blaðið - 22.09.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
blaöið
mmmrn
Slakað á reglum um handfarangur
Bresk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að slakað
yrði á reglum um handfarangur í farþegaflugi en
reglurnar voru hertar fyrir nokkru eftlr að lögreglu
tókst að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á flug-
vélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna.
Vaxtahækkunartímabili lokið?
Bandarískir sérfræðingar telja að seðlabankinn sé
hættur að hækka stýrivexti í bili og að vaxtastigið
verði óbreytt það sem eftir lifir árs. Sumir hagfræð-
ingartelja að seðlabankinn byrji að lækka vexti næst-
komandi vor til þess að vega á móti minni hagvexti.
íran mest ógnin
Tziþi Livni, utanríkisráðherra ísraels, lýsti því yfir á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna að klerkastiórnin í (ran væri mesta ógnin við
frið í heiminum. Hún vilji útrýma Israel og sækist hart eftir því að
komast yfir gereyðingarvopn til þess að ná því markmiði. Tzipi hvatti
ríki heims til þess að standa saman gegn ógninii.
NA-kjördæmi:
Halldór hættir
þingmennsku
Halldór Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks frá árinu 1979,
hefur ákveðið
að gefa ekki
kost á sér til
áframhaldandi
þingmennsku.
Halldór leiddi
lista Sjálfstæð-
isflokksins í
Norðausturkjör-
dæmi. Arn-
björg Sveinsdóttir þingflokksfor-
maður sækist eftir fyrsta sæti
á lista sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu í komandi kosningum.
Vasa
línan
*\i>
Fer vel í veski
Ölvaður gestur í dýragarði:
Kínverji bítur
pöndu til baka
Zhang Zinyan, sem er frá Henan-
héraði í miðju Kína, hafði setið við
bjórdrykkju á veitingastað rétt við
dýragarðinn í Peking á þriðjudag.
Eftir að hafa drukkið nokkra bjór
afréð hann að fara í dýragarðinn
til þess að skoða pönduna Gu Gu.
Þegar hann kom að búrinu sem
Gu Gu býr í kom yfir hann óstjórn-
leg löngum til þess að faðma pönd-
una. Zinyan stökk yfir girðinguna
sem aðskilur Gu Gu frá dýragarðs-
gestum og ætlaði að taka utan um
hana. Pöndunni, sem var steinsof-
andi, brá þegar hinn óboðni gestur
nálgaðist og brást við með því að
bíta hann í hægra lærið. Ziniyan var
ekki ánægður með þessi viðbrögð
og sparkaði því í pönduna sem brást
ókvæða við og beit hann í vinstra
lærið. Ziniyan gat þá ekki hamið
sig og svaraði í sömu mynt og beit
pönduna í bakið. Aðrir dýragarðs-
gestir kölluðu á vörð sem skildi að
mann og björn með því að sprauta
vatni á pönduna. Pandan hlaut ekki
skaða af átökunum en flytja þurfti
Ziniyan á sjúkrahús og sauma þurfti
fjölda spora í fætur hans.
í viðtali við Æskulýðsdagblað Pek-
ingborgar sagðist Zhang Ziniyan
Panda Kínverji sem sat að sumbli
ákvað að bregða sér í dýragarðinn.
oft hafa séð pöndur í sjónvarpinu
og hann hafi staðið í þeirri mein-
ingu að þær væru vinalegar og
miklir mannvinir. Enginn hafi sagt
honum að þær gætu verið skaðræð-
isskepnur sem bitu frá sér. Ziniyan
sagðist ennfremur hafa verið hálf-
fullur og hann hafi bara langað til
að faðma pönduna.
Yfirmenn dýragarðsins hafa
ákveðið að leggja ekki fram kæru
gegn manninum enda telja þau að
hann hafi þolað nægilega refsingu
frá pöndunni Gu Gu fyrir athæfið.
Hvar stendur þú
í launastiganum?
Ný launakönnun VR er komin út. Kynntu þér niðurstöður
hennar á www.vr.is og berðu mánaðarlaun þín saman
við kjör annarra félagsmanna.
Virðing
Réttlæti
VR : KRINGLUNNI7 103 REYKJAVÍK ; S. 510 1700 F. 510 1717 : WWW.VR.IS
Umferðarþungi á hraðbrautunum
Sex stærstu bifreiðaframieiðendurnir
sóttir til að greiða fyrir mengun af
völdum bila þeirra.
