blaðið - 07.07.2006, Blaðsíða 18
26 I AFÞREYING
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaöiö
mwm:
THE LAKE HOUSE KL 3:30-5:45-8-10:20
SLITHER KL 10:30
SHESTHEMAN KL.8
KRINGLUNNI.—
SAMWtmk
THEBREAKUP KL 3:45-6-
9-10:15-11:30
FAST&THEFUR.3 KL 8:15-10:30
BÍlARÍsl.tal KL 4-6:30
‘ CARS enskt tol KL 3:45-8:15
POSEIDON KL6
KEFLAVÍK
áMLiIÍÍKi
THEBREAKUP KL 8-10:10
THE CLICK KL 8
FAST&THEFUR.3 KL 10:10
AKUREYRI
■mLnMm
. HM
THE BREAK UP KL. 6-8-10:10
THELAKEHOUSE KL 8-10:10
BÍLAR ísl. tal KL. 5:40
THEBREAKUP KL 6-8:15-10:30
THE LAKE HOUSE KL 6-8:15-10:30
KL 6-8:30-10:50
KL 6-8:30
KL 6-8:20-10:30
KL 10:50
SmáHH^BÍÚ
THE BENCHWARMERS
kl. 4,6,8og 10B.L10ÁRA
CUCK
kl. 3,5.30,8 og 10.30 B.L 10 Ara
CUCKÍLÚXUS
W. 3,5.30,8 og 10.30 B.L 10 ÁRA
JUSTMYLUCK
kl. 8og10.20
RV
kl. 3.40 og 5.50
DA VINCI CODE
kl. 6og9B.L14ÁaA
RAUÐHETTA ÍSLBiSKT TAL
W.4
REGfíBOGinn
THE BENCHWARMERS
kl. 6,8og 10B.1.10ÁRA
aiCK
kl. 5.30,8 og 10.30 B.L 10AfW
THEOMENBi 16ÁRA
ld. 10.30
X-MEN3
kl.5.30 og8 B112ÁRA
DAVINCICODE
kl.8 B114ÁRA
TAKETHELEAD
kl. 5.30B.1.10ÁRA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
W. 4,6,8 og 10.15B112ÁRA
CUCK
W. 4,6,8og 10.15B110ÁRA
STAYALIVE
W.10.15B116ÁRA
TAKETHELEAD
W. 5.45 og 8B.L 10ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
W. 4
Jhíjri/tihiiii)
THE BENCHWARMERS
W. 8 og 10B.L 10ÁRA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
W. 10.10B.L 12ÁRA
CUCKB.1.10ÁRA
W.6og8
G3 Doiby /DD/ 'íhx
Snooze gefur út nýtt lag
„Þetta er létt og skemmtilegt sumar-
lag sem gott er að dilla rassinum í
takt við, ekkert ósvipað hinu laginu
okkar Alla leið sem hefur slegið í
gegn,“ segir Brynjar Már, útvarps-
maður á FM 957 og annar helmingur-
inn af dúettinum Snooze. Nýja lagið
sem heitir Allt eða ekkert kemur út
í dag og það er Brynjar Már ásamt
Kristínu Ýr sem syngja lagið. Lagið
verður sett af stað inn á heimasíð-
urnar www.snooze.is og www.minn-
sirkus.is/snooze á föstudagsmorgun
þar sem hægt verður að hala laginu
niður frítt en þar er einnig hægt að
finna lagið Alla leið.
Alla leið, sem er fyrsta lag Snooze
og var gefið út fyrir nokkrum mán-
uðum, hefur hljómað á útvarps-
stöðvum í sumar. Lagið hefur verið
notað í sjónvarpsauglýsingum og
fleiri auglýsingum en einnig hefur
Snooze verið að spila úti um allt
land við góðar viðtökur. „Við erum
eiginlega alveg gáttuð yfir viðtök-
unum sem við höfum fengið, þær
eru hreint ótrúlegar. Miklu betri
en við nokkur tímann þorðum að
vona,“ segir Brynjar Már. Lögin
Hann lifði fyrir
tónlistina
Út er komin fimmta
platan í American
seríu Johnny Cash.
Hundred Highways er fimmta
platan sem gefin er út í Amer-
ican seríunni með lögum með
snillingnum Johnny Cash. Sem
fyrr var það Rick Rubin sem
sá um upptökustjórnina og er
þetta um leið platan sem inni-
heldur síðustu upptökurnar sem
Johnny tók upp áður en hann
féll frá 12. september árið 2003.
