blaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006
blaðiö
UTAN ÚR HEIMI
Á þriðja tug féllu
29 létust í bardögum milli lögreglu og uppreisnar-
manna í marxistahreyfingunni FARC í Tierradentro í
norðurhluta Kólumbíu á miðvikudag. Uppreisnarmenn-
irnirgerðu áhlaup á lögreglustöð og féllu 17 lögreglu-
menn, 11 uppreisnarmenn og einn óbreyttur borgari.
Styðja ekki þvingunaraðgerðir
Rússnesk og kínversk stjórnvöld hafa gefið til
kynna að þau styðji ekki þvingunaraðgerðir gegn
(rönum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Bretar,
Frakkar og Þjóðverjar vilja beita þvingunaraö-
gerðum gegn klerkastjórninni í Teheran.
SAMEINUÐU ÞJOÐIRNAR
Panama í öryggisráðið
Stjórnvöld í Gvatemala og Venesúela hafa ákveðið að draga
framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til baka. Allsherj-
arþingið hefur kosið tæplega fimmtíu sinnum á milli Venesúela og
Gvatemala en hvorugu ríkinu hefur tekist að tryggja sér nægilegan
fjölda atkvæða til þess að bera sigur úr býtum.
Prófkjör Samfylkingarinnar:
Iran:
Verðlaunaður
fyrir skopmynd
Marokkómaðurinn Abdollah
Derkaoui fékk fyrstu verðlaun í
alþjóðlegri samkeppni um bestu
skopmyndina um helförina og
hlaut tæpa milljón að launum.
Samkeppnin var haldin af ír-
önum en ákveðið var að efna til
hennar í kjölfar hins svokallaða
skopmyndamáls sem kom upp
eftir að danskt dagblað birti
grínmynd af spámanninum
Múhameð.
Mynd Deraoui sýnir ísra-
elska verkamenn vera að hlaða
öryggisvegg sem smám saman
skyggir á Al-Aqsa-moskuna í
Jerúsalem. Á veggnum er svo
mynd af hinum alræmdu Au-
schwitz-fangabúðum. Að sögn
íranskra embættismanna var
markmið samkeppninnar að
draga fram að Palestínumenn
eru óbein fórnarlömb helfarar-
innar gegn gyðingum í seinni
heimsstyrjöldinni.
Leifsstðð:
Fleiri fljúga
til landsins
Mbl.is Samtals komu 685 þúsund
farþegar til landsins um Keflavík-
urflugvöll fyrstu níu mánuði árs-
ins, borið saman við 599 þúsund
farþega á sama tíma í fyrra. Þetta
er 14,2 prósenta aukning.
Síðastliðna tólf mánuði, til loka
september, komu 842 þúsund
farþegar til landsins og er það 13,7
prósenta aukning frá tólf mán-
uðum þar á undan, að því er segir
í Hagvísum Hagstofu íslands.
Baráttan mest milli
Jóns og Björgvins
■ Stóriöjan hefur veikt flokkinn ■ Peningamál hindra framboð kvenna
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég held að Lúðvík Bergvinsson nái
því að verða í fyrsta sæti og að slagur-
inn um annað sæti verði harðastur
á milli Björgvins G. Sigurðssonar
og Jóns Gunnarssonar." Þetta er mat
Árna Gunnarssonar, fyrrverandi al-
þingismanns og framkvæmdastjóra,
um úrslitin í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi á laugar-
daginn. Alls gefa sautján manns
kost á sér í prófkjörinu og sækjast
ofangreindir þingmenn allir eftir
fyrsta sætinu.
Árni bendir á að atkvæði frá Vest-
mannaeyjum geti vegið mjög þungt
þótt atkvæðamagnið sé Reykjanes-
megin. „Árborg vigtar líka tals-
vert og myndi þá líklegi
vigta fyrir Björgvin á móti
Vestmannaeyjafylgi Lúð-
víks. En kannski ræðst
þetta af atkvæðunum á
Reykjanesi.”
