blaðið - 03.04.2006, Side 4
20 I BÍLAR & FARARTÆKI
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 blaðiö
Tuðad í umferðinni
Undanfarna daga hefur ríkt andrúms-
loft sem ég þekkti svo vel fyrir nokkrum
árum, þegar hárvöxtur var ekki vanda-
mál. Þetta andrúmsloft kristallast (því
að ég smelli mér á næstu bílasölu og
kaupi einhvern sportara fyrir sumarið.
Auðvitað er sumarið ekki komið en við
getum nú ekki látið smá hálkubletti
koma í veg fyrir að fjölskylda og vinir öf-
undi kallinn vegna flottasta bílsins f göt-
unni, gjörsamlega kominn með nóg af
Subarunum. Lánið er til svo langs tíma
að nýfædd börnin verða komin lang-
leiðina í háskólanám þegar því loksins
lýkur og bíllinn orðinn verðmæt antík.
En það skiptir engu máli, hagkvæmnin,
réttsýnin og skynsemin er kvödd með
vetrinum og að þessu sinni verður það
ekkert minna en Turbobíll, Porsche 911.
Konan
,Hvað er þetta kona, ég er að fá hann á
ótrúlegum kjörum, það bara var ekki
hægt að sleppa þessum „díl“, segi ég við
konuna og hún hendir frá sér uppþvotta-
burstanum. Uppþvottavélin er víst
búin að vera biluð síðan fyrir jól og hún
komin með leið á að vaska upp. Ég sé á
andliti hennar að restin af ástinni lekur
úr auganu með fyrsta tárinu. Herra úr-
ræðagóður vaknar og segir: „Hey og
veistu hvað? Heldurðu að gaurinn sem
á bílinn ætli ekki að láta mig hafa nýja
uppþvottavél í kaupbæti. Hann vinnur
nefnilega í Heimilistækjum," segi ég
og finn hvernig nefið lengist örlítið.
,Hvað er þetta elskan mín, við munum
stórgræða á þessum bíl í haust þegar ég
sel hann. Förum til útlanda fyrir gróð-
ann og kaupum svo nýjan Polo handa
þér fyrir afganginn.“ í fjórða skiptið á
síðustu 10 árum hótar hún svo að yfir-
gefa mig! EF ég kem heim á gullfallega
sifurlitaða Turbo Porsche-inum án þess
að nýja uppþvottavélin verði komin í
samband fýrst.
Þetta var frábær lausn og ekkert eftir
nema að redda þessari uppþvottavél.
Það er nefnilega þannig, allavega með
konuna mina, að best er að taka gott
,sjokk-treatment“ á hana, segja mikið
hærri upphæð en raunin er og lækka
hana svo í endann og sýna henni í leið-
inni hvað maður er ótrúlega lunkinn
samningamaður. Hún veit það auðvitað,
maður er ekki næst besti starfsmaður-
inn í sínu fyrirtæki án þess að eitthvað
sé í mann spunnið.
Reddingin
Visa reddar uppþvottavélinni og frúin
þóttist ekkert taka eftir því að hún heitir
Diskomat en ekki AEG. Nú ef hún tekur
eftir því segi ég henni bara að það séu
sömu aðilarnir sem framleiða allt þetta
drasl og engin ástæða til að borga meira
bara fyrir AEG logoið.
Ástin endurfædd
Eftir að hafa hringt heim og fengið
staðfest hjá elsta syninum að búið væri
að tengja vélina renni ég í hlaðið á stíf-
bónuðum bílnum. Konan kemur hlaup-
andi út og segir mér að hann sé ótrú-
lega fallegur, rétt eins og ég. Vellíðan
okkar beggja er 100%. Með vetrarhroll
á vanga snýr hún sér að mér og spyr
hvort ekki eigi að fara með hana í bíltúr.
Ég held nú það og opna fyrir hana hurð-
ina, loka á eftir henni vitandi að þessari
sælu muni ljúka þegar fyrsta lögfræði-
bréfið rennur ljúflega inn um bréfalúg-
una. En að sinni er ástin endurfædd og í
eitt augnablik höfum við gleymt því að
á morgun eigum við að mæta hjá sýslu-
manni út af ógreiddum reikningi frá
pirruðum parketsala.
V.H.
Tom Tychsen Sími 517 9350 I Gsm 821 9350
Skútahraun 2 Fax 517 9351
220 Hafnarfirði tom@husbilagalleri.is
Vilt þú
________endurnýja húsbílinn?
www.husbilagalleri.is
Gerir þú miklar kröfur?
Útvegum fyrsta flokks
húsbíla og hjólhýsi af öllum
stærðum og árgerðum
beint frá Þýskalandi.
Allt eftir þínum óskum.
Gott verð - pottþétt þjónusta
Böðvar er virkilega skotinn í Vol vo C70, ef marka má aðdáun hans, og mun eflaust fjár-
festa í einum slikum þegar fram í sækir.
Vill láta kalla
sig Volvo C70
- Böðvar Bergsson um draumabílinn
Aðspurður um draumabílinn segir
sjónvarps- og útvarpsmaðurinn
Böðvar Bergsson nokkra koma til
greina. Þó vill hann nefna Volvo
C70 sérstaklega, en sá bíll fangaði ný-
verið auga hans og hefur ekki horfið
úr minni hans síðan.
„Æ, það eru voðalega margir bílar
sem ég myndi vilja kalla draumabíl-
inn. Ég get þó nefnt þennan enda í
alla staði frábær bíll. Það er eitthvað
mjög „sexy“ við Volvo C70 og að
auki er Volvo bara alveg nauðsyn-
leg bílategund þegar maður er kom-
inn á þennan aldur, enda mjög gott
ökutæki og öruggur í alla staði. Það
sem er svo einna skemmtilegast við
þetta stykki er það að við fyrstu
sýn virkar hann voða settlegur og
látlaus en svo bara breytist hann í
þetta líka villidýr! - svona rétt eins
og ég. Að mínu mati er margt keim-
líkt með mér og þessum bíl og þess
vegna vil ég stundum láta kalla mig
Volvo C70.“
Böðvar segist þó ætla að bíða
með allar fjárfestingar í bili, enda
er hann sáttur við þann bíl sem
hann á í dag. „Ég vil nú síður fara
að lofa enn einum bílakaupunum.
Maður hefur ósjaldan skipt um bfl
og kannski kominn tími á að halda
einum í einhvern tíma. Hins vegar
er aldrei að vita nema maður skoði
Volvo-inn í framtíðinni og næli sér
í einn svona þrusukagga. Það væri
allavega ekki leiðinlegt að aka um
götur bæjarins á þessu tryllitæki og
þenja svo raddböndin samhliða tón-
listinni í græjunum."
halldora@bladid.net
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
Ritstjórn
510-3799
Skiptiborð
510-3700
dráttarbeisli
Ásetning á staðnum.
Tómstundahúsiö Nethyl 2 sími 5870600 www.tomstundahusid.is
Víkurvagnar ehf • Dvergshöfða 27
Sfmi 577 1090 • www.vikurvagnar.is