blaðið - 26.10.2006, Side 5
blaðið FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
I 27
Undirbúningur vörubíla fyrir veturinn
Snjókeðjur, grófdekk og noglar nouðsynleg í vetrorumferðinni
Af kuldanum síðustu daga að
dæma má svo sannarlega segja að
veturinn sé genginn í garð, þó snjór-
inn láti bíða eftir sér. Bifreiðaeig-
endur þurfa því að huga að bílum
sínum og kanna hvort þeir séu vel
búnir fyrir veturinn og snjóinn.
Það sama þurfa atvinnubílstjórar
að gera en stórir vörubílar þurfa
ekki síður að vera vel útbúnir fyrir
mikinn akstur á komandi vetri.
Knútur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands vörubif-
reiðastjóra, segir að það sé fyrst og
fremst dekkjabúnaður sem atvinnu-
bilstjórar þurfa að huga að. „Það
er nauðsynlegt að vera með gróf
dekk með góðu mynstri og nagla
eftir þörfum. Dekkin þurfa að vera
mjög gróf til að halda svo stórum
bíl á götunni. Það er því ekki mikið
um heilsársdekk sem slík en frekar
nagladekk eða svokölluð icegrip-
dekk. Nagladekkin eru vinsæl hjá
þeim sem eru að keyra á þannig
leiðum, austur fyrir fjall eða til
Keflavíkur eru til dæmis vegir þar
sem glær hálka myndast."
Þýðingarmikið að Ijósa-
perur séu í lagi
Knútur segir að auk þess séu
margir sem nota snjókeðjur og það
er eitt af því sem þarf að vera til
staðar í stórum bílum sem keyra
á veturna. „Það þarf að vera hægt
að grípa í keðjurnar ef þess þarf.
Keðjurnar gefa meira grip á dekkj-
unum því á þeim eru gaddar sem
stingast niður. Hins vegar getur
verið erfitt að keyra með snjókeðj-
urnar á og það er nauðsynlegt að
keyra hægt á þeim og stutta spotta í
einu,“ segir Knútur og bætir við að
auk þess þurfi lika að huga að þessu
almenna eins og að nóg sé af kæli-
vatni og frostlegi á bílnum. „Ljósa-
Erfitt að keyra á keðjum „Keðj-
urnar gefa meira gríp á dekkjunum
því á þeim eru gaddar sem stingast
niður. Hins vegar getur verið erfitt að
keyra með snjókeðjurnar á og það er
nauösynlegt að keyra hægt á þeim
og stutta spotta í einu.“
perur þurfa líka að vera í lagi en
það er mjög þýðingarmikið því það
er jafnvel keyrt allan sólarhringinn.
Það er því brýnt að fylgjast með því
að það sé í lagi og það þarf að skoða
þessa stóru bíla oft. Eiginlega þarf
að fara yfir þá á hverjum degi hvað
þetta varðar.“
Færðin skoðuð á síðu
Vegagerðarinnar
Hins vegar segir Knútur að yfir-
breiðslur í efnisflutningi séu ekki
notaðar meira á veturna en sumrin.
,Yfirbreiðslur eru eingöngu fyrir
fínt efni og eru mjög góðar til slíks
en þær þola mjög takmarkað rok.
Þær fjúka bara af og eru jafnvel stór-
hættulegar. Umræðan hér á landi
um yfirbreiðslur hefur verið mjög
villandi og mjög röng. Þetta er eitt-
hvað sem fjölmiðlar hafa blásið upp
í vitleysu. Bæði getur það stórslasað
bílstjórann að koma yfirbreiðsl-
unni á og eins getur það orsakað
stórslys ef yfirbreiðslan fýkur af í
umferðinni. Sumum tegundum yf-
irbreiðslna er rúllað upp með kefli á
hliðunum sem verður eins og spjót.
Bílstjórinn þarf að fara út og festa
ábreiðuna en það er engin aðstaða
fyrir bílstjórann til að gera þetta
og það getur orsakað stórslys þegar
hann er hangandi utan á bílnum
að festa yfirbreiðsluna." Að end-
ingu segir Knútur að á veturna sé
nauðsynlegt að kynna sér færðina.
,Það er gott að gera það á heimasíðu
Vegagerðarinnar og það er eitt af
því sem menn eru að tileinka sér í
auknum mæli, að kynna sér færð
og reyna að haga akstrinum eftir
veðurskilyrðum á hverjum tíma. At-
vinnubílstjórar skoða vefinn áður
en lagt er af stað í ferðina og svo er
kannski kíkt aftur ef stoppað er á
leiðinni. Þetta er því algjör bylting
og Vegagerðin á heiður skilinn fyrir
þennan vef sinn.“
ófum til afhendingar strax
Nýir 2007. Ford 2.2 Lt 130 h«»töíl Commdndraii dtesiíl.
ABS £BD Aksturstðlva ■ Útihitamælir - Leðtir stýri - Armptiðdf
á sætum. Loftk«ling 2 öryggtspúdar - Útvarp • Geistaspilari
mcð fiarstýnngu. Ríifm. I rúöum • Girskipting f maetaborði
• Þjófavöm með íjarstýriogu. Lengd 6,57 ■ Svefnpláss fi
- Tvlbrcitt rúm áftur i. t
- Stórd
s fyrir fjóra
Rjapunkia^Öryjgisbcfti fyrir fjóra
k215/75 R16
Vorð 4.950.000 kr. með vsk. skráður og skoðaður.
Nýr Mcrccdes Bens 2650 Tveggjd dufa Kojuhús mcð háum
toppi og spoílerum Sjálfskiptur • Loftpúðerfjöðrun að aftan
- Sturtukerfi • Nádrif - Reiarder og fleira.
Verð kr. 9.100.000 e vsk. • Skráður og skoðaður.
Man 26.430 fyrst skráður Descmber'2005. Tvcggjadrifa
dráttarbfll á lofti að aftan með sturtudælu. Nádrif - XLHús
með einni koju Sólskyggni Kælibox - Simkerfi - Útvarp
og geislaspiUn • Ralm. I rúðum og speglum • loftkaelmg.
Ekinn aðeins 48,000 km.
Verð 6.800.000 + vsk. skráður og skoðaður.
;í;>
ilexporf a Islandi e
Bóas sími 0049-175-271-1783 • Bóas gsm. 892 - 5007 • www.bilexport.dk boas@bilexport.dk
LOFTA
STOÐIR
LEI6A - SALA
málaðar og galvanís.
Alltaf fyrirliggjandi.
KVSRNIR
;) Tunguháls 15
sími; 564 6070
www.kvamir.is
EFNITIL
^ BYGGINGA
Eigum ávalt á lager helstu
plasthluti t.d. mótarör,
kóna, tappa, plötustóla,
sökkuldúk, þrikantalista ofl.
► ► ►
KSARNIR
r) Tunguháls 15
sími: 564 6070
www.kvamir.is
Eigum til afgreíðslu
hinar vinsæiu
Járnabeygju-
vélar og klippur
Kynnið ykkur
verð og gæði
KNARNIR
ð Tunguháls 15
simi: 564 6070
www.kvarnir.is
Mótaolia
Stálúðabrúsar
Járnabakkar
Plastefni
Steypusiló
Vetrarmottur
K\ARNIR
* Tunguháls 15
sími: 564 6070
www.kvamir.is