blaðið - 23.05.2006, Page 29
blaðið ÞRIÐJUDAGÖR 23. MAÍ 2006 DAGSKRÁ I 37
Yusuf Islam gefur út sína fyrstu plötu í 28 ár
Yusuí Islam úr
28 ára útlegð
Tónlistarmaðurinn Yusuf Islam,
betur þekktur sem Cat Stevens,
hefur snúið úr tónlistarlegri útlegð
sinni. Hann er sem sagt að fara
að gefa út sína fyrstu plötu í 28 ár.
Yusuf hefur sagt að það hafi verið
margvíslegar ástæður fyrir því að
hann ákvað að draga sig út úr tón-
listargeiranum á sínum tíma. „Ég
hafði fundið það sem ég var að leita
að andlega. I dag eru að minnsta
kosti hundrað ástæður fyrir því að
mér finnst ég tilknúinn að semja
á ný“. Platan mun samanstanda
af glænýjum lögum og nokkrum
eldri óútgefnum tónsmíðum. Árið
1977 snerist Cat Stevens til íslam og
tók þá upp nafnið Yusuf Islam og
dró sig algjörlega út úr hinum vest-
ræna tónlistargeira. Yusuf hefur
samið við Polydor útgáfufyrirtæk-
ið um að gefa út nýju plötuna sem
enn hefur ekki verið gefið nafn.
L I N D B E R G
frábæru fisléttu titan umgjarðirnar
%
Sumartilboð!
Frí sólgler í þínum styrkleika
þegar keypt eru ný gleraugu.
-6,00 / +4,00 cyl 2,00
Gleraugnaverslunin
i Mjódd Álfabakka 14 . Sími: 587 2123
Gleraugnaverslun
Suðurlands seifossí • sm: 482 3949
augnsyn
GLERAUGNAVERSLUN
Fjarðargata 13-15
Sími 565 4595
S.
•V