blaðið - 19.04.2006, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöiö
30 I
Rætist Evrópudraumur Arsenal?
Undanúrslit Meistaradeildar Evrópu halda áfram í kvöld þegar Villarreal mœtir á Highbury.
Lykillinn aö velgengni gula kafbatsins: Argentíski leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme er einn besti miðvallarleikmaður í Evrópu í dag.
í kvöld mætast Arsenal og
Villarreal í fyrstu viðureign sinni
í undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Verður leikurinn sögu-
legur þar sem þetta er í síðasta
sinn sem Arsenal leikur í Evr-
ópukeppni á hinum fornfræga
Highbury-velli. Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, segir
þá staðreynd muni hjálpa til við
að blása sínum mönnum kappi í
kinn fyrir leikinn.
Wenger hefur leyft sér að hvíla fyr-
irliða sinn, franska framherjann
Thierry Henry, í undanförnum
deildarleikjum og þar af leiðandi
ætti hann að vera vel upplagður
fyrir kvöldið. Þetta er eitthvað sem
aðdáendur Villarreal ættu að kvíða
þar sem spænska liðið leikur án mið-
varðarparsins Gonzalo Rodriguez og
Juan Manuel Pena. Auk þess verður
spænski miðjumaðurinn Cesc Fa-
bregas tilbúinn í slaginn en hann
hefur átt við meiðsli á fæti að stríða
undanfarið. Jose Antonio Reyes
tekur út leikbann í kvöld en að öllum
líkindum mun sænski vængmaður-
inn, Freddie Ljungberg, hlaupa í hans
skarð í kvöld. Ljungberg var hvildur
þegar Arsenal lék í ensku úrvalsdeild-
inni um helgina. Sol Campbell verður
ekki með í kvöld og verður því Wen-
ger að halda áfram að treysta á ungu
varnarmennina í liðinu en þeir hafa
þótt standa sig með mikilli prýði í
vetur.
ArsenaJ hefur leikið gríðarlega vel
í Meistaradeildinni og hefur liðið
meðal annars slegið út stórlið Real
Madrid og Juventus í keppninni.
Þrátt fyrir að stuðningsmenn Arsenal
hafi þyrst eftir betri árangri í ensku
úrvalsdeildinni er ljóst að þeir geta
hlakkað til framtíðarinnar nái Wen-
ger að halda saman skemmtilegri
blöndu af leikmönnum á heimsmæli-
kvarða, reynsluboltum og ungum og
upprennandi stjörnum.
Enginn skal vanmeta gula kafbátinn
Þrátt fyrir að margir spái Arsenal
sigri í kvöld, ekki síst þegar tekið er
tiUit til hefðarinnar og sögunnar, er
Villarreal sýnd veiði en ekki gefin.
Liðið, sem gengur undir nafninu
guli kafbáturinn á Spáni (sp. E1 Sub-
marino Amarillo), vegna skærguls
litar búninga félagsins, hefur verið á
mikilli siglingu undanfarin ár, bæði
í spænsku deildinni og í Evrópu-
keppnum. Þrátt fyrir að liðið sé að-
eins nýbúið að skipa sér á bekk meðal
fremstu liða Evrópu, og einhverjir
efist um hvort það hafi verið heppni
frekar en geta sem hafi skilað því í
undanúrslitin í ár, dylst engum að
nokkrir leikmenn liðsins geta tekið
öll völd í sínar hendur á vellinum og
yfirbugað hvaða andstæðing sem er.
Leikur Villarreal byggist á leik-
stjórn Argentínumannsins Juan Ro-
man Riquelme, sem er án efa einn
besti leikstjórnandinn í Evrópu í dag.
Þrátt fyrir að Riquelme verði seint
sagður vera skjótari en skugginn
hefur hann ótrúlega gott auga fyrir
sendingum og getur hann með út-
sjónasemi opnað hvaða vörn sem er.
Þeir Diego Forlan og Jose Mari skipa
stöðu framherja og eru þeir fljótir
að þefa upp sendingarnar frá Riqu-
elme. Auk þess eru landi Riquelme,
stálnaglinn Juan Pablo Sorin, og
spænski landsliðsmaðurinn Marco
Senno mikilvægir leikmenn sem
eiga eftir að reynast leikmönnum Ar-
senal erfiðir mótherjar. Það eru fyrst
og fremst þessir leikmenn sem hafa
komið Villarreal svo langt í keppn-
inni í ár og mun því Arsene Wenger
leggja ofurkapp á að stöðva þá. Takist
það ætti Arsenal að eiga greiða leið í
úrslit Meistaradeildarinnar.
