blaðið - 26.10.2006, Side 12
34 I VINNUVÉLAR
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaðiö
Lýsing á vinnusvæðum
Nú fer sá tími í hönd að dagurinn
styttist og þörfin á góðri vinnulýs-
ingu verður. meiri. Mjög miklar
framkvæmdir eru í gangi á höfuð-
borgarsvæðinu og ljóst er að víða
þarf góða lýsingu á vinnusvæðum.
Það hefur færst í vöxt að byggingakr-
anar séu reistir á vinnusvæðinu og
ljósin á þeim látin nægja sem vinnu-
lýsing. Það er líka algengt að útbúin
séu ljósamöstur á þungum stein-
steypublokkum sem ekki verða færð
til né snúið nema með vélum. Þessi
ljósamöstur er oftar en ekki þung
og ómeðfærileg þannig að ekki er
auðvelt að snúa þeim né færa þau.
Auðveld í notkun
Mest ehf. býður upp á þægilega
lausn á þessum málum en um er
að ræða ljósamöstur sem hægt er
að hafa frá 2,2 metra háum og upp
í 15 metra hæð. Þessi ljósamöstur
eru afar auðveld í notkun, auðvelt
er að færa þau til og snúa þeim á
þann hátt að þau nýtist sem best á
vinnusvæðinu. Það tekur því aðeins
nokkrar mínútur að setja upp full-
komna lýsingu á vinnusvæðinu. Á
möstrunum eru allt að 6 kastarar
með allt að 2000 W „Metal Halide“-
ljósum, en þau gefa verulega meiri
birtu en hefðbundin halógenljós.
Hægt er að fá þessi ljósamöstur
með innbyggðum rafala sem getur
séð öðrum ljósum fyrir rafmagni
og einnig er hægt að nýta þau sem
orkugjafa á vinnusvæðinu.
Sérð þú tækifæri á vexti?
Tækifæri leynast allstaðar!
"Þegar þú hefur komið auga á atvinnu-
tækifæri sem hentar þínum þörfum, getum
við aðstoðað með sérsniðinni ráðgjöf í bland
við persónulega þjónustu sem byggir á
sérþekkingu okkar i fjármögnun atvinnu-
tækja."
Sveinn Þórarinsson
^Ráðgjafi, fyrirtækjasvið
LYSING
Fjármögnun í takt vió þínar þarfir
Suðurlöndsbraiit 22
Glerárgölti 24-26
Sími S-to 'S°° Fox 5.^0 'SOS
www.lysing.is
Vinnuvélar
á Netinu
Netið leikur sífellt stærra hlutverk
í lífi fólks enda orðið einn stærsti
miðill samtímans. Ökumenn
vinnuvéla eru þar engin undan-
tekning enda getur verið gott að
skiptast á reynslusögum, ræða
saman um bestu dekkin, nýju
vélarnar og margt fleira. Netið er
tilvalinn vettvangur fyrir slík skoð-
anaskipti enda hægt að sinna
samskiptunum heiman að frá sér
og jafnvel á ferðinni, sérstaklega í
Ijósi þess að atvinnubílstjórar vin-
na oftar en ekki á öllum tímum sól-
arhringsins. Það má finna margar
skemmtilegar síður á Netinu sem
eru helgaðar atvinnubílstjórum
og þeirra skoðanaskiptum að
ógleymdum flottum myndum af
helstu tryllitækjunum.
www.geirinn.is
Á geiranum má finna alls kyns greinar,
allt frá dekkjaumræðum yfir í fréttir af
vörubílategundum erlendis og allt þar á
milli. Notendur eru tæplega þrjú þúsund
og því Ijóst að um margt er að ræða.
www.simnet.is/dori
Islensk síða með myndum af alls kyns
trukkum á ferð og flugi. Þekkt siða og
jafnvel með elstu trukkasíðunum á
Islandi.
www.pwt.be
Belgísk trukkasíða þar sem áhugasamir
geta til að mynda sent inn myndir af
sínum vörubílum og fengið birtar. Auk
þess má þar finna fullt af myndum af
alls kyns trukkum.
www.lastbilfoto.dk
Dönsk síða með myndum af alls kyns
trukkum, dönskum og annarra þjóða.
www.supertrucks.nl
Hollensk spjallsíðá um trukka og vinnu-
vélar þar sem spjallað er um einstök
merki auk þess sem þar má sjá myndir.
http://www.ltmuseum.co.i
Áhugaverð síða um breska samgö
safnið.
http://www.ok-mining.de/
Alvöru síða með álvöru tryllitækjum.
Risastór tæki sem mörg hver vega nokk-
urhundruð tonn.
http://www.hankstruckpictur-
es.com/
Bandarísk síða með alls kyns trukka-
myndum, ferðasögum og mörgu fleiru.
http://www.mining-power.
de/ehome.html
Hollensk síða með risastórum vinnuvél-
um af öllum tegundum.
http://www.showtruckbilder.
de/
Þýsk trukkasíða með myndum af flott-
um og vel skreyttum trukkum sem flestir
bera skemmtileg nöfn.