blaðið - 19.04.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöiö
Umferðarlög gera ráð fyrir því að
vátryggingafélag sem greitt hefur
bætur vegna tjóns af völdum öku-
tækja eignist endurkröfurétt á
hendur þeim sem tjóninu olli ef
unnt er að rekja tjónið til ásetnings
eða stórkostlegs gáleysis. Það er
sérstök endurkröfunefnd á vegum
dómsmálaráðherra sem metur þessi
tilvik og í 72% þeirra mála sem
nefndinni bárust árið 2005 var um
að ræða ölvunarakstur. Nefndinni
bárust 70 ný mál á síðasta ári og sam-
þykkti hún endurkröfu í 66 þeirra.
Þetta er töluverð fækkun mála frá ár-
inu 2004 þegar nefndinni bárust 158
mál og úrskurðaði um endurkröfu í
140 þeirra. f tilkynningu frá nefnd-
inni segir þó að ekki sé unnt að
álíta sem svo að tjónum sem rekja
megi til stórkostlegs gáleysis eða
ásetnings hafi fækkað, heldur geti
fækkunin skýrst af því að einungis
hluti þeirra tjóna sem að inn á borð
nefndarinnar koma eiga sér stað
á því ári, oft hafi tjónin gerst einu
eða tveimur árum fyrr. Einnig getur
verið tilviljanakennt hvorum megin
áramóta málin sem berast nefnd-
inni kunna að falla.
Hlutur kvenna eykst
Endurkröfur á árinu 2005 námu
samtals tæplega 20 milljónum
króna og nam hæsta einstaka
krafan 1,8 milljónum króna. Alls
voru 9 endurkröfur að fjárhæð 9
milljónir króna eða meira á síðasta
ári. Hins vegar námu samþykktar
endurkröfur á árinu 2004 alls tæp-
lega 48 milljónum króna. í þeim
66 málum sem nefndin samþykkti
endurkröfu á voru karlar 48, en
konur 18, af hinum endurkröfðu
tjónvöldum. Athygli vekur að hlutur
kvenna í málum af þessu tagi hefur
farið vaxandi síðustu árin. Hlutur
kvenna var 27% á síðasta ári en á
árinu 1992 var hann aðeins um 14%.
Aldur tjónvalda hefur hins vegar
haldist nokkuð jafn en á síðasta ári
voru tjónvaldar 25 ára eða yngri í
42% tilfella, en árið 2004 átti sá ald-
urshópur hlut að 45% mála.
la málrrta.
Þegar ending og gæði skipta máli
vSeÁiéiM iiiBffif iTríiwi
9.900.- Tilboð
• ió < turowave 30mín 9,300
• 'í 2 x Sogæðanudd 20 9.900
• 4 x Aqua Detox afeitrun 9.900.
• 4 x Hartur hljóðbylgjur 9.900
• ,'i x '/2 U.C.W leirvafningur 9.900 -
• x UltraCel / UltraDermi 9.900.
• t x Fake it! spreibrúnka 9.000
Tilboð 1:19.900.-
• '10 x JO minútur í Eurowave
• 10 x sogæðanudd m/ilmkjörnum
• 5 x G5 cellónudd
• 1/2 U.C.W. leirvafningur
Smiðjuvegi 1
1 Kópavogi • sími: 564 4858» Opið:mánudaga -fimtudaga 10-20, föstudaga 10-18:30, laugardaga 10-14
Besti léttbjór-
inn frá Egils
Alþjóðleg samtök bjórframleið-
enda héldu á dögunum heims-
meistarakeppni þar sem keppt
var í fjölmörgum flokkum um
það hvaða bjórtegundir eru j
i bestarásdnusviði.
Keppnin var haldin í Seattie j
í Bandaríkjunum og fékk Egils \
í.ite frá ölgeró Egils Skallagrí ms-
sonar gullverðlaun í flokknum ,
„Amerian-Style Low C.arbo
hydrate Light Lager,“ en þar er j
um að ræða bjór með lítið af
kolvetnum.
Egils Lite þótti bera af öðrum ,
bjórum í þessum flokki og skaut
Ölgerðin þekktum framleið-
endum eins og Fosters, sem lenti
í öðru sæti, ref fyrir rass.
Stutt við fiskeldi
Ríkisstjórnin mun veita árlega
styrki upp á 35 milljónir króna til
að styðja við bakið á fiskeldi hér á
landi. Verður peningunum annars-
vegar veitt til að styðja við markaðs-
og sölustarf í bleikju og hmsvegar
til stuðnings við svokallað „aleldi“ á
þorski. Með aleldi er átt við að fram-
leiða matfisk úr kynbættum stofni,
sem talið er að hafi yfirburði yfir
þá aðferð að fanga villtan smáþorsk
sem síðan er alinn í kvíum.
Fiskeldisfyrirtæki hafa fram að
þessu notið sérstakra kjara á raf-
orkuverði og munu stjórnvöld á
næstunni beita sér fyrir að þau sér-
kjör muni gilda áfram.
