blaðið - 07.07.2006, Blaðsíða 6
Kveikt á kertum til minningar um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í London fyrir ári síðan. Hmm
Myndband bendlar Al-Qaeda við
hryðjuverkaárásina á London
Arabíska fréttastöðin Al-Jazeera
sendi í gær út myndband með upp-
töku af Shehzad Tanweer, einum af
hryðjuverkamönnunum sem stóðu
að sjálfsmorðssprengjuárásinni á
London fyrir ári síðan. í myndband-
inu, sem talið er vera rúmlega árs
gamalt, segir Tanweer að árásin
á London væri aðeins byrjunin á
hrinu hryðjuverka sem yrðu gerð til
þess að refsa Bretum fyrir stuðning
þeirra við voðaverk gegn múslimum
um heim allan. Myndbandið var
sýnt einum degi áður en árásanna á
rslun
t>ar sem gæðagleraugu...
....kosta minna
Sólgleraugu
fyrir konur
og karla
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslun
norðan Alpafjalla
Reykavíkurvegi 22
220 Hafnarfírði
565-5970
www.sjonarhoIl.is
London er minnst þar sem 52 féllu.
Ahmed al-Sheikh, einn yfir-
manna Al-Jazeera fréttastöðvar-
innar, vildi ekki gefa upp hvernig
myndbandið hafi komist i hendur
starfsmanna stöðvarinnar en haft er
eftir honum í erlendum fjölmiðlum
að myndbandið sé langt og að sjón-
varpsstöðin hafi aðeins leikið lítinn
bút úr því. Tilkynnt var um tilvist
myndbandsins á vefsíðu sem tengist
hryðjuverkasamtökum Osama Bin
Ladens, Al-Qaeda, en tilkynning-
unni fylgdu ummæli frá Ayman al-
Zawahri, sem er sagður næstráðandi
í samtökunum. Verði það staðfest að
myndbandið sé ófalsað er það vatn á
myllu þeirra sem halda því fram að
hryðjuverkin í London fyrir ári hafi
verið verið runnin undan rifjum
Al-Qaeda.
f september á síðasta ári sýndi
Al-Jazeera myndband sem innihélt
kveðjuorð Mohammad Sidique
Khan, sem tók þótt í hryðjuverka-
árásinni. f því myndbandi eru mynd-
skeið sem sína al-Zawahri klippt
inn í ræðu Kahn. Talið er lfklegt að
það myndband hafi verið tekið upp
utan Bretlands. Bresk lögregluyfir-
völd segja að bæði Tanweer og Kahn
hafi ferðast þrívegis til Pakistan, þar
sem að vitað er að áhrifamenn í Al-
Qaeda leynast, áður en þeir gerðu
hryðjuverkaárásina á London.
6 i FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaöiö
Ungir knattspyrnuáhugamenn horfa til framtíðar en ekki fortíðar.
Ósigur Þjóðverja?
Óttar Guðmundsson skrifar frá Berlín
Arabískir íslamistar berjast með
Sambandi íslamskra dómstóla
Heimamenn tóku tapinu gegn
ftölum bara vel. Kannski liggur
það í eðli þjóðar sem beið lægri
hlut í tveimur heimsstyrjöldum á
tæpum 30 árum að sætta sig við
orðinn hlut. Veislan heldur áfram
þótt liðið hafi ekki komist alla
leið í úrslitin. Bílar eru enn fánum
skrýddir og fjöldi fólks gengur
um götur borgarinnar í hvítri ein-
kennisskyrtu. Þjóðverjar eru mjög
stoltir af liðinu sínu þrátt fyrir ósig-
urinn. Þjóðin öll allt frá yngstu
skólabörnum til kanslara og for-
seta grátbiðja Klinsmann þjálfara
að vera áfram. Enginn leitar að
blórabögglum og engar samsæris-
kenningar eru í gangi. Menn eru
sammála um að ósigur Þjóðverja
sé tap fyrir keppnina. Þeir hafi
verið með eitt skemmtilegasta
liðið sem nú sitji eftir en tvö ákaf-
lega leiðinleg varnarlið fari saman
á Ólympíuleikvanginn í Berlín.
