blaðið - 03.04.2006, Síða 6
22 I BÍLAR & FARARTÆKI
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 blaöiö
Gátlisti vegna bílakaupa
Kannaðu ástandið áður
en ákvörðun er tekin
Meta þarf ástand notaðra bíla vel
áður en tekin er ákvörðun um kaup
og mikilvægt er að gefa sér nægan
tíma í alla skoðun. Þeim sem þekkja
lítið til bifreiða er ráðlagt að fá að-
stoð frá vini eða ættingja sem er
betur að sér í bílamálum, en einnig
geta þeir sem minna kunna farið
eftir eftirfarandi gátlista.
Er lakk skemmt eða sést ryð?
Athugið með segli hvort gert hafi
verið við með plastfylliefnum. Se-
gullinn dregst aðeins að járni.
Bendir eitthvað til þess að bíllinn
hafi skemmst í árekstri?
Bankið í bretti þar sem þau eru
fest og í kringum luktir.
Athugið hugsanlega ryðmyndun
og frágang ryðvarnar í hjólbogum.
Móða innan á bílrúðum i þurrviðri
getur verið vísbending um ryð.
Athugið hvort yfirbygging hafi
skekkst.
Falla hurðir vel að?
Er framrúða rispuð eða skemmd
eftir steinkast?
Lyftið gólfmottum til að kanna
hugsanlega ryðmyndun. Athugið
einnig undir mottu í farangurs-
geymslu og undir varadekkið.
Þefið af teppum. Myglulykt getur
bent til leka.
Skrúfið rúðurnar upp og niður og
athugið slit í lömum með því að
lyfta undir hurðir.
Athugið kælivatn á vél - engin olía
má vera i vatninu. Olía i kælivatni
gæti bent til þess að „headpakkn-
ing“ sé léleg eða að blokkin sé
sprungin.
Eru óhreinindi eða olía utan á
vélinni?
Athugið hvort dropar séu undirbif-
reiðinni. Kanna þarf hvort um sé
að ræða vélarolíu, bensín, bremsu-
vökva, kælivatn eða annað. Sé leki
getur viðgerð verið kostnaðarsöm.
Lítur bifreiðin almennt út fyrir að
vera illa hirt?
Athugið rafgeymi - er útfelling við
pólana?
Mælið olíu á vélinni. Lítil eða óeðli-
lega þykk olía bendir til að vélin sé
mjög slitin.
Athugið smurþjónustubók.
Athugið hjólbarðana. Raufar í
mynstri skulu vera í það minnsta
16 mm á dýpt þar sem þeir eru
mest slitnir. Hjólbarðar eiga allir
að vera af sömu gerð. Einnig þarf
að skoða hvort þeir séu misslitnir
og þar að auki má ekki vera hlaup
í hjólunum.
Eru felgurnar dældaðar? Ef svo er
þá getur það verið vísbending um
að bílnum hafi verið ekið óvarlega.
Ræsið vélina og hlustið eftir óeðli-
legum hljóðum.
Athugið útblásturskerfið.
Er hlaup í stýrinu?
Stígið fast á hemlana. Fótstig á
ekki að fara alveg í botn heldur á
að vera gott bil niður að gólfi.
Athugið höggdeyfa með því að ýta
á aurbretti yfir hverju hjóli. Haldi
bíllinn áfram að fjaðra geta högg-
deyfar verið bilaðir eða ónýtir.
Athugið kílómetramælinn. Berið
álestur saman við almennt útlit og
aldur bifreiðarinnar. Reikna má
með að meðalakstur sé frá 15.000
- 18.000 km á ári.
Mikil sala á bílum um þessar mundir
Mikilvægt aö vanda vel
til verka viö kaupin
Bílar ganga kaupum og sölum sem
aldrei fyrr og framboð á bílum er
eftir því. Fólk virðist leggja mikið
upp úr rétta bílnum, enda eru bíla-
kaup yfirleitt stærstu viðskipti heim-
ilinna fyrir utan fasteignakaupin.
Að sögn Runólfs Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, er mikilvægt að
vanda vel til verka þegar farið er í
bílakaup og búa svo um hnútana
að allir verði sáttir þegar kaup eru
framkvæmd. „Það er gríðarlega
mikið framboð af bílum, sérstak-
lega notuðum, og hægt að gera mjög
góð kaup á stundum. Það er hins
vegar algjört grundvallaratriði að
fara á milli staða, kynna sér úrvalið
og kynna sér allt þetta mikla fram-
boð sem í boði er. Þá tel ég afar mik-
ilvægt að fólk setjist vel yfir málin
áður en farið er í bílaleit og skoði
hvað fjármunir leyfa, sem og hvers
er krafist. Það þýðir ekki að bíða
eftir einhverri hugljómun í öllum
þessum bílaflota sem í boði er - fólk
verður að hafa myndað sér skoðanir
varðandi stærð bíls, tegund, verð og
fleira. Svo má auðvitað ekki gleyma
því að kortleggja aðeins hvernig
greiðslum verður háttað enda má
ekki gleyma því að þetta snýst um
svo mikið meira en einungis verðið
á bílnum t.d. tryggingar, bensínverð
og fleira sem fylgir þessu,“ segir
Runólfur og bendir á að stundum
hafi borið við að ungt fólk, nýkomið
með bílpróf, helli sér út í bílakaup
án þess að gera sér grein fyrir þeim
mikla kostnaði sem þeim getur fylgt
þegar fram í sækir.
