blaðið - 30.05.2006, Side 26

blaðið - 30.05.2006, Side 26
ÁLFABAKKA mmiMm X-MEN3 KL 3:30-5:45-8-10:10 X-MEN3V1P KL 3:30-5:45-10:10 POSEJDON BYLGJWORSÝNINGKL8 AMERICAN DREAMZ KL330-5:4S-l(fc30 SHAGGYDOG KL 3:45-5:504 Ml:3 3:4S44áO-10-J0 SCARY MOVIE 4 KL4-6 FAILURE TO LAUNCH KL8 FIREWAli KL10-.10 KRINGLUNNI^— SAMmmt AMERICAN DREAMZ KL 5:45-8-10:20 Ml:3 KL 5:30-8-10:40 SHAGGYDOG KL5:50 SCARY MOVIE 4 KL 10:20 KEFLAVfK « SáMMÉmk X-MEN3 KL 8-10:10 ‘ THE DAVINCIC0DE KL 7:30-10:15 Si FREMWli. AKUREYRI iUI\ti KI -w|| AMERICAN DREAMZ KL 88-10 SHAGGYDOG KL 6 Ml:3 KL 8-10:20 THE DAVINCI CODE KL 2-4-6-8-10 SHAGGYDOG KL. 3-6-8 «11:3 KL 4-6-8-10 SCARY MOVIE 4 KL3 VFORVENDETTA KL10 J SmfiRR^BÍÓ X-MEN 3B.1.12ÁRA kl. 5.40,8 og 10.20 DAVINCICODE kl. 4,5,7,8,10og1lB.L14ÁRA DAVINCICODE ILÚXUS kl. 5,8og11 B.I.14ÁRA RAUÐHETTA ENSKT TAL kl. 6 og 8 RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL kl. 3.50 ÍSÖLD2 kl. 4 ÍSLENSKT TAL CRYWOLF kl. 10B.1.16ÁRA REGflBOOinn X-MEN 3 kl. 6,8.30 og10.50 BJ. 12 ÁRA DAVINCICODE kl. 6 og 9 B.I.14ÁRA CRYW0LF kl. 8 B.l. 16ÁRA RAUÐHETTA ENSKT TAL kl.6og 10 RAUDHETTA ÍSLENSKT TAL kl.6 PRIME kl. 8 og 10.15 B.L 16 ÁRA X-MEN3 kl. 6,8 og 10.10 B.L 12ÁRA DAVINCICODE kl. 5,8og 10.50 B.L 14 ÁRA BANDIDAS kl. 6 B.l. 10ÁRA INSIDE MAN kl. 8B.L16ÁRA X-MEN 3B.1.12ÁRA kl. 6,8og10 DAVINCICODE kl. 6og9B.1.14ÁRA □□Dolby /DD/ JHK Qbíó.is ' 34 I AFPREYING ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaöið Bartarnir hafa minnkað Supergrass mun heiðra landsmenn með nærveru sinni á Reykjavík Trópík. Breska hljómsveitin Supergrass er væntanleg hingað til lands en hún mun spila á útihátíðinni Reykja- vík Trópík sem fer fram í fyrsta sinn í júní. Af því tilefni hafði Blaðið samband við Mick Quinn, bassaleikara sveitarinnar, sem var nýkominn af stífri æfingu. Hljómsveitin Supergrass var stofnuð á fyrri hluta tíunda áratugarins af þeim Gaz Coombes, aðalsöngvara og gítarleikara, Mick Quinn, bassa- leikara, og Danny Goffey sem spilar á trommur. Árið 2002 gekk eldri bróðir Gaz, Rob Combes, formlega til liðs við sveitina. Supergrass sló strax í gegn með sinni fyrstu plötu I Should Coco sem kom út árið 1995 og eru sumir gagnrýnendur á því að hljómsveitin hafi ekki gefið út viðlíka plötu. Ákveðinn hráleiki ein- kenndi hana og greina mátti áhrif frá rokktónlist 6. og 7. áratugarins, áhrif frá hljómsveitum á borð við Bítlana og Rolling Stones. Supergrass er svo sannarlega ekki eina hljómsveitin sem hefur verið undir áhrifum frá þessum stórveldum. 1 kjölfar I Sho- uld Coco kom út platan In It For The Money sem festi sveitina enn frekar í sessi. Síðan kom samnefnd plata út en segja má að frægðarsól Super- grass hafi hnigið örlítið eftir útgáfu þeirrar plötu. Platan Life On Other Planets kom þó út árið 2003 og nú síðast í fyrra kom út platan Road To Rouen. Erfið fæðing Eftir að Supergrass hafði gefið út sína þriðju plötu sem bar heiti hljóm- sveitarinnar liðu um þrjú ár þangað til