blaðið - 19.04.2006, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöiö
Sérsveitarmenn gæta bílastæðis Ikea
Eigendur Ikea-verslunar í Notthing-
ham, í Englandi, hafa ráðið til sín
hóp nepalskra sérsveitamanna til
þess að gæta bílastæðis verslunar-
innar. Gripu eigendurnir til þessara
ráðninga vegna hárra tíðni glæpa á
bílastæðinu.
Nepalarnir tilheyrðu hinu víð-
frægu Gurkha-sérsveitum sem eru
rómaðar fyrir hugrekki og mikla bar-
dagagleði. Breski herinn tók Gurkha-
sérsveitir í sína þjónustu snemma á
nítjándu öldinni og hafa þær tekið
þátt í nánast öllum stríðum sem
breski herinn hefur barist í síðan þá.
Nepalskir sérsveitarmenn þykja henta
vel til gæslu bílastæða fyrir utan sænskar
húsgagnaverslanir.
Mikið var um allskyns smáglæpi
og stuld á bílum á bílastæðinu fyrir
utan Ikea-verslunina. En frá því
að fimm fyrrum Gurkha-sérsveit-
armenn tóku að sér öryggisgæslu
fyrir þremur vikum hefur ekki bor-
ist ein einasta tilkynning um glæp
kringum verslunina. Einn sérsveit-
armannana, Lahl Bahadur Gurung
sem gekk til liðs við breska herinn
árið 1982, segir að sérsveitarþjálf-
unin og sú reynsla sem hann hafi
fengið af friðargaeslu víðsvegar um
heim gagnist honum afar vel við það
verkefni að gæta bílastæðis Ikea.
Aðstandendur ungs drengs sem lést í sjálfsmorðsárásinni á mánudag syrgja hinn látna
íTelAvivígær.
ísraelsk stjórnvöld
halda að sér höndum
ísraelar segja að ríkisstjórn Palest-
ínu undir forystu Hamas-samtak-
anna beri ábyrgð á sjálfsmorðsárás-
inni í Tel Aviv í Israel á mánudag.
Hinsvegar hyggjast stjórnvöld halda
að sér höndum og munu þau ekki
grípa til umsvifamikilla vopnaðra
aðgerða gegn palestínsku heima-
stjórninni vegna sjálfsmorðsárás-
arinnar. Viðbrögð ísraelskra stjórn-
valda munu felast í því að ríkisstjórn
Hamas verður áfram beitt þrýstingi
og aðgerðum gegn meintum hryðju-
verkahópum. Á þriðja tug manna
voru handteknir á Vesturbakk-
anum í gær, þar á meðal faðir og
bróðir unglingsins sem sprengdi sig
í loft upp á mánudag. Einnig aftur-
kölluðu ísraelsk stjórnvöld réttindi
þriggja þingmanna Hamas til bú-
setu í Jerúsalem.
Níu manns létu lífið í árásinni og
hátt á fimmta tug manna særðust.
Hryðjuverkasamtökin Heilagt stríð
segjast bera ábyrgð á árásinni. Rík-
isstjórn Hamas-samtakanna hefur
réttlætt árásina og sagt hana vera
eðlileg viðbrögð við stefnu ísraela
gagnvart Palestínumönnum. For-
KOKOS-SISAL TEPPI
Falleg - sterk - náttúruleg
Verð frá kr. 2.840,- pr. m2
STRÖND
Suóurtandsbraut 10
Siml 533 5800
www.simnet.i8/strond
seti palestínsku heimastjórnar-
innar, Mahmoud Abbas, fordæmdi
hinsvegar tilræðið og sagði það
skaða málstað palestínsku þjóðar-
innar. Þrátt fyrir að Hamas hafi
að mestu leyti staðið við árs gam-
alt vopnahlé hafa samtökin Heil-
agt stríð lýst því yfir að þau muni
halda áfram að þjálfa upp fólk til
sjálfsmorðsárása.
Stjórnmálaskýrendur telja að
Ehud Olmert, starfandi forsætisráð-
herra ísraels telji að stórtækar hefnd-
araðgerðir gegn palestínsku heima-
stjórninni myndu grafa undan
tilraunum til þess að einangra ríkis-
stjórn Hamas á alþjóðavettvangi.
Talið er líklegt að réttlæting ríkis-
stjórnar Hamas á árásinni á mánu-
dag muni hraða einangrun hennar á
alþjóðavettvangi. Fjöldi ríkja hefur
undanfarið dregið til baka styrki
og þróunaraðstoð við palestlnsku
heimastjórnina vegna þess að rík-
isstjórn Hamas neitar enn að viður-
kenna tilverurétt Israelsríkis og að
láta af hryðjuverkum. Heimastjórn
Palestínu er ákaflega háð erlendu
fjármagni sökum þess að hagkerfi
landsins er í rjúkandi rúst. I gær
bættust Japanir við þann hóp þjóða
sem hafa dregið fjárstuðning sinn
til baka.
Takmarkað aðgengi ríkisstjórnar
Hamas að fjármagni hefur verulega
þrengt að getu Hamas til þess að
fara með ríkisstjórnarvaldið í Palest-
ínu. Vonast er til þess að aðgerðirnar
verði til þess að styrkja hófsamari
öfl innan palestínsku ríkisstjórnar-
innar en þó eru þeir sem trúa að ein-
angrun ríkisstjórnar Hamas verði til
þess eins eins að festa herskáa stefnu
samtakanna frekar í sessi. Rökin
eru þau að einangrun styrki tengsl
þeirra við ríki sem eru fjandsamleg
friðarferli fyrir botni Miðjarðarhafs.
Fyrr í vikunni tilkynntu stjórnvöld
í Iran og Kvatar um að þau hygðust
styrkja ríkisstjórn Hamas um fimm-
tíu milljónir dollara.
580W Hekkklippur
. Rafmagns
3.950 kr.
VíJ veiðum a symngunm
Sumal 2006
f Veúð velkomin
Ryðfrír gólf
gashitalampi
21.800 kr.
Ryðfrír gashitari á borð
10.400 kr.
1Badverfi fieiCcCsafa efif.
Tunguhálsi 10 • sími: 5172220
Ryðfrítt gasgrill
Stærð: 161 x 68 x 126 cm
Brennari: 3 stk pott brennarar 13,75 kw + Bakbrennari 3 kw.
Hitamælir á miðju loki.
Grillteinn F. 220 V. __ _ . _ .
Verð aðeins 75.317 kr.