blaðið - 30.05.2006, Page 19
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006
HEILSA I 27
Farsæl leið
til þróunar í starfi
og meiri lífsgæða.
Gottnám
Félagsvísindadeild Háskóla íslands
býður spennandi námskost:
J5 eininga diplómanám
á meistarastigi
' NÁMSGREINAR: ®
V^^^Afbrotafræði Fötlunarfræði
Alþjóðasamskipti Opinber stjórnsýsla
Atvinnulífsfræði Kynjafræði
Áhættuhegðun Rannsóknaraðferðir
og forvarnir félagsvísinda
Fræðslustarf og stjórnun Þróunarfræði
Fjölmiðlafræði
Inngönguskilyrði er BA- próf eða sambaerilegt próf.
Diplómanám er metið inn í viðkomandi meistaranám fái nemendur
inngöngu í það.
Umsóknareyðublöð og allar upplýsingar eru á heimasíðu
deildar: www. felags.hi.is
Umsóknum skal skilað til Kolbrúnar Eggertsdóttur, deildarstjóra
framhaldsnáms, skrifstofu félagsvísindadeildar, Odda við Sturlugötu,
sími 525-4263, tölvupóstfang kolbegg@hi.is.
Umsóknarfrestur
ertil ó.júní
Félagsvísindadeild
Háskóla Islands
Hér ganga galvaskir ferðafélagar um Leggjabrjót en farið verður i siíka ferð á þjóðhátíðardaginn.
Leggðu ísland
undir fót
Margir vitafátt betra en góða gönguferð
Ferðafélagið Útivist stendur fyrir
hressandi gönguferðum í sumar
og því er um að gera að taka frá
daga sem fyrst því svona göngur
létta lund og styrkja skrokkinn í
leiðinni.
Um hvítasunnuhelgina stendur
ferðafélagið fyrir hressandi ferða-
lagi á landinu okkar fagra en það
er sigling um
eyjarnar í Skaga-
firði.M.a.verður 99
farið í Drangey,
Málmey, Þórðar-
höfða, Glerhalla-
vík o.fl.
Þátttakendur
þurfa að aka
eigin bílum
norður en svo
verður gist í
húsi að Hólum
í Hjaltadal. Út-
ivistarfélagið
benti á að þetta væri rétti árstíminn
til þess að fara út í eyjarnar á Skaga-
firði því fuglalífið er í algleymingi
um þessar mundir. Það er kannski
réttast að taka það fram að það
hafa margir tekið Útivist á orðinu,
því uppselt er í ferðina. Augljós-
lega lítill ótti við fuglaflensu hjá
ferðalöngunum.
Brot af dagskrá Útivistar
næstu vikurnar:
Mánudagur 5. júní
Vindáshlíð og Reynivallaháls
Frá sumarbúðunum í Vindáshlíð
verður gengið á hið formfagra Sand-
fell (384 m). Alfaraleiðinni að Dauðs-
mannsbrekkum verður fylgt en þar
sátu stigamenn forðum fyrir ferða-
mönnum. Þaðan liggur svo leiðin
út hálsinn yfir Kirkjustíg að Grens-
hæðum, hæsta hluta hálsins (421 m),
en þaðan er gott útsýni yfir Kjósina
og nærsveitir. Gengið verður niður
Hálsenda, aflíðandi rana vestast á
hálsinum.
Vegalengd er 14 km. Hækkun 400
metrar og göngutimi 5-6 klst.
Helgin 9.-11. júní
Fimmvörðuháls
Næturganga Útivistar yfir Fimm-
vörðuháls hefst á BSl kl. 17:00 á
föstudagskvöldi. Ekið verður að
Skógum þar sem gangan hefst hjá
hinum tignarlega Skógafossi.
Brekkan upp með fossinum reynir
nokkuð á fæturna og heppileg til að
hita vöðvana fyrir gönguna, en eftir
það er nokkuð aflíðandi hækkun
upp á Hálsinn.
Eftir sex til sjö klukkutíma göngu
verður komið í skálann og þar
verður gist um nóttina.
Á laugardagsmorgninum verður
gengið í Bása um Goðalandsbrúnir,
á Þrívörðusker og niður Bröttufönn.