platan Life On Other Planets kom út. „Við tókum ekki beint hlé á þessum tíma. Við vorum að túra mikið og í alls konar stússi. Þegar við loksins komum saman vorum við ekki að semja rétta efnið og þetta tók langan tíma. Við vildum alls ekki gefa eitthvað út bara til að halda framleiðslunni gangandi, við urðum að bíða þangað til við vorum sáttir við útkomuna“. Við gerð Life On Other Planets dvaldi sveitin langtímum saman í Frakklandi en aðspurður segir Qu- inn að vinna við plötuna hafi farið hægt af stað. „Við fórum þarna til að ná að stilla okkur saman frekar en að okkur hafi orðið mikið úr verki. Til að mynda notuðum við ekki mörg lög sem við sömdum í Frakklandi. Þetta var engu að síður frábært frí þar sem góður matur og notalegar stundir við sjóinn voru í forgrunni. Bítlar og drasl Supergrass hefur starfað í um 10 ár en Quinn telur að þrátt fyrir að sveitin hafi sveiflast í gegnum árin þá hafi meðlimir hennar alltaf verið í góðum tengslum tónlistarlega séð. ,Ég er viss um að við höfum þroskast sem tónlistarmenn og orðið betri. Ég á erfitt með að skilgreina þróun- ina frá upphafi til dagsins í dag. Við reynum að skilgreina ekki of mikið hvert við erum að stefna“. Aðspurður segir Quinn að Bítl- arnir hafi haft mikil persónuleg áhrif á sig en margt annað komi til. ,Ég hef aldrei reynt að einskorða mig við eitt eða neitt. Þegar ég var yngri hlustaði ég á Bítlana og Rolling Stones en upp úr 1980 var orðið fátt um fína drætti í rokkbransanum, sumt hreint drasl! Ég leitaði því til baka og hlustaði á Bob Dylan og Joni Mitchell og plötur David Bowie frá 8. áratugnum. Það var þó ekki allt slæmt á 9. áratugnum og má nefna hljómsveitir eins og Pixies og Smiths.“ Vegurinn að Road to Rouen Nýjasta plata Supergrass kom út í fyrra og nefnist Road to Roen en mikið gekk á í einkalífi meðlima hljómsveitarinnar á árunum fyrir útgáfuna. „Við vildum samt ekki gera leiðinlega plötu þó margt hafi gengið á í okkar einkalífi. Þess I stað reyndum við að vinna úr þessum til- finningum en það er samt ekki hægt að segja að það sé sama gleði á henni og á Life On Other Planets. Við sett- umst hreinlega niður í hljóðveri með einum frönskum upptökustjóra og við hittum varla neinn í þrjá mánuði á meðan við vorum að vinna að plöt- unni. Aðstæður okkar frá árunum á undan koma fram í melankólískum textum plötunnar og endurspegla þannig líf okkar. Platan var því uppgjör áranna á undan fremur en að spegla hvar hljómsveitin stóð þá. Við erum á gleðilegri stað núna þannig að platan virkar stundum sem eitthvað úr fjarlægri fortíð“. Dagskráin ekki á hreinu Quinn tjáir sig lítið um hvað tón- leikagestir á íslandi fá að heyra en segir að hljómsveitin muni setjast niður bráðlega til að fjalla um það. Hann segir þó að sennilega muni gestir fá að heyra mikið af Road to Rouen því þeir hafi verið að kynna hana á fullu. „Annars er aldrei að vita hvað við munum taka. Við höfum spilað saman í 10 ár en erum enn að finna