blaðið - 19.04.2006, Síða 12
12 I ERLENDAR FRÉTTXR
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöiö
Segja Moussaoui þjást af geðklofa
Lögmenn Zacarias Moussaoui freista þess að halda uppi vörnumfyrir hann en hann segist
ekki iðrast þess að hafa komið nœrri árásinni á Bandaríkin 11. september 2001.
Lögmenn Zacarias Moussaoui sem
á yfir höfði sér dauðadóm fyrir
að hafa tengst árás hryðjuverka-
manna á Bandaríkin 11. september
2001 leggja áherslu á að hann hafi
alist upp við afar erfiðar heimilisað-
stæður. Þá halda sérfróðir því fram
að Moussaoui sýni merki geðklofa.
Hann sýnir á hinn bóginn engin
merki iðrunar og hefur lýst því yfir
að hann myndi aftur taka þátt í til-
ræðum gegn Bandaríkjamönnum
fengi hann tækifæri til þess.
Lögmenn Moussaoui eru því
í þeirri sérkennilegu aðstöðu að
halda uppi vörnum fyrir mann
sem kærir sig ekki um það. Réttar-
höld fara nú fram yfir Moussaoui
í Virginíu í Bandaríkjunum. Hann
er franskur ríkisborgari af marrók-
óskum uppruna og er eini maðurinn
sem dæmdur hefur verið í Bandaríkj-
unum í tengslum við árásina haustið
2001.
Moussaoui var í fangelsi í Minnes-
ota í Bandaríkjunum þegar árásin
var framin en því hefur verið haldið
fram að hann hafi átt að vera 20. flug-
ræninginn þegar þotunum fjórum
var rænt. Hann var handtekinn í
ágústmánuði árið 2001, tæpum mán-
uði fyrir árásina, en þá hafði hann
stundað flugnám í Eagan í Minnes-
ota. Þótti hegðun hans og afstaða
grunsamleg og fór svo að flugkenn-
ari hans sneri sér til yfirvalda.
Moussaoui hefur ekki reynt að
leyna því að hann hafi tekið þátt í
að undirbúa árásina og var dæmdur
fyrir að hafa ekki skýrt stjórn-
völdum frá því að árás væri fyrir-
huguð. 1 réttarhöldunum í Virginíu
er tekist á um hvort Moussaoui skuli
hljóta dauðadóm.
Fordómar og ofbeldi
Jan Vogelsang, atferlissálfræðingur,
sagði fyrir réttinum að Moussaoui
hefði að mestu dvalist á upptöku-
heimilum fyrstu sex ár ævi sinnar.
Á unglingsárum sínum í Frakklandi
hefði hann sætt margvíslegum for-
dómum og hefði fjölskylda kærustu
hans m.a. hafnað honum á þeirri for-
sendu að hann væri „skítugur arabi“.
Móðir Moussaoui, Aicha el-Wafi,
Zacarias Moussaoui
Reuters
hefði sætt ofbeldi á heimilinu enda
hefði heimilisfaðirinn verið stjórn-
laus drykkjumaður. Hefði móðirin
sex sinnum misst fóstur á þessum
árum sem rekja bæri til ofbeldis af
hálfu eiginmannsins. Moussaoui
hefði því aldrei kynnst eðlilegu
fjölskyldulífi.
Vogelsang sagði einnig að fyrir-
liggjandi gögn bentu til þess að Mo-
ussaoui ætti við geðrænan vanda að
stríða. Hann sýndi merki geðklofa
og vænisýki. Xavier Amador, einn
þeirra sérfræðinga sem verjendur
Moussaoui hafa kallað til, sagði
á mánudag að Moussaoui væri
haldinn margvíslegum ranghug-
myndum og ofskynjunum. Hann
talaði t.a.m. yfirleitt við sjálfan sig
í fangaklefa sínum og hann væri
sannfærður um að George W. Bush
Bandaríkjaforseti myndi láta sleppa
honum úr fangelsi.
Neitar öllu samstarfi
við verjendur sína
Lögmenn ákæruvaldsins halda hinu
gagnstæða fram. Moussaoui hefur
átt samstarf við þá og m.a. fallist á
að gangast undir geðpróf og skoð-
anir. Hann hefur á hinn bóginn
neitað öllu samstarfi við verjendur
sína og þá sérfræðinga sem þeir hafa
kallað til. Niðurstöður þær sem sér-
fræðingar verjenda hafa birt eru því
byggðar á mati annarra sérfræðinga,
athöfnum Moussaouis, ummælum
og skrifum á síðustu mánuðum.
Lögmenn Moussaoui halda því
einnig fram að þáttur hans í hryðju-
verkaárásinni 2001 hafi verið tak-
markaður. Verði hann tekinn af lífi
rætist draumur hans um að deyja
sem píslarvottur.