Það er skoðun Árna
að Róbert Marshall
fréttamaður, sem sækist
eftir fyrsta til öðru sæti, nái
einhverju fylgi til sín. „Það er ekki
spurning. En ég veit ekki hvort hann
vegur að þessum mönnum sem eru
hér fyrir. Ég hygg að það geti orðið
svolítið erfitt fyrir hann
þótt hann sé úr
fjölmiðlaheim-
inum.“
Af frambjóð-
e n d u n u m
sautján eru
aðeins fimm
konur og er
tveimur þe-
irra stillt upp
í annað til
þ r i ð j a
FRAMBJOÐENDUR
I PRÓFKJÖRI:
1. sæti: Björgvin G. Sigurösson
Jón Gunnarsson
Lúðvík Bergvinsson
1-2. sæti: Róbert Marshall
2. sæti: Hlynur Sigmarsson
2 - 3. sæti: Ragnheiður Hergeirsdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir
Önundur S. Björnsson
2 - 4. sæti: Júlíus H. Einarsson
3 - 4. sæti: Árni Rúnar Þorvaldsson
Guðrún Erlingsdóttir
Hörður Guðbrandsson
3 - 5. sæti: Gylfi Þorkelsson
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir
Unnar Þór Böövarsson
4 - 5. sæti: Bergvin Oddsson
Lilja Samúelsdóttir
sæti, Ragnheiði Her-
geirsdóttur, bæjarfull-
trúa í Árborg, og Sig-
riði Jóhannesdóttur
grunnskólakennara.
Gunnar Helgi
Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmála-
fræði, telur að það geti
verið slæmt fyrir Samfylking-
una, sem haft hefur mikið fylgi
kvenna, ef framboðslistar hennar
endurspegla það ekki. „Ef þetta
virkar ekki hjá Samfylkingunni
sjálfri er það algjörlega ónýtt vopn.“
Árni segir að konur þurfi að ræða
sín á milli hvernig standa megi betur
að framboði þeirra. „Konur eru ekk-
ert öðruvísi skapi farnar en karlar
og það kemur upp ágreiningur um
góðan leiðtoga innan þeirra raða
eins og hjá körlunum. Annað atriði
er peningamál. Það er mjög alvar-
legt því að það stefnir í að þeir einir
geti farið í framboð og prófkjör sem
hafa aðgang að fjármagni. Ég held
að það kunni að vera erfiðara fyrir
konur af ýmsum ástæðum auk þess
sem þær eru passasamari á fé.”
Umræðan um stóriðjuna hefur
veikt stöðu Samfylkingarinnar, að
mati Árna. „Á sama tíma og flokk-
urinn gefur út stefnu um takmark-
aða stóriðju eru þingmenn sem lýsa
því yfir að þeir vilji fara aðra leið. Ég
held líka að yfirlýsingin um tollanið-
urfellingu á matvælum á skömmum
tíma hafi farið illa í þá þingmenn
sem bera hag dreifbýlisins og land-
búnaðarins fyrir brjósti.”
Árni telur að þessi mál hafi breytt
svolítið myndinni af flokknum.
Hann vill að lögð verði meiri áher-
sla áhin klassísku mál jafnaðarstefn-
unnar. „Ég vil að áherslurnar verði
ríkari í málefnum aldraðra og jafn-
réttismálum karla og kvenna.”
Srí Lanka:
Loftárásir á
tamíltígrana
Stjórnarherinn á Srí Lanka
gerði loftárásir á uppreisn-
armenn tamílsku tígranna í
austurhluta landsins í fyrradag.
Engar fregnir bárust um mann-
fall í röðum uppreisnarmanna.
Talsmaður hersins segir að
loftárásirnar hafi verið gerðar til
þessa stöðva stórskotaliðsárásir
tígranna.
í yfirlýsingu frá tígrunum
kemur hinsvegar fram að stjórn-
arherinn hafi gert árásirnar fyrir-
varalaust og að þær séu fyrirboði
um stórfelldar hernaðaraðgerðir
gegn þeim. Fyrr um daginn særð-
ist hermaður og einn óbreyttur
borgari féll í sprengjuárás
tígranna í Vavuniya-héraði.
Frjálshyggiumenn:
Selja bjór í
miðbænum
Ungir frjálshyggjumenn ætla
sér að selja bjór á Lækjartorgi
klukkan 14 í dag til að mótmæla
einokun
ríkisins á
sölu áfengis.
Bjórinn verður
seldur öllum
sem hafa náð
20 ára aldri.
Hlynur
Jónsson, for-
maður ungra
frjálshyggjumanna, segir að þeir
vonist til þess að þetta hristi upp
í stjórnvöldum og segist hann
ekkert kvíða aðgerðum yfirvalda.
Þeir segja að frjáls sala áfengis
þekkist í flestum löndum og því
ætti ísland „ekki að vera fast í
viðjum fortíðar“.
Samkeppni myndi að öllum
líkindum auka verulega þjón-
ustu við neytendur.
Barnahúsgögn sem stækka
Barnahúsgögnin okkar bjóða upp á ótal samsetningarmöguleika og sveigjanleika sem gerir þér kleift að nota
eitt og sama rúmið allt frá því barnið hættir í grindarrúminu og fram á unglingsár.
6 ára
12 ára
iHHCJhiiiJUiumiLit)
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 - www.husgogn.is