blaðið - 07.07.2006, Blaðsíða 14
22 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaóið
Reulers
Fjórir Italir tilnefndir
Hinn eftirsótti gullknöttur HM verður afhentur á mánudag. Tíu knattspyrnumenn eru
tilnefndir og koma þeir allirfrá þjóðunum sem áttust við í undanúrslitunum.
Sjö af tíu leikmönnum sem til-
nefndir eru til gullknattar HM
koma frá Ítalíu og Frakklandi, sem
munu leika í úrslitaleik keppninnar.
Gullknötturinn er veittur besta leik-
manni mótsins og er valið í höndum
sérstakrar nefndar sem skipuð er
fyrir hvert heimsmeistaramót.
Zinedine Zidane, fyrirliði
Frakklands, er á meðal þeirra sem
tilnefndir eru og sömuleiðis liðs-
félagar hans Patrick Vieira og Thi-
erry Henry. Fyrirliði ítala, Fabio
Cannavaro, er einnig á listanum
sem og samherjar hans Andrea
Pirlo, Gianluca Zambrotta og mark-
vörðurinn Gianluigi Buffon. Þá eru
heimamennirnir Michael Ballack
og Miroslav Klose og Portúgalinn
Maniche einnig tilnefndir.
Franz Beckenbauer, forseti nefnd-
arinnar í ár, segir að valið verði sér-
lega erfitt nú þar sem margir leik-
menn hafi verið framúrskarandi á
mótinu. „Að þessu sinni eru engin
ný nöfn á listanum. Ég á von á því
að það verði einhver af eldri leik-
mönnunum sem hreppir hnossið.
Sjálfum lýst mér best á Henry og
Zidane og reyndar Luis Figo líka, þó
að hann sé ekki á listanum," sagði
Beckenbauer.
Þýski markvörðurinn Oliver
Kahn vann gullknöttinn á HM
2002 og brasilíski sóknarmaðurinn
Ronaldo hlaut verðlaunin árið 1998.
Athygli vekur að enginn úr liði Bras-
iliu og Argentínu er tilnefndur að
þessu sinni.
Tilnefndir tíl gullknattarins:
Andrea Pirlo Italía
Fabio Cannavaro Italía
Gianluca Zambrotta ftalía
Gianluigi Buffon Italía
Patrick Vieira Frakkland
Thierry Henry Frakkland
ZinedineZidane Frakkland
Michael Ballack Þýskaland
Miroslav Klose Þýskaland
Maniche Portúgal
Skeytín inn
Varnarmaðurinn Aless-
andro Nesta mun ekki
leika með ítölum í úr-
slitaleik HM
á sunnudag
vegna meiðsla.
Nesta hefur
verið tæpur allt
mótið og ekk-
ert leikið með
liðinu eftir
riðlakeppnina.
Þjálfarinn Marcello Lippi hafði
talað um að góðar líkur væru á
að hann myndi ná sér fyrir úr-
slitaleikinn en eftir að hafa ráð-
fært sig við lækna liðsins voru
skilaboð Lippis til fjölmiðla
skýr: „Nesta mun ekki geta
leikið á sunnudaginn!“
Wigan hefur gert Birm-
ingham tilboð í sókn-
armanninn Emile
Heskey en félagið leitar nú að
staðgengli fyrir
Jason Roberts,
sem var seldur
til Blackburn á
dögunum. „Em-
ile hefur sannað
sig í úrvalsdeild-
inni og með
landsliðinu og
er frábær kostur. Við höfum
gert Birmingham tilboð sem við
teljum afar rausnarlegt," sagði
Paul Jewell, stjóri Wigan.
Tilboði félagsins í Robbie Sa-
vage, leikmann Blackburn, var
hins vegar hafnað á dögunum.
„Við höfum verið að reyna að
fá til okkar hágæða leikmenn í
sumar og það sýnir best hversu
mikinn metnað við höfum,“
sagði Jewell.
Farðu alla leið !
jífsins með heglbrigðum
GÖMLU GÓÐU TAKTARNIR Franz Beckenbauer sýndi að hann er ekki dauður úr
öllum æðum við athöfn sem Angela Merkel, kanslari Þýskalands, stóð fyrir í gær.
Keisarinn sýndi þar snilli sína með knöttinn og var ekki að sjá að hann hefði gieymt
nokkru frá þvi að hann leiddi Vestur-Þjóðverja til sigurs á HM1974.
Argentínska landsliðsmanninn Hernan Crespo langar aftur í sólina.
Crespo vill til Ítalíu
Hernan Crespo, sóknarmaður
Chelsea, segir að helst af öllu vilji
hann leika á Ítalíu næsta tímabil
og fullyrðir að félagið hafi sýnt því
skilning og sé tilbúið að selja hann.
Crespo var með betri leikmönnum
liðsins á síðasta tímabili og lék stórt
hlutverk í að tryggja Lundúnaliðinu
Englandsmeistaratitilinn annað
árið í röð. Árið áður lék hann með
AC Milan sem lánsmaður og hafði
hann lýst því yfir að hann vildi
ekki fara frá Ítalíu. Forráðamenn
Chelsea neituðu þvi hins vegar og
lék Argentínumaðurinn tilneyddur
með liðinu.
„Það vita allir að mig langar að
komast aftur til Ítalíu og m.a.s.
ráðamenn Chelsea skilja mig vel. Ég
veit að þeir hafa átt í viðræðum við
Inter og Milan og ég get vel hugsað
mér að leika fyrir annað hvort liðið,“
sagði Crespo. Chelsea keypti á dög-
unum úkraínska sóknarmanninn
Andriy Shevchenko sem verður
vafalaust framar Crespo í goggun-
arröðinni og sömuleiðis Fílabeins-
strendingurinn Didier Drogba. Eru
því góðar líkur á að Crespo verði
leyft að færa sig um set fáist rétt
verð fyrir hann.
Jimmy Floyd Hasselbaink
er ekki á leiðinni til Celtic,
samkvæmt umboðsmanni
hans Humphrey Nijman. Has-
selbaink var
ekki boðin
framlenging
á samningi
sínum hjá
Middlesbro-
ugh og hefur
hann í kjöl-
farið verið
orðaður við
fjölmörg félög. Skosku meist-
ararnir voru taldir líklegir til
að hreppa Hollendinginn knáa
en Nijman segir það ekki inni í
myndinni. „Jimmy var tilbúinn
að lækka launin sín hjá Boro en
þeir vildu ekki halda honum,“
sagði Nijman. „Við eigum í við-
ræðum við þrjú úrvalsdeildarfé-
lög á Englandi sem hafa áhuga á
að fá hann.“
Reading hefur gengið frá
kaupum á suður-kóreska
landsliðsmanninum
Seol Ki-Hyeon frá Wolves. Nýlið-
arnir greiða 1,5 milljónir punda
fyrir kappann sem á þó eftir að
gangast undir læknisskoðun.