lager innfluttur í dag OKKAR VERÐ mismunur
C 200 KOMPR. 3 stk. 4.890.000 3.690.000 1.200.000
C 240 3 stk. 5.450.000 4.190.000 1.260.000
C 240 Wagon 1 stk. 5.190.000 4.190.000 1.000.000
C 320 1 stk. 6.150.000 4.490.000 1.660.000
ftl
MASTER
meta ástand ökutækisins, helst með
einhverjum sem vit hefur á. Svo er
náttúrlega mikið atriði að fara með
hann í ástandsskoðun, en þótt að
hún kosti pening margborgar hún
sig - hvort sem það verður til þess
að styrkja ákvörðunina um kaupin
eða til þess að sjá galla sem eru á
bílnum og hætta þá blessunarlega
við. Ástandsskoðun er í raun mjög
ódýr trygging fyrir því að losna við
leiðindi eftir á.“
Aðspurður um mestu mistök fólks
í bílakaupum segir Runólfur það
vera þegar fólk gefur sér ekki nægi-
legan tíma í skoðun. „í lögum um
viðskipti með notaða bíla er skýrt
kveðið á um upplýsingaskyldu sölu-
aðila og eiganda og hins vegar skoð-
unarskyldu kaupanda. Stundum
virðist fólk gefa sér of knappan tíma
til að ganga frá kaupunum og það
getur verið mjög erfitt að sækja rétt-
inn eftir á ef einhverjir gallar eru.
Maður heyrir sögur að viðkomandi
hafi skoðað ökutækið í myrkri og
ekki áttað sig á ástandi hjólbarða eða
annars. Það þýðir lítið að bera slíkt
fyrir sig í dómi þegar kaupin hafa
gengið vegna þessara ríku skoðunar-
skyldu sem lögð er á kaupandann.“
Runólfur Ólafsson
„Það hefur komið fyrir að við
fáum til okkar fólk sem ræður ekki
við að borga af bílnum sínum. Þess
vegna er mikilvægt að gefa sér tíma
í upphafi enda er bíllinn stór hluti
heimilisbókhaldsins og allir þurfa
að vera meðvitaðir um kostnaðinn
við reksturinn.“
Ástandsskoðun ódýrtrygg-
ing fyrir kaupandann
Runólfur segir miklu skipta að bíll-
inn sé vel skoðaður í upphafi af ein-
hverjum sem hefur vit á bílum.„Ef
þú finnur ökutæki þarftu að prófa og
VÍKURVAGNAKERRURNAR
þessar sterku
Allar gerðir af kerrum
Allir hlutir til kerrusmíða
VIKURVAQNJkR EHt.
Víkurvagnar ohf • Dvergshöfða 27
Sfmi 577 1090«www.vikutvagnar.is y
Umboðin fljót að hækka bíla-
verð við lækkun krónunnar
Runólfur segist ekki vilja meina
að fólk eyði almennt um efni fram
þegar kemur að bílakaupum þó svo
að alltaf sé eitthvað um að keyptir
séu bílar sem kaupandinn ræður
svo ekki við að greiða.
„Það er auðvitað allur gangur á
þessu en ég vil nú meina að flestir
séu innan skynsemisrammans. Þó
er töluvert um að fólk taki mikið lán
og afborgunargetan er svo ekki eins
og best verður á kosið. Þegar vel árar
spenna sumir bogann of mikið og
fara í fjárfestingar án þess að gera
sér grein fyrir að ekkert megi út af
bregða. Bílar falla ört í verði og al-
gjörlega liðin tíð að hægt sé að tala
um fjárfestingu. Flin fleygu orð sem
Volvo setti fram hér áður, að bíllinn
sé fasteign á hjólum, eiga alls ekki
við lengur og mikilvægt að fólk geri
sér grein fyrir því,“ segir hann og
bætir við að bílverð hafi hækkað þó
nokkuð síðustu misseri. „Eftir fall
krónunnar hefur bílverð hækkað og
það gerðist í raun mjög fljótlega. Að
okkar mati voru umboðin fullsein
að lækka verðið á sínum tíma þegar
krónan var að styrkjast en þeir
virðast vera mun fljótari að hækka
verðið þegar þessu er öfugt farið og
krónan veikist."
halldora@bladid.net
llhús
Nissan, Toyota, Isuzu, Mitsubishi, Ford
Eigum til á lager gæöa pallhús. Sprautuö,
vínilklædd og tilbúinn til ásetningar.
Glæsibæ / Álfheimum 74/ 104 Reykjavík / sími 540-2200 / www.masterbill.is