Banvænt
sígarettuslys
Sextugur maður lést af völdum
brunasára eftir að hann kveikti sér
í sígarettu í brunastiga, við heilsu-
gæslustöð í Doncaster á Englandi á
mánudag, með þeim afleiðingum
að það kviknaði í honum.
Maðurinn var i meðferð vegna
húðsjúkdóms. Hluti af meðferðinni
fólst í að á hann var borið krem sem
er eldfimt. Maðurinn áttaði sig ekki
á þeim eiginleika kremsins og þegar
hann reyndi að kveikja sér í sígarett-
unni fuðraði hann upp. Hann lést
skömmu síðar vegna mikilla og al-
varlegra brunasára.
Lögregluyfirvöld telja ekki að
starfsmenn heilsugæslustöðvar-
innar beri ábyrgð á andláti manns-
ins. Allt bendir til þess að aðeins sé
um hörmulegt slys að ræða sem ekki
verði rakið til gáleysis starfsmanna.
Þriðja hvert barn fæðist
utan hjónabands í Evrópu
Sex sinnum fleiri börn fæðast nú
utan hjónabands í Evrópu en fyrir 35
árum. Telja ýmsir ástæðu til að hafa
þungar áhyggjur af þessari þróun.
Nú er svo komið að þriðja hvert
barn í Evrópu fæðist utan hjóna-
bands. Evrópska meðalfjölskyldan
er því ekki sú sama og áður. Margir
sérfræðingar telja að þessari þróun
verði vart snúið við en ýmsir eru
þeirrar hyggju að það beri stjórn-
völdum einmitt að reyna að gera.
„Fjölgun fæðinga utan hjónabands
er raunverulegt áhyggjuefni," segir
John Ermisch, hagfræðiprófessor
við Essex-háskóla i Englandi og
vísar til þess að sambúð sé ekki það
sama og hjónaband. Slík sambönd
haldi ekki jafn vel og hjónabandið
og fjölgun einstæðra foreldra hafi
margvísleg og djúpstæð efnahagsleg
og samfélagsleg áhrif í för með sér.
„Nú um stundir reiknar fólk al-
mennt ekki með því að hjónbandið
endist og því velta margir því fyrir
sér hvort ekki sé með öllu ástæðu-
laust að giftast þar sem brúðkaups-
veislur séu dýrar og skilnaðir
flóknir,“ segir Peter Brierley sem
fer fyrir kristnum rannsóknarhópi í
Bretlandi og er kirkjunni þar til ráð-
gjafar. „Hjónabandið er ekki lengur
talið nauðsynlegt til að unnt sé að
fagna fæðingu barns,“ segir í nýlegri
franskri þingskýrslu þar sem fram
kom að óvigð sambúð er ekki lengur
bundin við yngra fólk, það færist
mjög í vöxt í Frakklandi að hinir
eldri kjósi að búa saman en ekki í
hjónabandi.
Tölur frá Frakklandi benda til
þess að sambönd þeirra sem kjósa
Reuters
óvígða sambúð endist nú lengur en
áður var raunin.
Félagslegar og efnahagslegar
hefðir hafa mjög mótandi áhrif á
fjölda fæðinga utan hjónabands
í Evrópu. Og þá er trúin ónefnd.
Þannig fæðast 56% barna í Svíþjóð
nú utan hjónabands en í Grikklandi
á það einungis við um 4% þeirra. 1
Bretlandi er talan 42% og í Þýska-
landi 28% samkvæmt mælingum
evrópsku tölfræðistofnunarinnar,
Eurostat.
BERNHARD
BERNHARD ehf. • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 * www.bernhard.is
NLP Námskeið Neuro - Lingustic - Programming
- Er sjálfstraustið í ólagi? - Langar þig í betri líðan? - Finnst þér að fáir skilji þig? - Er eitthvað i fari þinu sem að þú vilt vinna bug á? - Finnst þér að öðrum gangi betur í lifinu en þér? - Gengur illa að klára verkefni sem þú byrjar á? - Finnst þér erfitt að höndla gagnrýni?
Með NLP aðferðum getur þú auðveldlega breytt lífi þínu og skapað þína eigin framtíð. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefúr náð frábærum árangri í lífinu
Námskeiðið fer fram helgarnar 28, 29, 30.apríl og 5, 6, 7.maí. Kennt er föstudaga frá kl.18-22 og laugardag og sunnudag frá kl.10-18.
Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP. Upplýsingar i síma: 894-2992 Netfane: kariía)ckari.com Nánari unnlvsinear um NI.P má finna á: www.ckari.com