blaðið - 02.05.2006, Qupperneq 30
38 I FÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2006 blaöið
AF VEIKINDUM,
PIRRINGI OG ÁST
Smáborgarinn er vægast sagt að tapa
geöheilsunni þessa dagana og á erfitt
með að missa sig ekki út í pirring og leið-
indi. Þannig er mál með vexti að maki
Smáborgarans er veikur. Það væri svo
sem ekki í frásögurfærandi nema að þeg-
ar makinn verður veikur þá verður hann
virkilega veikur og breytist í raun aftur
í barn. Makinn heldur því að heimurinn
snúist um hann og hann einan þá daga
sem hann er veikur. Reyndar er makinn
ansi veikur, svo veikur raunarað Smáborg-
arinn hefur aldrei séð hann svo slappan.
Samt sem áður er þetta bara pest sem
líður hjá en makanum líður sem hann sé
við dauðans dyr og vill að Smáborgarlnn
þjónusti sigframog aftur.
Senditík
Helst vill makinn að Smáborgarinn sitji
heima allan daginn og haldi f hendina á
sér, svo ekki sé minnst á reglulegt knús
og alls kyns sendiferðir eftir vatni, verkja-
lyfjum og hóstasafti. Makinn rétt svo
fyrirgefur Smáborgaranum fyrir að fara í
vinnuna en þegar Smáborgarinn þarf að
eyða kvöldum sínum annarsstaðar fær
hann aumingjalegt augnaráð sem vitan-
lega veldur samviskubiti. Þótt skynsemi
Smáborgarans segi honum að fullvaxta
einstaklingur geti fullvel séð um sig sjálf-
ur, þrátt fyrir að vera með skæða flensu,
bera tilfinningarnar hann ofurliði og hon-
um finnst helst sem það sé hans verk að
annast fullorðinn karlmann í veikindum
sínum. Smáborgarinn hefur því gert sitt
besta og þolinmóður hlaupið eftir lyfjum
í apótekið, mat í búðina og videóspólum
í sjoppuna og á einhvern hátt tekist að
rómantísera fórn sína fyrir ástina.
Pestin
Það tókst vel fyrsta daginn, nokkuð vel
annað daginn og sæmilega þriðja daginn.
I dag hefur makinn verið veikur í fimm
daga og Smáborgarinn er búinn að send-
ast, knúsa og haldast í hendur svo mjög
að það nægir honum út ævina. Það sér
ekki fyrir endann á #%&#$% pestinni
þótt makinn sé vitanlega að verða hress-
ari. Þó ekki svo hress að hann horfi ekki
ásökunaraugum á Smáborgarann þegar
hann vogar sér að stinga upp á að mak-
inn búi sér sjálfur til samloku þar sem
Smáborgarinn þarf að skjótast úr húsi.
„Ég erfárveikur, hvernig á ég að geta búið
til samloku?"
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Gylfi Arnbjörnsson, framkvœmdastjóri
Alþýðusambands íslands
Er kröfugangan tímaskekkja?
Nei, hún er alls ekki tímaskekkja, enda mætti ég sjálfur í gönguna. Þvert
á móti tel ég mjög mikilvægt að til sé svona vettvangur fyrir verkafólk,
þar sem tækifæri myndast til að safnast saman og leggja áherslu á sam-
eiginleg vandamál.
Mikiö hefur verið rætt um framkvæmd og skipulagningu hátiöarhalda og kröfugöngu á baráttudegi verkafólks 1. maí. Telja sum-
ir aö breyta eigi fyrirkomulaginu, hætta aö fara í kröfugöngu og bjóða frekar upp á kaffi og meö því.
Útgáfupartí Silvíu Nóttar
BiöM/friiáí
Silvía Nótt gaf á dögunum út Ijóðabók og í tilefni þess var haldið heljar mikið útgáfupartí um helgina. Þar var aö sjálfsögöu mikiö
um dýröir, enda ekki á hverjum degi sem ein skærasta stjama landsins kynnir ritverk á þennan hátt. Þar heiðruðu margir þjóðþekktir
íslendingar Silvíu meö nærveru sinni og lásu upp úr nýju bókinni.
Hrœrt upp í grugginu
Seattle rokksveitin Pearl
Jam sendir frá sér sína
áttundu stúdíóplötu í dag
en platan er sú fyrsta í
heil fjögur ár eða frá því
Riot Act kom út árið 2002.
Fyrsta smáskífan er þegar
komin í mikla spilun en
það er lagið „World Wide
Suicide“.