Allir álitsgjafar og besserwisserar
sem reglulega láta dæluna ganga
í fjölmiðlum bera Klinsmann og
hans menn miklu lofi. Menn eru
sammála um að úrslitaleikurinn
verði jafn leiðinlegur og óspenn-
andi á að horfa og stórmeistarajafn-
tefli í skák.
Þjóðverjar virðast hafa endur-
heimt gamalt þjóðarstolt. Þeim
finnst að þeir séu aftur komnir í
fremstu röð meðal knattspyrnu-
þjóða og auk þess hafi keppnin öll
verið þeim til sóma. Unga fólkið
sem man ekki eftir öðru en sam-
einuðu Þýskalandi veifaði stolt
fánunum sínum án allrar minni-
máttarkenndar og frægrar þýskrar
sektarkenndar.
Þjóðverjar hafa lagt sig fram um
að skapa samfélag sem ekki lætur
fortíðina stjórna sér um of. Ógnar-
stjórn nasista og kommúnista er
víða til sýnis á söfnum en áhugi
heimamanna virðist næsta lítill.
Gestir eru flestir útlendingar í leit
að einhverju sem þeir vita ekki al-
veg hvað er. Ég hjólaði á dögunum í
glampandi sólskini í nokkra kirkju-
garða borgarinnar til að leita að for-
tíðinni. I austrinu fann ég nokkra
legsteina valinkunnra kommún-
ista. Graf-
irnar voru í
ágætri um-
hirðu borgar-
starfsmanna
en greinilegt
að fáir ef
nokkrir aðrir
heimsóttu
þennan reit.
A heimleið-
Óttar Guðmundsson inni leitaði
ég uppi leiði
tveggja stríðshetja Þriðja ríkisins,
flugmannanna Mölders og Udet.
Þar var hið sama uppi á teningnum.
Þeir virtust öllum gleymdir nema
þessum eina hjólandi sérvitringi
frá íslandi og starfsmönnum
garðsins sem hjálpuðu honum að
finna grafirnar. Hinir síðarnefndu
drógu engan dul á þá skoðun sína
að gesturinn hlyti að vera galinn
svo heimskuleg fannst þeim þessi
leit.
Ég hjólaði síðan framhjá risa-
stóru minnismerki austanmeg-
inn um kommúnistaforingjann
Ernst Thálmann. Þar sátu nokkrir
skakkir pönkarar í skjóli stytt-
unnar sem öll var þakin ljótu graf-
fiti. Lífið heldur áfram og pönkar-
arnir sögðust ekki hafa hugmynd
um hvaða kallfauskur væri höggv-
inn í þennan stein.
Þjóðverjar nútímans vilja láta
dæma sig af eigin verkum enda
löngu orðnir þreyttir á syndum
Þriðja ríkisins og Austur-þýska al-
þýðulýðveldisins. Á sama hátt vilja
Islendingar í Kaupmannahöfn láta
meta sig af eigin verðleikum og
þreytast á þeim ásökunum eldri
Dana að þeir hafi svikið kónginn
árið 1944. Sagan er til margra
hluta nytsamleg en verst er þegar
hún er notuð til að búa til klisjur,
alhæfingar og kennisetningar sem
stjórna afstöðu okkar til annarra
þjóða.
íslamskt ríki í landinu. Þrátt fyrir
það hafa borist tíðindi að þau fram-
fylgi afar ströngum lögum í höfuð-
borginni og fréttir hafa borist af því
að vígamenn þeirra hafi banað fólki
fyrir það eitt að horfa á útsendingar
frá HM í knattspyrnu.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Sheikh
Hassan Dahir Aweys sýnir mynd-
bandið sem AP-fréttastofan hefur
undir höndum arabíska vígamenn
undirbúa sig ásamt hermönnum
sambandsins fyrir vopnuð átök
norðan við Mógadisjú. Evan Ko-
hlman, sérfræðingur í íslömskum
hryðjvuerskasamtökum, segir í
samtali við fréttastofuna að mynd-
bandið sé keimlíkt þeim áróðurs-
myndböndum sem íslamskir hryðju-
verkahópar senda frá sér í öðrum
heimshornum. Hann segir enn-
fremur að ástandið í Sómalíu minni
um margt á ástandið í Afganistan
þegar talibanar voru í þann mund
að festa sig í sessi og að myndbandið
muni líklega ráða miklu um hvaða
stefnu alþjóðasamfélagið mun taka
gegn Sambandi íslamskra dómstóla
í landinu.