nýjar leiðir til að miðla tónlist okkar“. Hin hárprúða hljómsveit Super- grass mun spila á Reykjavík Trópík, laugardaginn 3. júní, með hljóm- sveitum á borð við Kimono, Jeff Who? og Leaves. jon@bladid.net Belle and Sebastian til landsins Hljómsveitin Belle and Sebastian og Emilíana Torrini munu halda tvenna tónleika á íslandi nú í júlí. Strákur og hundurinn hans Hljómsveitin Belle and Sebastian kom fram á sjónarsviðið í janúar 1996. Sveitin var stofnuð í Glasgow af söngvaranum Stuart Murdoch og bassaleikaranum Stuart David sem hittust á vinnuþjálfunarnámskeiði á vegum stjórnvalda og ákváðu að taka upp demó saman. Nafnið er tekið úr frönskum barnaþáttum úr sjónvarp- inu sem fjölluðu um strák og hund- inn hans. Boltinn rúllaði hratt og í nóvem- ber árið 1996 kom út platan If You’re Feeling Sinster en henni var gríðar- lega vel tekið og sveitin hefur vaxið statt og stöðugt síðan þá. Spilað í heimahúsum Fyrstu tvö árin var Belle and Seb- astian eins konar leyniband. Gjarnan birtust með tilkynningum um sveit- ina myndir af stúlku sem ekki var í bandinu og sveitin spilaði á óútreikn- anlegum stöðum eins og í kirkjum, bókasöfnum og í heimahúsum. Sveitin ætlaði sér ekki að breyta þessu og einungis var stefnt að út- gáfu tveggja platna. Rök hljómsveit- armeðlima voru þau að þeir vildu ekki láta tónlistina ná stjórn á lífi sínu. Þetta hefur þó ekki gengið eftir og eru plöturnar orðnar fjölmargar. Nýjasta plata Belle and Sebastian, The Life Pursuit, kom út núna í vor og er sjötta plata þessarar sérstæðu skosku sveitar. Borgarfjöröur togar Emilíana Torrini þarf ekki mikillar kynningar við. Hún gaf út hljómplöt- una Fishermans Woman í fyrra en þeirri plötu var vel tekið hérlendis sem og víða erlendis. Emilíana fór í tónleikaferð um Island í fyrra og spilaði meðal ann- ars í Bolungarvík og á Akureyri að ógleymdum tónleikum í Bræðslunni á Borgarfirði eystra, en þar liggja rætur hennar. Þess vegna er stefnan tekin í Bræðsluna að nýju og að þessu sinni með Belle and Sebastian. Belle and Sebastian spilar með Emilíönu Torrini á tvennum tónleikum. Tónleikarnir á Borgarfirði eystra eru partur af árlegri hátíð sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra með tón- leikum Emilíönu Torrini. Fyrri tónleikarnir verða á Nasa við Austurvöll þann 27. júlí og seinni verða í Bræðslunni á Borgarfirði eystra þann 29. júlí. Miðasalan hefst fimmtudaginn 8. júní kl. 10 á midi.is og í verslunum Skífunnar og BT á Egilsstöðum, Ak- ureyri og Selfossi. Miðaverð er 4.500 kr. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladld.net. 15.00-Fyrirlestur Neal G. Copeland: Harnessing transposons for cancer gene discovery Askja stofa 132 16.00 -Málstofa Björn Stensaker: Hversu góð eru gæðakerfi háskóla? Aðalbygging Háskóla íslands stofa 225 TILB0Ð! Einn gámureitt verð: Plastparket: Eik Classic með áföstu hljóðeinangrandi undirlagi og eikarlistum

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.