Daginn eftir að konan hans
June Carter Cash lést, þann
14. maí 2003, á Johnny að hafa
hringt í Rick Rubin og sagt
honum að hann yrði að fara
aftur að vinna að tónlist. „Ef þú
hefur ekki eitthvað fyrir mig að
gera á hverjum degi, þá mun ég
deyja,“ á hann að hafa sagt. Tón-
list var það eina sem hann hafði
til að lifa fyrir og hann tók upp
30 lög frá því að June dó og þar
til hann féll sjálfur frá fjórum
mánuðum síðar.
„Þetta er plata til að hlusta á,
hún er mjög sorgleg en ákaflega
falleg. Ég hreinlega elska hana
og þetta er tónlist sem Johnny
Cash vildi að fólk heyrði," segir
Rick Rubin um plötuna. Á henni
eru 12 lög og einhver þeirra ætti
fólk að kannast við. Fyrsta lagið
sem heitir Help Me, er einlæg
afsökun frá Johnny til guðs í
rólegum ballöðu stíl. Lögin If
You Could Read My Mind og
God’s Gonna Cut You Down eru
einnig mjög andleg og hugljúf.
On The Evening Train og Furt-
her On (Up the Road) eru einnig
á disknum og einhverjir ættu að
kannast við þau.
Brynjar Már og Kristín fr gefa út lagið Allt eða ekkert.
verður að finna á væntanlegri breið-
skífu Snooze en það er Vignir Snær
Vigfússon sem útsetur og stjórnar
upptökum á laginu og Þorvaldur
Bjarni sér um hljóðblöndun.
Af hverju heitið þið Snooze? „Við
vorum búin að liggja með höfuðið
í vaski og baði og bara yfir höfuð í
bleyti mjög lengi og eftir þá vökvun
komum við upp með þetta nafn,
Snooze. Ég nota símann minn rosa
mikið, til þess að vakna við, minna
mig á fundi og annað slíkt þannig að
okkur fannst þetta alveg frábær hug-
mynd. Við erum mjög ánægð með
nafnið, það vita allir hvað Snooze
er og það er fyrir augum flestra á
hverjum degi,“ segir Brynjar Már.
kristin@bladid. net
Lúðar allra landa
sameinast
Sögur af fólki sem fær annað tæki-
færi eru alltaf heillandi. The Bench-
warmers er slík saga. Myndin
var frumsýnd í Sambíóunum í
vikunni
Félagarnir Gus (Rob Schneider),
Richie (David Spade) og Clark (Jon
Heder) hafa varið löngum stundum á
hliðarlínunni og fylgst með stæltum
strákum leika hafnabolta af mikilli
leikni. Þeir hafa lengi átt sér þann
draum heitastan að slást í leikinn
og spreyta sig í þessari þjóðariþrótt
Bandaríkjamanna. Piltarnirþrír eiga
ekki sjö dagana sæla og eru reglulega
áreittir af hávöxnum íþróttastrákum,
sem eru mun yngri að árum, sem
þykir lítið til þeirra koma. Þeim Gus,
Richie og Clark þykir að sér vegið og
þeir stofna því hafnaboltalið og skora
á hólm alla stæltu strákana.
Milljónamæringurinn Mel (Jon
Lovitz) býður þessu óburðuga hafna-
boltaliði dágóðan fjárhagsstuðning
til þess að launa piltunum hjálp sem
þeir veittu syni hans Nelson (Max
Prado) þegar íþróttastrákarnir réð-
ust að honum á skólalóðinni. Mel
ræður einn besta hafnaboltaþjálfara
veraldar til þess að tukta liðið til og
væntir mikils af strákunum. Þjálfar-
inn nær að gera kraftaverk og liðið
heldur í spennandi ferð um Banda-
ríkin og skorar á hólm boltabullur af
öllu tagi.
Rob Schneider, sem fer með
eitt aðahlutverkið, segir að Adam
Sandler hafi fengið hugmyndina að
handritinu og að hann hafi fylgst
vel með öllu ferlinu. Dennis Dugan
leikstýrir myndinni en hann hefur
skilað myndum á borð við Big Daddy
og Happy Gilmore. Benchwarmers
er sprenghlægileg gamanmynd sem
enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Ósungin íslensk lög
Platan Hljómfagra ísland - Instrumental Iceland kemur út í dag.
Þessi nýja plata, Hljómfagra ísland,
inniheldur 16 íslensk, ósungin lög,
sem þjóðin hefur tekið ástfóstri við.
Þau voru samin á síðustu öld eða eru
þjóðlög sem lifað hafa með þjóðinni
um langa tíð. Lög sem íslendingar
alast upp við, hlusta á á ferðalögum
og síðast en ekki síst, lög sem útlend-
ingar sækjast eftir að kynnast.