Strax viðbrögð frá Samherja
Svo virðist sem fyrirtæki í fiskeldi
taki þessum tíðindum vel, því í gær
tilkynnti Samherji að fyrirtækið
muni draga minna úr umsvifum
sínum í fiskeldi hér á landi en áður
hafi verið tilkynnt um. Meðal þeirra
breytinga sem Samherji tilkynnti
um í gær er að starfsemi dótturfé-
lagsins Oddeyrar í Mjóafirði verði
efld og að það muni ennfremur fjár-
festa í 4.000 fermetra nýbyggingu
til flatfiskseldis í Öxarfirði. Oddeyri
mun einnig í samstarfi við aðra að-
ila standa að uppbyggingu umfangs-
mikils bleikjueldis á Suðurnesjum.
„Enginn seinagangur við
undirbúning Sundabrautar'
Dagur B. Eggertsson segir fráleitt að framkvæmdum við Sundabraut sé sjálfhœtt í bili
vegna seinagangs. Hann segir að tími sé kominn til að vegaframkvœmdir í borginni verði
settar íforgangþar sem meirihluti tekna sem nýttar eru til framkvœmda komi þaðan.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóra-
efni Samfylkingarinnar segir að
ummæli Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins
um seinagang í málefnum Sunda-
brautar séu fráleit. Vilhjálmur sagði
í viðtali við Fréttablaðið í gær að
framkvæmdum við Sundabraut
væri sjálfhætt í bili, „ekki síst vegna
seinagangs R-listans með undirbún-
ing þessarar mikilvægu samgöngu-
æðar.“ í blaðinu var Vilhjálmur
spurður hvort til greina kæmi að
fresta Sundabraut og Tónlistarhúsi
vegna vaxandi efnahagsvanda hér
á landi.
Dagur segist ekki skilja ummæli
Vilhjálms. „Það er auðvitað alveg frá-
leitt að tala svona. Við erum í sam-
ráði við íbúa, Vegagerðina og hafn-
aryfirvöld og samkvæmt úrskurði
umhverfis-
ráðherra á að
vinna í því að
finna leiðir
við þverun
Kleppsvíkur
og aðrar út-
færslur sem
að tryggja
sátt um
þessar fram-
kvæmdir."
Dagur segir reynsluna sýna, að
samráð af þessu tagi stytti oft tím-
ann sem að slíkt skipulag tekur
vegna þess að þá dragi úr kærum
og öðru slíku sem annars standa
framkvæmdum af þessu tagi fyrir
þrifum. „Þannig að ég vísa öllu tali
um seinagang til föðurhúsanna.“
VilhjálmurÞ.
Vilhjálmsson
Powder coatinq
Tónlistar-
húsiðstóriðja
nýrra tíma
Hitt finnst
mér hins
Dagur B. Eggertsson
vegar mun
merkilegra,
að Vilhjálmur
skuli vera til-
búinn til þess
að slá af þessa
löngu tíma-
bæru framkvæmd, í stað þess að
taka undir að hægja megi á uppbygg-
ingu stóriðju í því þensluástandi
sem nú ríkir og sannarlega er tilefni
til að hafa áhyggjur af.“
Vilhjálmur sagði ennfremur aðp-
urður hvort ekki kæmi til greina að
fresta uppbyggingu Tónlistarhúss
í Reykjavík að það kæmi ekki til
greina þar sem þegar væri búið að
undirrita samninga um bygging-
una. I þeim efnum eru þeir Dagur
því sammála. „Tónlistarhúsið er
stóriðja nýrra tíma,“ segir Dagur.
„Ég legg hins vegar áherslu á að
Reykjavíkurborg hefur alltaf axlað
fulla ábyrgð þegar þensla er og eins
þegar harðnar á dalnum.“ Dagur
segir að borgin hafi undir stjórn
R-listans frestað framkvæmdum í
þensluástandi og flýtt þeim þegar á
hefur þurft að halda.
Vegaframkvæmdir í höf-
uðborginni í forgang
Að mati Dags er nauðsynlegt að hafa
heildarmyndina í huga þegar kemur
að því að taka ákvarðanir um hvaða
framkvæmdum skuli fresta og
hverjum ekki. „Mér finnst því mjög
undarlegt af Vilhjálmi að vilja núna
stökkva til og fresta Sundabrautinni
í stað þess skoða heildarmyndina
að hafa allar vegaframkvæmdir á
landinu undir í þeirri skoðun. Það
er löngu tímabært að vegafram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu
verði settar í forgang á landsvísu.
Hér verður til meira en fimmtíu
prósent af tekjunum sem nýttar eru
til vegaframkvæmda í landinu, en
miklu minna en þriðjungi er veitt til
úrbóta hér í borginni.“
Dagur segir að það ætti ekki
að koma neinum á óvart að fram-
kvæmdir við Sundabraut hefjist í
fyrsta lagi seint á árinu 2008. Vil-
hjálmur benti á þetta í viðtalinu og
sagði að því væri framkvæmdunum
í raun sjálfhætt. „Ég veit ekki hvar
Vilhjálmur hefur verið vegna þess
að það hefur alltaf legið fyrir að það
muni taka tvö til þrjú ár að hanna
brautina þegar sátt næst um legu
hennar.“
Ölvunarakstur orsök
70% endurkrafna