Þetta er einnig fyrsta
platan hjá nýju útgáfufyr-
irtæki en Pearl Jam gefa
núna út hjá J Records sem
stofnað var af Clive Davis.
Upptökustjórn á nýju plöt-
unni var í höndum Adam
Kasper og Pearl Jam en
Kasper og Pearl Jam sáu
einnig um upptökustjórn
á síðustu plötu sveitarinn-
ar.
Allar götur frá því sveit-
in steig á sjónarsviðið
árið 1991 með plötu sinni
Ten hafa þeir selt yfir 60
milljónir eintaka af plötum sínum. Þeir hafa sent frá sér 7 stúdíóplötur, 2
tónleikaplötur, eina tvöfaldab-hliðar plötu og eina tvöfalda safnplötu.
Langþreyttir aðdáendur geta tekið gleði sína á ný með
fyrstu plötu Pearl Jam í heil fjögur ár.
eftir Jim Unger
Hvað ertu með fyrir aftan bak?
© Jim Unger/dist. by Unlted Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Farið mun að hitna í kolun-
um á Nýju fréttastöðinni
(NFS) og það í fleiri skilningi
en einum. Áður
hafa menn kvart-
að undan þröngu
rými í Skaftahlíð-
inni, en nú er nýr
vandi kominn í
ljós. Er sumarið kom yfir sæ-
inn og sólskinið ljómaði um
bæinn síðastliðinn föstudag
fögnuðu flestir Reykvíkingar
en ekki starfsmenn NFS. Ger-
samlega ólíft mun hafa verið
fyrir hitasvækju, enda feiki-
legir gluggar eftir endilöngum
suðurvegg hússins og loftræst-
ingin mun engan veginn hafa
haft undan. Þegar menn opn-
uðu glugga tók svo ekki betra
við, því umferðarniðurinn frá
Miklubraut rauf vinnufriðinn
og mengunin flæddi inn. Segja
menn að Róbert Marshall þurfi
greinilega að hreinsa loftið á
vinnustaðnum...
Guðfaðir pönksins Iggy
Pop heldur tónleika í
Reykjavík annað kvöld og ber
vitaskuld að lofa þann menn-
ingarauka. Hins
vegar virðast
menn ekki hafa
tekið við sér sem
skyldi, því eftir-
spurnin eftir miðunum reynd-
ist ekki meiri en svo, að flytja
þurfti tónleikana niður í Lista-
safn Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu. Meistarinn er hins vegar
fullsæmdur af því að stíga á
stokk í því musteri hámenn-
ingarinnar og má raunar segja
að sæmdin sé ekki minni fyrir
Listasafnið...
Fjármálaspekingar lýðveld-
isins hafa haft nóg að
gera að undanförnu, en um
liðna helgi ræddu þeir ekki
síst greinaskrif
Arnórs Sighvats-
sonar aðalhag-
fræðings Seðla-
banka íslands
í Fréttablaðinu.
Arnór drap
niður penna til þess að svara
grein llluga Gunnarssonar,
hagfræðings og fyrrverandi
aðstoðarmanns Davíðs Odds-
sonar, þar sem hann vék að
verðbólgumælingum og gengi.
Arnór gekk svo langt í svörum
sínum að segja ávinninginn
af íslensku krónunni minni
en engan. Það eru vitaskuld
stórtíðindi, þegar aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans gefur frat
í krónuna með þessum hætti,
en aðalhlutverk bankans er
vitaskuld að verja gjaldmiðil-
inn. I öðrum löndum hefði yf-
irlýsing sem þessi sjálfsagt ver-
ið krónunni verulegt áfall og
orsakað gengisfall. Það gerðist
nú ekki og er óvíst hvort það
er vegna þess að markaðurinn
tekur ekki mark á Arnóri eða
vegna þess að hann tók fram í
neðanmálsgrein að skoðanirn-
ar í greininni væru höfundar
og endurspegluðu ekki endi-
lega stefnu Seðlabankans.
Svo segja aðrir að aðalhag-
fræðingur Seðlabankans
geti einfaldlega ekki haft uppi
neinar sjálfstæðar skoðanir i
þessum efnum, nema kannski
við konuna sína og það í ein-
rúmi. Kona Arnórs heitir
Edda Hrönn Atladóttir og telja
gárungarnir það afar viðeig-
andi að aðalhagfræðingurinn
Seðlabankans viðri þessi mál
við hana, enda er hún fram-
kvæmdastjóri Atsons, umsvifa-
mesta seðlaveskjaframleið-
anda landsins...