Upptökustjórn og útsetningar eru
í höndum Jóns Ólafssonar sem leikur
einnig af sinni alkunni snilld á plöt-
unni. Aðrir hljóðfæraleikarar eru
fremstir í sínum flokki; Guðmundur
Pétursson, Róbert Þórhallsson, Birgir
Baldursson, Jóhann Hjörleifsson,
Dan Cassidy, Matthías Stefánsson
og Eggert Þorleifsson. Með plötunni
er bældingur þar sem má finna sögu
hvers lags eða kvæðis tíunduð bæði
á íslensku og ensku. Á plötunni má
finna lög á borð við Á Sprengisandi,
Dagný, Ég bið að heilsa, í Hlíðar-
endakoti, Kvæðið um fuglana, Vísur
Vatnsenda Rósu, Fyrir átta árum og
Kvæðið um litlu hjónin.
Hvað erað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Keppni
Ljósmyndasamkeppni JCI ís-
lands stendur nú yfir. Keppnin er
opin öllum áhugaljósmyndurum
og verða úrslitin kynnt á Menn-
ingarnótt Reykjavíkur 19. ágúst.
Keppnin er árleg, en þemað
í ár er höfuðborgin í ýmsum
myndum. Veitt verða fern verð-
laun frá Ormsson og ljosmyndari.
is. Sjá nánar www.jci.is.
JCI Heimilið - Hellusund 3,101
Reykjavík
12.15-Fyrirlestur
I boði Háskóla íslands mun
prófessor Johan Neyts, Rega
Institute for Medical Research,
Katholieke Universiteit, Leuven,
Belgíu, halda fyrirlestra um lyfja-
meðferð inflúensu og lifrarbólgu
C. Fyrirlesturinn í dag heitir „To-
wards the development of potent
drugs for the treatment of hepat-
itis C virus infections".
Háskóli íslands - Askja í sal 132
15.00-Tónlist
Blús, kynnir verður Júlli Júll.
Sparisjóðnum, Ólafsfirði
20.00 -Leiklist
Footloose
Borgarleikhúsið - Stóra
Miðasala á midi.is
21.00-Tónlist
Landsliðið í blús The Legends
blues band, Andrea Gylfadóttir,
söngur, Berglind Björk, söngur,
Guðmundur Pétursson, gítar,
Björgvin Gíslason, gítar, Halldór
Bragason, gítar, söngur, Sigurður
Sigurðsson, munnharpa, söngur,
Einar Rúnarsson, hammond orgel,
Birgir Baldursson, trommur , Ró-
bert Þórhallsson, bassi. Veröndin:
Björgvin Gíslason, Guðmundur
Pétursson, Halldór Bragason, Sig-
urður Sigurðsson. Blúsflytjandi
ársins - úrslit í samvinnu heima-
manna og Rásar 2.
Tjarnarborg
24.00-Tónlist
í kvöld verður fjórða Rocka-
billý-Partí Curvers haldið á Bar
11. Kvöldin hafa heldur betur
slegið í gegn og búist er við mik-
illi stemningu í húsinu næsta
föstudag lfkt og á fyrri kvöldum.
Troðfullt hefur verið í húsinu,
dansað á öllum hæðum staðar-
ins og færri komist að en vildu.
Curver mun að vanda spila bragð-
sterka blöndu af Rockabillý, Surf,
Twang, Garage og gamaldags
rokk og róli. Herlegheitin hefjast
upp úr miðnætti og það er opið
til klukkan 05:30.
Aðgangur er ókeypis.
Bar 11
24.00-Tónlist
Dúettinn Sessý og Sjonni ætlar að
halda uppi stuðinu í kvöld á Kaffi
59. Stuðtónlist úr öllum áttum og
engum mun leiðast. Leikar hefj-
ast á miðnætti.
Kaffi 59 Gr undarfirði
24.00-Tónlist
Greifarnir munu spila á tón-
leikum í kvöld á Players. Síðast
er Greifarnir spiluðu á Players
varð húsfyllir og allar líkur á að
margt verði um manninn í þetta
sinn. Nú orðið gerist það ekki á
hverjum degi að menn komist á
alvöru Greifaskrall. Greifarnir
fagna 20 ára starfsafmæli um
þessar mundir og er von á nýrri
plötu frá sveitinni með haustinu.
Heyrst hefur að verið sé að
endurvinna lagið „Útihátíð"
með sumum færustu tónlistar-
mönnum landsins en í júlí eru
einmitt 20 ár síðan lagið kom út.
Players, Kópavogi