blaðið - 19.04.2006, Síða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006
ERLENDAR FRÉTTIR 111
Reulers
Segja áhrif Tsjernobyl-
slyssins vanmetin
í nýrri úttekt umhverfissamtakanna
Greenpeace á afleiðingum kjarn-
orkuslyssins í Tsjernobyl, í Úkraínu
fyrir tuttugu árum, kemur meðal
annars fram að afleiðingar slyssins
eru mun alvarlegri en talið hefur
verið fram að þessu.
Telja grænfriðungar að á end-
anum muni hátt í 100 þúsund hafa
látist vegna krabbameins sem rekja
Úkraínsk börn horfa á heimildamynd um
björgunaraðgerðir vegna kjarnorkuslyss
ins íTjernóbyl
má beinlínis til geislamengunar í
kjölfar sprenginga og elda í kjarn-
orkuverinu. Telja Grænfriðungar
að þegar allt kemur til alls muni
270 þúsund manns eiga við .alvar-
lega heilsukvilla sem rekja nttgi til
slyssins.
í sameiginlegri skýrslu Samein-
uðu þjóðanna og stjórnvalda í Hvíta-
Rússlandi, Ukraínu og Rússlandi,
sem birt var í október í fyrra, er
því spáð að á endanum verði fórnar-
lömb geislavirkrar mengunar um 4
þúsund.
Hafna hug-
myndum um
þvinganir
vegna Darfúr
Rússar og Kínverjar hafa lýst því
yfir að þeir styðji ekki þvinganir
gegn fjórum Súdönum sem sakaðir
eru um að bera ábyrgð á grimmdar-
verkum í ofbeldisöldunni sem geisað
hefur í Darfúr-héraði undanfarin ár.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bret-
landi hafa lagt til að Sameinuðu þjóð-
irnar grípi til diplómatískra aðgerða
gegn mönnunum sem feli meðal ann-
ars í sér ferðabann og að eigur þeirra
í erlendum fjármálastofnunum verði
frystar. John Bolton, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, hefur beðið um fund hjá
öryggisráðinu þar sem hugsanlega
þvingunaraðgerðir gegn mönnunum
fjórum verða ræddar.
Um tvær milljónir manna hafa
þurft að flýja heimili sín í héraðinu
en þar hafa geisað átök á milli her-
flokka Araba, sem eru sagðir njóta
stuðnings súdanskra stjórnvalda, og
sveita uppreisnarmanna.
Mennirnir sem stjórnvöld í Bret-
landi og Bandaríkjunum vilja að
gripið verði til þvingana gegn, eru
leiðtogar tveggja herflokka uppreisn-
armanna í héraðinu. Einnig er um
að ræða leiðtoga hersveitar sem er
talin hafa náin tengsl við stjórnvöld
í Karthoum, höfuðborg Súdans, og
háttsettan embættismann innan
stjórnarinnar.
Friðarviðræður á milli súdanskra
stjórnvalda og uppreisnarmanna í
héraðinu hafa farið fram á vegum
Afríkubandalagsins í höfuðborg Níg-
eríu Abuja, síðustu tvö árin. Samn-
ingamönnum hefur verið gefinn
trestur til aprílloka til þess að kom
ast að samkomulagi. Súdönsk stjórn-
völd segja að Bandaríkjamenn vilji
grípa til þvingana gegn mönnunum
til að auka á vandamálin í héraðinu
og með því treysta eigin hagsmuni á
svæðinu. Rússar og Kínverjar, sem
hafa töluverða viðskiptahagsmuna
að gæta í Súdan, segja að ekki komi
til greina að grípa til þvingana í
neinu formi fyrr en að útséð er með
hvort að niðurstaða verði 1 friðarvið-
ræðunum i Abuja.
'i
FRJÁLST
ÓHÁÐ
blaóió
LOÐAHREINSUN I REYKJAVIK 2006
21.-29. APRÍL
Starfsmenn Reykjavíkurborgar verða ó ferðinni ó tímabilinu og fjarlægja garðaúrgang sem
fólk hefur sett út fyrir lóðarmörk. Athugið að garðaúrgang mó ekki setjn í sorptunnur.
• Garðaúrgang ska! setja i poka
• Greinaafklippur skal binda í knippi
• Ekki verða fjarlægð stór tré eða trjóstofnar
Virkjum okkur!
www.reykiovik.is