Milljarðalögsókn í Bandaríkjunum:
Bílafyrirtæki
borgi brúsann
■ Fyrirtækin valdi milljaröaskaða ■ Ákærunni
fagnað ■ Kosningabrella ríkissaksóknara
Ríkissaksóknari Kaliforníu í
Bandaríkjunum hefur kært sex
stærstu bifreiðaframleiðendur
landsins fyrir að bera ábyrgð á óhóf-
legri losun gróðurhúsalofttegunda
frá bifreiðum. Með því hafi þeir
valdið skaða upp á marga milljarða
fyrir íbúa ríkisins.
Bill Lockyer ríkissaksóknari lagði
kæruna fram síðastliðinn miðviku-
dag og er hún sú fyrsta sinnar teg-
undar í heiminum. Ákærunni hefur
verið fagnað í herbúðum umhverfis-
verndunarsinna meðan aðrir telja
hana til marks um kosningabrellu
og lýðskrum. Bílaframleiðendurnir
sem eru ákærðir eru General Motors,
Toyota, Ford, Honda,
Chrysler og Nissan.
Ákæran kemur í kjöl-
far lagasetningar ríkis-
þings Kalíforníu sem
takmarkar losun gróð-
urhúsalofttegunda.
Samkvæmt þeim
lögum þurfa til
að mynda bifreiða
framleiðendur að
dragaúrlosungróð-
urhúsalofttegunda
frá bílum sínum i
fjórðung fyrir árið 2020.
Lockyer segir að útblástur frá bílum
beri ábyrgð á þriðjungi af allri losun
gróðurhúsalofttegunda í Kaliforníu-
ríki og þar af leiðandi er hann meg-
invaldur að þeim mikla skaða sem
hækkun hitastigs hefur haft á um-
hverfið. Að sögn Lockyers hafa gróð-
urhúsaáhrifin valdið umhverfis-
spjöllum og skaðað hagkerfi ríkisins
og landbúnað. Stjórnvöld hafi þurft
að eyða gríðarlegum fjárhæðum til
þess að stemma stigu við þessum
áhrifum og nú sé kominn tími til að
bifreiðaframleiðendur axli ábyrgð á
sínum þætti í skaðanum.
Ákæra saksóknarans er sérstök að
því leyti að hún snýst ekki um að bif-
reiðaframleiðendurnir hafi brotið
umhverfisverndunarlög heldur að
þeir beri ábyrgð á að hafa skaðað
almannahagsmuni. Byssuframleið-
endur, tóbaksfyrirtæki og skynd-
bitakeðjur hafa verið ákærð á sömu
forsendum í Bandaríkjunum síð-
ustu ár. Lögfræðingar hafa skiptar
ISSA
Bill Lockyer Ríkissaksóknarinn er
sagður reyna að tryggja sjálfan sig.
skoðanir á því hvort
slík ákæra gegn
bílaframleiðend-
unum gangi upp.
Sumir sérfræð-
ingar benda á að rík-
issaksóknari eigi mögu-
leika á að vinna málið nái
v ''iunvci bb ^ann a^ sannfæra dóm-
^y^vHRYSLER arann um að skaðinn
sem bifreiðafram-
leiðendur valdi sé
óumdeildur og um-
talsverður. Talsmaðúr Bandalags
bifreiðaframleiðenda i Bandaríkj-
unum segir hins vegar út í hött að
höfða mál byggt á skaða á almanna-
hagsmunum. Hann segir að með
málinu sé verið að setja pólitískt
mál í hendur dómsvalds sem hefur
ekkilögsögu í málinu. Bifreiðafram-
leiðendurnir vilja meina að málið
opni mönnum leið fyrir ákærur á
hendur öllum þeim sem nota jarð-
efnaeldsneyti yfirhöfuð.
Umhverfisverndunarsamtök hafa
fagnað ákærunni ákaft. Stjórnvöld
í Kaliforníu hafa fengið mikið hrós
fyrir að hafa tekið sér stöðu í fylk-
ingarbrjósti baráttunnar gegn gróð-
urhúsalofttegundum. En ekki eru
allir jafn hrifnir. Margir telja ólík-
legt að ákæran gegn bifreiðafram-
leiðendunum standist fyrir rétti og
ákæran sé fyrst og fremst liður í
baráttu Bills Lockyers til að tryggja
sérkosninguíembætti fjármálaráð-
herra Kaliforníu í nóvember.