blaðið - 03.11.2006, Side 14

blaðið - 03.11.2006, Side 14
blaöið 14 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 HVAÐ MANSTU? 1. Ástsæll veðurfræðingur lét af störfum hjá Veðurstofu (slands í vikunni: Hvað heitir hann? 2. Hver söng lagið um L.M Ericsson? 3. Hvað heitir heimilisköttur Simpson-fjölskyldunnar? 4. Hvað heitir sendiherra Breta á íslandi? 5. Hver orti um Ódysseif hinn nýja? GENGI GJALDMIÐLA Svör: c= w o ffl ■*-* CO 7ö 00 »52 p c. 2 .E « “ c 8 03 > -5 S c «0 E? I? J= co = a oa (/} < -3 o Bandaríkjadalur Sterlingspund Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Evra KAUP 67,52 128,93 11,56 10,43 9,38 86,16 SALA 67,84 129,55 11.63 10,49 9,43 86.64 Þingkosningar í Bandaríkjunum: Demókratar ná meirihluta Demókratar meö naumt forskot í sex lykilríkjum ■ Fjórir kæröir fyrir kjörskrársvik í Missouri Samkvæmt nýrri könnun Reuters-frétta- stofunnar og Zogby- rannsóknarfyrirtæk- isins eiga demókratar raunhæfa möguleika á að fá meirihluta í öld- ungadeildinni í þing- kosningunum á þriðju- dag. Könnunin sýnir að frambjóðendur demókrata hafa naumt forskot í sex af þeim sjö ríkjum þar sem að sitjandi þing- menn Repúblikanaflokksins standa hvað veikastir: Pennsylvaníu, Ohio, Missouri, Montana, Virginíu og Rhode Island. Demókratar þurfa að tryggja sér sex þingsæti á kostnað repúblikana til þess að tryggja sér meirihluta. Þrátt fyrir að vera með forskot í skoðanakönnunum er munurinn á frambjóðendum demókrata og repú- blikana ekki marktækur í þremur af þessum sex ríkjum sé miðað við fjögurra prósenta skekkjumörk og munu því úrslit kosninganna að öllum líkindum ráðast í Virginíu, Montana og Missouri. Demókratar eru svo gott sem búnir að tryggja sér sigur í Ohio, Rhode Island og Pennsylvaníu. Einnig kemur fram í könnun- inni að frambjóðandi repúblikana í Tenn- essee, Bob Corker, er með mikið forskot á demókratann Harold Ford en fram til þessa hefur verið lítill munur á frambjóðendunum. Kjörskrársvik í Missouri Fjórir voru kærðir á miðvikudag fyrir kjörskrársvik í Kansas City í Missouri í Bandaríkjunum. Að sögn stjórnvalda voru vafasöm um- sóknareyðublöð vegna skráningar á kjörskrá í fórum samtakanna AC- ORN, sem mennirnir unnu fyrir, en þau beita sér fyrir aukinni kosn- ingaþátttöku í hverfum fátækra og minnihlutahópa. Ákæran er gefin út af alríkis- stjórninni, en mönnunum er gefið að sök að hafa falsað umsóknir um skráningu á kjörskrá. Rannsóknin er ekki bundin við Kansas City og er nú athugað hvort athæfi sem þetta tíðkist á landsvísu. Embættismenn Skilaboöum komið á framfæri Claire McCaskill er fram- bjóðandi demókrata i Missouri i öldunga- deildarkosningunum. d kjörstjórnar í Kansas City sögðu að ýmislegt gruggugt hefði komið á daginn, sjö umsóknir hefðu borist frá einum kjósanda, látinn maður hefði sótt um skráningu á kjörskrá og sumar um- sóknirnarbárufölskheim- ilisföng, símanúmer og undirskriftir. „Þarna lá að baki einhver ásetn- ingur,“ segir Ray James, sem situr í kjörstjórn Kansas City. „Þetta voru engin mistök.“ Talsmenn ACORN hafa staðfest að samtökin hafi gert yfirvöldum viðvart um athæfi mann- anna. „Við erum mjög ánægð með að þeir voru ákærðir,“ segir Claudie Harris, fulltrúi samtakanna, og tók fram að starfsmenn þeirra fengju greitt tímakaup en ekki í samræmi við fjölda skráðra kjósenda. „Þegar menn svindla svona koma þeir óorði á okkur og það sem við erum að gera.“ Mennirnir hafa þegar verið reknir, en ACORN hefur lagt fram tæplega 40.000 umsóknir fyrir nýja kjós- endur í aðdraganda þingkosning- anna í Kansas City einni. Hinir ákærðu geta átt fimm ára fangelsi og háar fjársektir yfir höfði sér. Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Ef þú bókar bílaleigubílinn heima á íslandi bíður hann þín á áfangastað. Hver leiga færir þér 500 Vildarpunkta að auki. Bókaðu bílinn núna í 5.0 50 600 og tryggðu þér meira öryggi og betri þjónustu á ferðum þínum erlcndis hvert sem leið þín liggur. Stóri bróðir vakandi í Bretland: Mesta eftirlitið á Vesturlöndum Bretland er eftirlitsþjóðfélag og fylgst er með ferðum og gjörðum borgara í mun meira mæli en í nokkru öðru iðnvæddu landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Per- sónuvernd Bretlands hefur unnið. Að sögn Richards Thomas, sem fer fyrir stofnuninni, eru allar líkur á því að eftirlitsiðnaðurinn muni vaxa ört á næstu tíu árum og þörf er á umræðu um hversu mikið eftirlit á kostnað einkalífs sé ásættanlegt. Skýrslan kannaði meðal annars fjölda eftirlitsmyndavéla í landinu, þær upplýsingar um hegðun einstak- linga sem fjármála-, markaðs- og tryggingafyrirtæki hafa aðgang að, hvernig upplýsingar um ltfsýni eru geymdar og hvernig hægt er að kort- leggja daglegt líf einstaklinga með því að hafa aðgang að upplýsingum um kortanotkun þeirra. Thomas segir að í Bretlandi séu 4,2 milljónir eftirlitsmyndavéla á op- inberum stöðum eða ein fyrir hverja fjórtán íbúa. Þessi staðreynd ásamt Sífellt verið að fylgjast með / Bretlandi er ein öryggismyndavél fyrir hverja fjórtán íbúa. því að í auknum mæli skilja dag- legar athafnir fólks eftir sig rafræn vegsumerki gerir það að verkum að hver sá sem hefur aðgengi að þessum upplýsingum getur kortlagt líf einstaklinga með nákvæmum hætti. Thomas segir verulega hættu stafa af þessu og að umræðu sé þörf um hvernig eftirlitsþjóðfélagið er að breyta eðli lýðræðislegs skipulags og frelsi einstaklinga til þess að vera í friði með sín mál.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.