blaðið - 13.09.2006, Side 12
GENGIGJALDMIÐLA
12 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006
blaöiö
HVAÐ MANSTU?
1. Hvað var Hræðslubandalagið?
2. Hvenær kom Winston S. Churchill til (slands?
3. Hvað heitir nýskipaður lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins?
4. Hvað heitir hinn bandaríski vinur James Bond í Langley?
5. Hver afþakkaði Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í The Godfather?
Bandaríkjadalur KAUR 70,99 SALA 71,33 m
Sterlingspund 133,05 133,69 m
Dönsk króna 12,09 12,16 ■m ■■
Norsk króna 10,88 10,95 WIWB mm
Sænsk króna 9,76 9,81 mmm
Evra 90,20 90,70 BD
Svör:
s - d €
ro o? o
■a r-n ^ '=3 œ ^
= o o O) «2
S =t í
g,3 « “ iu
c o jj,; . o .-t^
‘E ‘S cm 35 o
C/> .Í2 $2 • O —1 TD
o !S, E co x c=
^ á (0 S W 2
Viðskipti:
Dagsbrún
skipt upp
Dagsbrún verður skipt upp
í tvö rekstrarfélög sem taka að
sér megnið af starfsemi Dags-
brúnar. Að auki verður stofnað
þriðja félagið sem tekur við
starfsemi sem ekki fellur undir
kjarnastarfsemi. Auk þessa
er stefnt að sölu fasteigna á
íslandi og í Bretlandi. Þannig á
að lækka skuldir um þrettán til
fjórtán milljarða króna.
Annað félagið er fjölmiðla-
félagið 365 hf. en hitt félagið
verður fjarskipta- og upplýs-
ingatæknifélag sem ber nafnið
Teymi hf.
Viðskipti:
Ker og Kjölur
sameinast
Fjárfestingarfélögin Ker hf.
og Kjölur ehf. munu sameinast
undir nafni þess síðarnefnda
í næsta mánuði en unnið er
að lokaundirbúningi samein-
ingarinnar um þessar mundir.
Forstjóri hins nýja félags verður
Hjörleifur Jakobsson en hann
var áður forstjóri Olíufélagsins
ehf. til margra ára og þar áður
Hampiðjunnar.
Eignir hins sameinaða félags
eru metnar á um 90 milljarða
króna en félagið á meðal annars
eignarhluta í KB-banka, Alfesca
hf. og Samskipum hf.
Réttarhöldin yfir Hussein:
Sýnir enga iðrun
■ Segist hafa verið að berja niður uppreisn ■ Ábyrgur fyrir dauða 182 þúsunda Kúrda
Réttarhöldin yfir Saddam Hussein,
fyrrum forseta íraks, hófust á ný
í Bagdad á mánudag og er honum,
ásamt öðrum sakborningum, gefið
að sök að bera ábyrgð á þjóðarmorði
á Kúrdum í landinu á árunum 1987
til 1988.
Kúrdísk kona sem bar vitni lýsti
miklum óhugnaði í þorpum Kúrda
eftir að íraski herinn hafði gert
eiturefnaárásir á þau en forsetinn
lýsti því yfir í réttarsalnum að þeir
írakar sem bæru ábyrgð á morðum
á Kúrdum hefðu enga ástæðu til að
finna til samviskubits þar sem þeir
hafi verið að berja niður byltingu
gegn stjórnvöldum. Hussein spurði
meðal annars dómarann í gær hvort
það land fyrirfyndist sem ekki beitti
her sínum gegn byltingarmönnum.
Eins og oft áður sýndi Hussein ögr-
andi framkomu í réttarsalnum og
krafðist þess að dómarinn ávarpaði
hann sem forseta íraks og sakaði
vitni um að reyna að reka fleyg á
milli araba og Kúrda.
Ákæruvaldið sakar forsetann
um að bera ábyrgð á morðum á allt
að 182 þúsund Kúrdum í hinni svo-
kölluðu Anfal-herferð á árunum
1987 til 1988. Hussein fyrirskipaði
hana meðal annars til þess að refsa
Kúrdum en forsetinn sakaði þá
um að hafa liðsinnt Irönum í stríði
ríkjanna. Aðgerðirnar fólust í eitur-
efnaárásum, aftökum, loftárásum
og þorp Kúrda voru lögð í eyði.
Frændi Husseins, Ali Hassan al-
Majid, stjórnaði aðgerðunum gegn
Kúrdunum og þótti hann svo stór-
tækur í eiturefnaárásum að hann
hefur æ síðan gengið undir nafninu
„Eiturefna-Ali”.
Hussein hélt því fram við réttar-
haldið í gær að Kúrdar hafi notið
verndar í valdatíð sinni og Anfal-
aðgerðin hafi eingöngu miðast við
að berja á uppreisnarmönnum í
þeirra röðum. Frá því að réttar-
höldin vegna Anfal-herferðarinnar
hófust þann 21. ágúst síðastliðinn
hafa fjölmörg vitni sagt frá skelfi-
legum afleiðingum eiturefnaárása á
þorp Kúrda. Er stjórnvöldum meðal
annars gefið að sök að hafa notað
sinnepsgas og taugagas í árásum á
Kúrda í landinu.
Saddam Hussein bíður enn dóms
vegna ásakana um að hafa borið
ábyrgð á morðum á 148 sjíta-músl-
ímum í Dujail í kjölfar banatilræðis
gegn honum árið 1982. Verði hann
fundinn sekur á hann yfir höfði sér
dauðarefsingu. Málaferlin vegna
Anfal-herferðarinnar eru mun um-
fangsmeiri og er talið að þau muni
standa yfir í marga mánuði.
Velkomin á sjávarréttahátíðina Fiskii
á 80 veitingastöðum um land allt.
Komið og njótið gómsætra fisk- og sjávarrétta
í stórkostlegri sjávarfangsveislu.
Kíktu á www.fiskiri.is
O V/SA ^
Zidane og Materazzi:
Atvikið umdeilda
Zidane lætur Mat-
erazzi 1á það óþvegid
Sögulegar sættir
á Robben-eyju?
Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, sagði í vikunni
að unnið sé að því hörðum höndum
að koma á sáttum milli knattspyrnu-
mannanna Zinedine Zidane og
Marco Materazzi og hugmyndir eru
um að sáttafundurinn fari fram á
hinni kunnu Robben-eyju í Suður-
Afríku, en í eyjunni var alræmt
fangelsi sem hýsti eitt sinn marga
af þekktustu andófsmönnum gegn
aðskilnaðarstefnunni í landinu. Zid-
ane skallaði Materazzi í leik Frakka
og ítala í úrslitum HM í Þýskalandi
eftir að sá síðarnefndi lét ónærgætin
ummæli falla um skyldmenni hins
fyrrnefnda. Zidane var rekinn af
velli í kjölfarið.
Zidane var meðal annars dæmdur
í þriggja leikja bann vegna atviksins
en þar sem hann er hættur að leika
knattspyrnu hefur hann lýst því yfir
að hann hyggist taka út bannið með
því að taka að sér samfélagsvinnu.
Hugmyndir hafa verið uppi um að
sú vinna fari fram á Robben-eyju.
Næsta HM í knattspyrnu fer fram í
Suður-Afríku árið 2010.