Samþykkir ekki
hjónabönd sam-
kynhneigðra
Áfrýjunardómstóll í New York-
ríki í Bandaríkjunum hefur vísað
frá kröfu fjörtíu og átta samkyn-
hneigðra para um að hann nemi
úr gildi 97 ára gömul lög sem skil-
greina hjónaband eingöngu á grund-
velli sambands karlmanns og konu.
Dómstóllinn segir í niðurstöðu
sinni að hann geti ekki endurskil-
greint hjónaband þar sem að það sé
verksvið löggjafans í ríkinu.
Deilan um hjónabönd samkyn-
hneigðra er orðið að miklu hitamáli
í Bandaríkjunum. Massachussetts
er eina ríkið sem leyfir hjónabönd
samkynhneigðra en í Vermont eru
borgaralegar vígslur leyfðar. I kosn-
ingunum í nóvember 2004 voru
tillögur um bann við hjónabandi
samkynhneigðra samþykktar í ell-
efu ríkjum.
Myndbandsupptaka sem Associated
Press-fréttastofan (AP) hefur kom-
ist yfir sýnir arabíska íslamista berj-
ast við hlið hermanna Sambands
íslamskra dómstóla í Mógadisjú í
Sómalíu. í myndbandinu eru aðrir
arabískir íslamistar hvattir til þess
að koma til Sómalíu og taka þátt í
heilögu stríði fyrir framgangi íslam
í heiminum. Myndbandið er fyrsta
áþreifanlega sönnun fullyrðingar
stjórnvalda í Washington D.C. um
að Samband íslamskra dómstóla
hafi náin tengsl við Al-Qaeda
hryðjuverkasamtökin.
Endurtekur sagan frá
Afganistan sig
Lögleysa og stjórnleysi hefur ríkt
í Sómalíu frá árinu 1991 þá steyptu
stríðsherrar herforingjanum Mo-
hamed Siad Barre af valdastóli.
Bráðabirgðastjórn fer með völd í
landinu að nafninu til en styrkur
Sambands íslamskra dómstóla,
sem berst gegn henni, hefur farið
vaxandi undanfarin misseri. Sam-
bandið náðu höfuðborg landsins,
Mógadisjú, á sitt vald í síðasta mán-
uði. Er það í fyrsta skipti í fimmtán
ár sem einn hópur stríðandi fylk-
inga nær borginni alfarið á sitt vald.
Bandaríkjamenn óttast uppgang
samtakanna enda óttast þeir að nái
þeir landinu á sitt vald muni þeir
koma á íslömsku ríki og veita hryðju-
verkamönnum Al-Qaeda athvarf og
svigrúm til árása annars staðar, líkt
og gerðist í stjórnartíð talíbana í Afg-
anistan. í ljósi þessara áhyggja hafa
Bandaríkjamenn stutt við bakið á
stríðsherrunum sem berjast gegn
Sambandi íslamskra dómstóla.
Neita tengslum við Al-Qaeda
Á dögunum lýsti forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnar Sómalíu, Ali
Mohamed Gedi, því yfir að er-
lendir vígamenn á vegum Al-Qaeda
berðust með Sambandi íslamskra
dómstóla gegn stjórnvöldum og
að hryðjuverkasamtökin hefðu
komið sér upp æfingabúðum í land-
inu. Sheikh Hassan Dahir Aweys,
leiðtogi Sambands íslamskra dóm-
stóla, hefur ítrekað neitað þessum
staðhæfingum. Um helgina sagði
hann í útvarpsviðtali að sambandið
hefði engin samskipti við Osama
bin Laden né hryðjuverkasamtök
hans. Ennfremur hefur sambandið
neitað því að þau ætli sér að stofna