blaðið

Ulloq

blaðið - 22.09.2006, Qupperneq 6

blaðið - 22.09.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 blaöiö Cheerios er trefjaríkt og sykurlítið og fer vel í litla og stóra maga Cheerios Mikilvægasta máltíö dagsins Aflaverðmæti eykst Aflaverðmæti íslenskra skipa nam fjörtíu millj- örðum á fyrri hluta ársins 2006 samanborið við 37,3 milljarða á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur aflaverðmæti því aukist um 2,7 milljarða, eða 7,3 prósent. Dularfullur gleraugnaþjófur Rúmlega tvítug stúlka hefur kært þjófnað á gleraugum. Ekki er vitað hvað þjófinum gekk til enda eru gleraugu stúlkunnar þeirrar gerðar að þau nýtast aðeins eiganda sínum. Gleraugu geta verið dýr og því er eignartjónið fyrir stúlkuna talsvert. Formaður Skotvíss: 60 þúsund rjúpur verði skotnar ■ Stjórnvöld stefna að því að takmarka veiðina við 45 þúsund fugla ■ Til athugunar að fella niður tolla á villibráð Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@þladid.net Rjúpnaveiðitímabilið er óbreytt, frá 15. október til 30. nóvember, en veiðar verða óheimilar á mánu- dögum, þriðjudögum og miðviku- dögum. Sölubann á rjúpu er enn í gildi og svæði á Reykjanesskaga verður áfram friðað. Stefnt verður að því að takmarka rjúpnaveiðina við 45 þúsund fugla en í fyrra er talið að um 70 til 75 þúsund fuglar hafi verið veiddir. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tilkynnti í gær um fyrirkomulag veiða á rjúpu í haust. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotvíss, segir raunhæft að áætla að um 60 þúsund fuglar verði veiddir, en Jónína segir að ef veiðimenn standi saman muni takast að halda veiðinni innan marka. „Við erum mjög sátt við þessa ákvörðun ráðherra. Veiðidögum fækkar um átján frá því í fyrra og það er í samræmi við að við högum sókninni eftir stærð stofnsins," segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skot- víss. „Þessar reglur miðast við að menn geti veitt sínar jólarjúpur og ég held að það ætti að vera tækifæri til þess.“ Sigmar segist hins vegar ekki hafa trú á því að unnt verði að takmarka veiðina við 45 þúsund Sjálfbærar velðar markmlðlð Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fugla. „Ég myndi nú telja að það væri raunhæft að áætla að um 60 þúsund rjúpur verði veiddar á þessu tímabili," segir Sigmar, „enda er það allt í lagi að mínu mati.“ Á blaða- mannafundi sem ráðherra hélt í gær kom fram að langflestir veiðimenn hafi orðið við áskorun um að stunda hófsemi við veiðarnar og segist Sig- mar sammála því. „Yfirvöld hafa hins vegar ekki staðið sig nægilega vel í eftirlitinu. Það hefur verið afar bágborið eftirlit með sölu á rjúpum og sömuleiðis með því að menn fari eftir settum reglum við veiðarnar. Það eftirlit verður að herða,“ segir hann. „Þegar við erum að tala um 45 þús- und fugla þá er miðað við að veiði- kortshafar séu um fimm þúsund og hver og einn veiði þá um níu rjúpur á mann,“ segir Jónína Bjartmarz um- hverfisráðherra. „Við höfum verið í ákveðinni siðbót um að menn veiði ekki meira en þeir þurfa á sitt hátíð- arborð og ef allir standa sig í þessu förum við ekki upp fyrir þetta við- mið.“ Jónína segir að ef stofninn verði ekki stærri næsta haust verði að grípa til ráðstafana. „Við miðum okkar aðgerðir við sjálbæra nýtingu á stofninum. Við verðum því öll að bera sameiginlega ábyrgð." Jónina segir að í samstarfi við dómsmála- ráðuneyti verði haft samstarf um eftirlit og að fylgst verði með veið- unum úr lofti eftir því sem kostur verður á. Sigmar segir að ráð við því að stemma stigu við of mikilli veiði sé að fella niður tolla á innfluttri villi- bráð. Jónína segir að þá hugmynd sé vert að skoða. „Skotvís fór fram á það við mig að sá möguleiki yrði kannaður í samráði við landbún- aðar- og fjármálaráðherra, að lækka eða fella niður vörugjöld á innfluttri villibráð. Þeir vilja meina að ef fram- boð myndi aukast á villibráð í versl- unum myndi draga úr ásókninni. Það má til sanns vegar færa og ég mun taka þetta til athugunnar og ræða þetta við þá ráðherra sem hlut eiga að máli.“ Ekki ogn við þjoðaröryggi: Netflakk ekki refsivert Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Ríkislögreglustjóraembættiðrannsak- aði ábendingu sem það fékk um óeðli- legan áhuga manns á sprengjugerð og sprengjuefnum á síðasta ári. Eftir að upplýsingarnar höfðu verið skoðaðar kom í ljós að ekki var tilefni til frek- ari meðferðar af hálfu embættisins samkvæmt Jóni H.B. Snorrasyni sem gegnir embætti ríkislögreglustjóra 1 fjarveru Haralds Johannessen. Ríkislögreglustjóraembættið fer með rannsókn slíkra mála og fær af og til ábendingar á ári hverju sem eru skoðaðar ef tilefni er til. Netflakk löglegt Ekkiþótti ástæða til þess að rannsaka mál einstaklings á síðasta ári vegna mikils áhuga á sprengjugerð. Aðspurður segir Jón ábendingu ekki næga ástæðu til þess að kanna netnotkun manna eða óeðlilegan áhuga á einhverju málefni enda slíkt ekki refsivert. Dómsúrskurð þarf til þess að fylgjast með netferðum manna og þarf rökstuddan grun um að einstak- lingur ætli sér að fremja brot. Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður telur óeðlilegt ef menn ætla sér að skoða netnotkun einstak- linga áður en þeir fremja glæp, nema fyrir liggi rökstuddur grunur lögregl- unnar. „Allir tíu ára strákar skoðuðu það sama þegar þeir voru litlir,“ segir hann.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.