Skeytín inn
Petr Cech, markvörður
Chelsea, segist sann-
færður um að vera
orðinn
klár í
lokaátök
ensku
deildar-
innar
og ætlar
að hjálpa félögum sínum að
tryggja sigur liðsins í bæði deild
og bikar. Chelsea þarf aðeins
eitt stig í viðbót til þess að sigra
úrvalsdeildina og mætir svo
Liverpool í undanúrslitum bik-
arsins á laugardag. Markvörður-
inn lenti í harkalegu samstuði
við William Gallas í leik liðsins
á móti Everton á mánudag og
þurfti að sauma tíu spor í fót-
legg hans. En markvörðurinn
ætlar að vera klár fyrir næsta
leik. Þrátt fyrir það er ekki víst
hvort Jose Mourinho velji Cech
þar sem ítalski varamarkmaður-
inn, Carlo Cudicini, hefur verið
á milli stanganna í öllum bikar-
leikjum Chelsea á leiktíðinni.
sigri Englendinga á Þjóðverjum
sem tryggði þeim heimsmeist-
aratitilinn árið 1966, telur allar
líkur á því að Wayne Rooney
verði jafnóstöðvandi á HM í
Þýskalandi og brasilíski töfra-
maðurinn Pele var þegar hann
var upp á sitt besta. Peters telur
góðar líkur á því að Englend-
ingar sigri mótið og telur að
lykillinn að velgengni verði
miðjuþríhyrningur sem sam-
anstendur af Rooney og Steven
Gerrard, leikmanni Liverpool,
og Frank Lampard, leikmanni
Chelsea. Telur Martins að Eng-
lendingar geti verið óstöðvandi
stilli Sven Göran Erikson, lands-
liðsþjálfari Englands, Rooney
upp fyrir framan Gerrard og
Lampard á miðjunni.
eira um HM. Knatt-
spyrnukeisarinn
Franz Beckenbauer
■ telur það ekki til marks um
i bágt ástand á þekkingu Eng-
lendinga á knattspyrnu að ekk
ert landslið sem leikur á HM 1
Þýskalandi hafi enskan þjálfara
við stjórnvölinn. Beckenbauer
segir að þrátt fyrir litla eftir
spurn eftir þeim meðal lands-
liða heimsins séu margir enskir
þjálfarar framúrskarandi.
Allar líkur eru á því að enska
knattspyrnusambandið ráði
einn af þessum framúrskar-
andi þjálfurum til starfa þegar
Erikson lætur af starfi lands-
liðsþjálfara eítir HM í sumar,
ewcastle hefur slegist
i hóp Liverpool og
Everton í baráttunni
um að fá enska táninginn Giles
Barnes i sínar raðir. Barnes.
sem leikur með Derby, þykn
vera gríðarlegt efni og hefur
vakið mikia athyglí spark
spekinga 1 vetur. Barnes. sem
er aðeins 17 ára gamall, er
metinn a eína milljón punda
! Knattspyrnustjóri Derby, Terry j
Westley, hefur lýst þvi yfir að
hann vilji gera allt til þess að
halda í piltinn.
LENGJAN
LEIKIR DACSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Jihlava - Sparta Prag 4,25 3,10 1,45
Pribram Banik. Ostrava 2,05 2,65 2,60
Zlin - Sígma Olomouc 2,10 2,65 2,55
Honka - VPS 1,50 3,00 4,00
Lahti - Inter Turku 1,60 2,95 3,50
Jönköping Södra - Hácken 4,00 3,00 1,50
Visby IF Gute - Ljungskile 3,25 2,85 1,70
Carl Zeiss Jena - Osnabriick 1,45 3,10 4,25
Hradec Kralove - Slavia Prac 3,70 3,00 1,55
Austria Vín - Ried 1,35 3,35 4,75
Gornik Leczna Groclín Dyskobolia 2,20 2,60 2,45
Gornik Zabrze - Pogon Szczesin 2,20 2,60 2,45
Zaglebie Lubin - Wisla Plock 1,55 3,00 3,70
Sirius - Brommapojkarna 4,25 3,10 1,45
Besiktas - Gaziantepspor 1,30 3,50 5,15
La Chaux-de-Fonds - FC Luzern 3,00 2,80 1,80
Herades Almelo - NEC Nijmegen 2,05 2,65 2,60
RKC Waalwijk - Vitesse 1,90 2,75 2,80
Birmingham - Blackburn 2,20 2,60 2,45
Arsenal - Villareal 1,50 3,00 4,00
Scarborough - Grays Athletic 3,25 2,85 1,70
St.Patricks Atletic - Bray 1,65 2,90 3,35
Tigres UANl - Universidaa Catolica 1,70 2,85 3,25
Newell's Old Boys - Strongest 1,20 3,85 6,40
„Var frekar efins í byrjun en núna er ég alveg undrandi
að ég gæti þetta.“
Bjarki Jónsson, 17 ára nemi í FSU.
Sumarnámskeið hefst 15. maí og 1. júní
Sumarnámskeið Akureyri hefst 17. maí og 26. júní
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
HFt^OUESTFtAFtSKiÖLJNlNf
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. reynir að finna rétta knöttinn á ævingasvæði
félagsins 1 gær.
Híjsaviðgerpir
555 1947
www.husco.is