blaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 blaöiö Grunaðir úr haldi Þremur ungmennum var sleppt úr haldi lög- reglunnar á Selfossi á þriðjudag. Þau voru handtekin vegna gruns um að hafa stolið bíl á Húsavík og brotist inn í félagsheimilið Árnes á Selfossi. Málið er í rannsókn. Árekstur i Þrengslunum Tveir bílar skullu saman í Þrenglsunum í fyrrinótt. Talið er að tildrög slyssins hafi verið þau að vagn sem var í eftirdragi ann- ars bílsins hafi fokið þannig að ökumaður missti stjórn á bifreiðinni. INNLENT BOLUNGARVIK Byrgið fær ekki styrk Meðferðarheimilinu Byrginu var neitað um styrk frá Bol- ungarvíkurbæ samkvæmt fundargerð bæjarstjórnar. Þar er nýjum bæjarstjóra, Grími Atlasyni, falið að fara yfir styrkbeiðnir liðinna ára og móta sameiginlega stefnu varðandi styrki í samstarfi við stofnanir bæjarins. Frístundaheimili: Enn bíða börnin Enn eru 437 börn á biðlista að skapa pláss fyrir 150 börn frá eftir plássi á frístundaheimilum þeim tíma. Vegna manneklu hefur í Reykjavík samkvæmt tölum frá borgin þurft að grípa til þess ráðs Iþrótta og tómstundaráði Reykja- að vísa börnum frá en um 55 starfs- víkur. 1 þarsíðustu viku voru 587 mennvantartilaðfullmannaallar börn á biðlista og hefur því tekist stöður á frístundaheimilum. Ættleiðingar: Fjölgar síðustu ár „Árlega eru ættleidd á bilinu 20 til 35 börn og því er fjöldinn ör- lítið sveiflukenndur. Síðustu ár höfum við fundið fyrir aukningu,” segir Guðrún Sveinsdóttir, starfs- maður íslenskrar ættleiðingar. Starfsemin er sú eina hér á landi sem hefur löggildingu frá dóms- málaráðuneytinu og annast milli- göngu um ættleiðingar barna frá Indlandi, Kína, Kólumbíu, Tékk- landi og Taílandi. Aðspurð segir Guðrún að flest börn sem hingað komi séu frá Kína. „Kínverjar hafa haldið best utan um þessa þjónustu og kerfið hjá þeim virkar vel,” segir Guðrún. Frá stofnun Islenskrar ættleið- ingar 1978 hafa um 500 börn verið ættleidd erlendis frá. Auglýst eftir framboðum til prófkjörs í Reykjavík Ákveöið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar næsta vor fari fram 27. og 28. október næstkomandi. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti. a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboös- frests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa f prófkjörinu. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu. b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum skv. a-lið. Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðis- menn, búsettir i Reykjavík, skulu standa að hverju framboöi og enginn flokks- maður getur staðið að fleiri framboöum en 10. Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi, helst á tölvutæku formi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík [ Valhöll, Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 17.00, 6. október 2006. Eyðublöð fyrir framboð og æviágrip er hægt að fá á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins eða á heimasiðu flokksins www.xd.is Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.ls w Meðlagsgreiðendur í vanda Algengt er að meðlagsgreiðendur neyðist i svarta atvinnustarfsemi eftir i vanskil er komið. Viðmælandi Blaðsins hefur ekki verið á skrá i fimmtán ár til að komast undan innheimtukerfi hins opinbera. Meðlagsgreiðendur neyðast til að stunda svarta: Hefur ekki verið ■ ■ ■ w mm m w w til i fimmtan ar ■ Stundað svarta atvinnustarfsemi í fimmtán