raun-
inni algjör endurhönnun á bílnum
og hann verður sem nýr. Þess vegna
er mikilvægt að vel takist til.“
Fjallasport tekur við bílum bæði
frá bílaumboðum sem og einstak-
lingum en mest breyta þeir Toyota
og Nissan jeppum, auk þeirra am-
erísku síðustu tvö árin. Aðspurður
segir Reynir starfsemi sem þessa
afar mikilvæga hér á landi, enda
greinilegt að æ fleiri vilji láta breyta
bílunum sínum. „Það er ekki nóg að
framleiða bara ál! Einhverjir verða
að sinna þessu, ekki spurning!“
halldora@bladid.net
vnnHLE
^Pakkningarsett
^Ventlar
t/Vatnsdælur
- i/Tímareimar
^Knastásar
✓ Legur
Ifl'Stimplar
Stál og stansar ehf.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
VARAHLUTAVERSLUN
Kistufell® kistufell.com
Tangarhöfða 13 Símí 5771313
Vélaviðgerðir, túrbínuviðgerðir
og spíssaviðgerðir.
Vélaverkstæðið Kistufell býð
upp á stimpla og slífar í flestar
gerðir véla frá hinum þekkta
framleiðanda Mahle.
Gámmívinnnstofan
SUMARDEKKIN KOMIN
GÆÐAVARA Á GÓÐU VERÐI
GÚMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35, 105 RVK
Sími: 553 1055