Frá Bröttufönn verður haldið um
Heljarkamb, eftir Kattahryggjum
niður í Strákagil við Bása þar sem
göngunni lýkur. Gist verður í Básum
seinni nóttina og gefst þá gott tæki-
færi til stuttra gönguferða og slök-
unar í fögru umhverfi.
Sunnudagur ll.júní
Móskarðshnúkar og
Möðruvallaháls
Frá Hrafnhólum verður haldið á
brattann austan Þverárdals og farið
að Laufskörðum sem tengja Esju
við Móskörð en Eyjadalur í Kjós
gengur upp að þeim. Síðan verður
farið austur yfir Móskarðshnúka
og yfir á fjallið Trönu norðan þeirra.
Þetta er skemmtilegt land að ganga
um. Mikið útsýni og litadýrð er í
Móskarðshnúkum. Af Trönu liggur
leiðin um sérlega skemmtilegan
hrygg norður Möðruvallaháls á
milli Eyjadals og Svínadals niður að
Sandi í Kjós. Gömul leið um Svína-
skarð og Svínadal liggur austan Mó-
skarðshnúka. Vegalengd er 15 km og
göngutími 7-8 klst.
Laugardagur
17. júní
Leggjabrjótur
Margir hafa lítinn
áhuga á því að vaða
mannfjöldannímið-
bænum á sautjánda
júní. Því er tilvalið
að skella sér í þjóð-
hátíðargöngu með
útivistarköppum.
Farin verður ferð
um Leggjabrjót
milli Hvalfjarðar og
Þingvalla. Úr Botnsdal í Hvalfirði
verður gengið með Hvalskarðsá
suður með Sandvatnshlíðum og
með Sandvatni að austan yfir smá-
hrygg sem er hinn eiginlegi Leggja-
brjótur. Súlá og síðar Öxará verður
fylgt niður að Orrustuhól og þaðan
að Svartagili. Vegalengd 15 km og
göngutíminn er 5-6 klst.
Sunnudagur 18. júní
Gengið á milli hella í ná-
grenni Reykjavíkur
Gengið verður á milli nokkurra
þekktra hella í nágrenni Reykja-
víkur. Skátahella nyrðri og syðri,
Selgjárhella nyrðri og syðri, Norður-
hellis, Hamarskotshellis, Kershellis,
Hvatshellis og Ketshellis, Nítíu- og
Hundraðmetra hella, Vatnshellis,
Fosshellis og Rauðshellis, Kaldársels-
hella, Kaðalhellis og endað í Hreiðr-
inu. Ekki er um eiginlega hellaskoð-
unarferð að ræða heldur verður kíkt
ofan í nokkra hella. Gott er að hafa
með sér ljós og hjálm. Vegalengd 11
km. Hækkun 100 m. Göngutími 4-5
klst.
Helgin 16.-18. júní
Fimmvörðuháls, vestan ár
Þegar gengið er yfir Fimmvörðuháls
vestan ár er fossunum í Skógaá fylgt
vestan megin árinnar í stað þess að
fylgja þeim að austan eins og í hefð-
bundinni göngu yfir „hálsinn“.
Getur það nú breytt miklu spyrja
líklega flestir og svarið er afdráttar-
laust já - því það er alveg með ólík-
indum hversu glænýr heimur blasir
við. Foss getur gerbreyst í útliti eftir
því hvaðan á hann er horft og í þess-
ari göngu blasir við alveg glæný hlið
á aragrúa af stórkostlegum fossum.
Gist verður í skála félagsins á Fimm-
vörðuhálsi en þaðan liggur svo
leiðin í Bása um Hvannárgil.
Allar nánari upplýsingar um
þessar ferðir má fá á vefsíðu útivistar
www.utivist.is eða í síma 562-1000.
margret@bladid. net
Auglýsingadeild
510-3744
Ritstjórn
510-3799
blaðið
Foss getur gerbreyst í
útliti eftirþví hvaðan
á hann er horft og í
þessari göngu blasir
við alveg glæný
hlið á aragrúa af
stórkostlegum fossum.