ár ■ Geta ekki veitt börnum sínum neitt á eigin forsendum ■ Skuldar yfir þrjár milljónir í meðlög Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Eftir að maður kemst í vanskil þá stefnir aðeins í gjaldþrot og ég þarf hreinlega að stunda svarta atvinnu- starfsemi svo að hið opinbera nái ekki tökum á mér. í raun má segja að ég hafi ekki verið til í fimmtán ár,” segir faðir 21 árs gamallar stúlku sem síðast liðin fimmtán ár hefur þurft að stunda svarta at- vinnustarfsemi. Þegar dóttir hans var sex ára gömul skildi hann við barnsmóðurina og í kjölfarið flutti hún erlendis án þess að hann hefði eitthvað með það að segja. Sam- kvæmt lögunum ber forsjárlaust foreldri allan kostnað af umgengni við barnið og því þurfti faðirinn að leggja út í mikinn kostnað til þess að sjá dóttur sína nokkrum sinnum á ári. „Allur minn peningur fór i að borga ferðalögin ogþví lenti ég í van- skilum með meðlögin. Ég leitaði til lögfræðings hjá Innheimtustofnun sveitarfélagana og þeir sögðu mig réttlausan með öllu og ég skyldi bara standa í skilum,” segir faðir- inn. „Eftir það ákvað ég hreinlega að hunsa algjörlega meðlögin því þetta er bara ekki sanngjarnt. 1 dag er þetta komið yfir þrjár milljónir í vanskil og ég er ekki skráður fyrir neinum eignum. Ég er orðinn alveg tilfinningalaus fyrir þessu kerfi.” Ég erorðinn alveg tilfinn- Ingalaus fyrir meðlagskerfinu Ónefndur faölr Umgengnirréttur hunsaður Faðirinn segir fjölda meðlags- greiðenda í neðanjarðarhagkerfinu vera töluverðan og þegar í pyttinn sé komið eiga viðkomandi erfitt með að vinna sig upp úr því. Agnar Helgi Arnarsson, tekur undir það og segir undarlegt að ekki sé tekið tillit til umgengnisréttar. „Dóttir mín er mikið hjá mér þannig að ég legg mikið út í hennar uppeldi. Það er hvorki tekið tillit til þess né heildarteknar beggja for- eldra,” segir Agnar. “Ég hef ekki lent í vanskilum ennþá og tel mig heppinn því það er mjög erfitt að komast út úr vand- ræðunum þegar þangað er komið,” segir hann. Eitt og hálft meðlag Agnar Helgi bendir á þá skekkju í meðlagskerfinu að aukameðlag reiknist með einstaklingum sem hafa tekjur yfir 270 þúsund krónum. Slíkt hafi upphaflega verið ætlað hátekjumönnum en sé í engu sam- ræmi við raunveruleikann. „Ég er skyldaður til að borga eitt og hálft meðlag því að eftir Tryggja þarf sam- eiginlegan um- gengnisrétt i stað peningagreiðslna Agnar Helgi Arnarsson faðir skilnaðinn þurfti ég að bæta við mig vinnu vegna meðlagsins sem skekkti myndina ennþá frekar,” segir Agnar Helgi. „Ég leitaði til Björns Bjarnasonar vegna málsins og hann hafði nákvæmlega engin raunhæf svör á reiðum höndum.” Kærleikur framyfir peninga Aðspurður segir Agnar Helgi einu lausnina vera þá að taka út peningagreiðslur í kerfinu og tryggja jafnan umgengnisrétt í staðinn. Ef slíkt kæmist á væru for- eldrar jafnir i alla veru því að í dag er enginn trygging fyrir því að með- lagsgreiðslur skili sér til barnsins. „Kerfið eins og það er í dag kemur alveg í veg fyrir að meðlagsgreið- endur geti veitt börnum sínum eitt- hvað á eigin forsendum. Ég dreg i efa að margar mæður taki það sér- staklega fram að viðkomandi flík eða hlutur sé sérstaklega frá föð- urnum,” segir Agnar Helgi. „Ef foreldrum er tryggður sam- eiginlegur umgengnisréttur leysist málið og í staðinn fyrir peninga sýni foreldrar börnum sínum jafnan kærleik,” segir hann.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.