blaðið - 03.04.2006, Side 8
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 blaðiö
24 I BÍLAR & FARARTÆKI
Leiðbeiningar um bílaþrifin
Kanntu ekki að
þríía bilinn þinn?
Bíltúrinn verður mun skemmtilegri ef bíllinn er vel þrifinn og mönn
um bjóðandi.
Þó svo að mikillar einbeitingar sé
krafist við akstur eigum við það
flest til að gjóa augum í kringum
okkur og skoða bílana sem fram-
hjá þjóta. Fallegir bílar fanga alltaf
augun og við dáumst að þeim sem
bera af. Hins vegar er mun leiðin-
legra að sjá fallegan bíl og þurfa að
fussa yfir sorglegu ástandinu þegar
óhreinindin eru allsráðandi og varla
sést inn að lakki.
Það er nefnilega þannig að margir
eiga það til að leggja mikinn metnað
í flotta glæsikerru en umgangast
hana svo eins og úrhrak og snið-
ganga öll þrif. Þetta gengur auð-
vitað ekki og þeir sem tamið hafa
sér háttalag sem þetta ættu að gefa
hreinsunarleiðbeiningunum hér að
neðan gaum og læra grunnatriðin
þegar kemur að bílaþrifum. Eftir
þrifin er svo um að gera að skella sér
í ísbíltúr og njóta þess að vera á fal-
legum og hreinum bíl.
• Veður skiptir sköpum þegar
bíllinn er þrifinn og það stoðar
lítið að ganga til þrifa þegar
það er leiðindaveður ef enginn
er bílskúrinn. Notið tækifærið
þegar sól er á lofti og blíðskap-
arveður og dekrið við bílinn.
• Mikilvægt er að ganga úr
skugga um að allir gluggar og
hurðar séu vel lokaðar, auk þess
sem gott getur verið að taka loft-
net og annars konar aukahluti
af bílnum áður en byrjað er að
pússa.
Fyrst er bíllinn skolaður vel,
bæði þak og hliðar, auk þess
sem gott getur verið að sprauta
vel á dekkin og felgur ef ein-
hverjar eru. Þeir sem vilja al-
vöru þrif geta sett tjöruhreinsi
á allan bílinn áður en byrjað er
að þrífa.
Þá er komið að sápunni sjálfri
en best er að notast við sérstaka
bílasápu, þó svo að sumir láti
uppvöskunarsápuna duga. Sáp-
unni er blandað saman við vatn
og síðan er svampur notaður til
þess að dreifa vel úr sápuvatn-
inu á bílinn. Það er auðvelt að
missa úr blett svo að mikilvægt
er að nudda vel og vandlega.
Eftir sápuþvottinn er bíllinn
skolaður og að lokum er hann
þurrkaður með vaskaskinni
allan hringinn. Hægt er að
kaupa einnota klúta á næstu
bensínstöð sem eru sérstaklega
gerðir fyrir rúðurnar, ef sápu-
þvotturinn hefur ekki dugað.
Fyrir þá sem vilja góðan ilm í
þilinn eftir alla hreingerning-
una er um að gera að fjárfesta
í litlum ilmtám eða öðru sem
hengt er á bílstjóraspegilinn og
gefur góðan ilm.
Saab setur á markað nýjan, vandaðan jeppa
Skemmtileg viðbót
í flokk lúxusjeppa
Framleiðandinn Saab er í örum
vexti og nú hefur fjölgað þeim
gerðum sem standa til boða. Nýi 9-
7x smájeppinn býr yfir einstökum
eiginleikum Saab, þ.á.m. fáguðu
ytra byrði og innanrými, vandaðri
gæðahönnun, undirvagni sem gefur
bílnum sportlega og skemmtilega
aksturseiginleika og svoss í mið-
stokknum fyrir aftan gírstöngina.
Bíllinn er með 5,3 lítra V8-vél sem
skilar 300 hestöflum, auk þess sem
hann er búinn ríkulegum staðalbún-
aði eins og leðursætum, 18 tommu
álfelgum, drifi á öllum hjólum og
Bose hljómkerfi.
Hugmyndin að bílnum er sótt til
hinnar margverðlaunuðu hönnunar
General Motors, GMT360, sem hlotið
hefur miklar og góðar viðtökur. Ing-
var Helgason mun bjóða Saab 9-7X
til sölu á verðinu 6,3 milljónir, en
þessi verður án efa aðlaðandi kostur
í flokki lúxusjeppa.
Höfum flutt að Fiskislóð 14 og breytt nafni fyrirtækisins
STURLAUGUR & CO
REGAR ÞU ÞARFT AÐ VELJA NYJA VEl.
ÞÁ ER ÖRVALIÐ HJÁ NEW HOLLAND.
12 VÉLA LÍNUR - 71 VÉLA GERÐ.
Fiskislóð 14 • 101 Reykjavík • Sími: 551 4680 • sturlaugur@sturlaugur.is