blaðið - 29.11.2006, Side 6

blaðið - 29.11.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 blaðiö INNLENT HRAÐAKSTUR 57 stöðvaðir á einni viku Lögreglan í Borgarnesi hefur síðastliðna viku stöðvað 57 ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæminu. Sá sem ók hraðast var mældur á 142 þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. FALSAÐIR SEÐLAR Tvö mál um helgina Lögreglunni í Reykjavík bárust tvær tilkynningar um fals- aða fimm þúsund króna peningaseðla sem framvísað var í versiunum um helgina. Báðir seðlarnir voru Ijósritaðir og báru sama raðnúmer. Lögreglan biðurfólk við afgreiðslu- störf að vera á varðbergi gagnvart fölsuðum seðlum. VIÐSKIPTI Orkuveitan tapar Orkuveita Reykjavíkur tapaði 1.432 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 samanborið við 3.560 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður. Gengis- tap vegna langtímaskulda upp á samtals 5.721 milljónir króna er helsta útskýring mismunarins. Ýmsar ríkisstjórnir í Evrópu: Vissu um Þær ríkisstjórnir sem vissu um fangaflug bandarísku leyniþjón- ustunar, CIA, og um tilvist leyni- legra fangelsa eru sakaðar um að hafa reynt að torvelda rannsókn á málinu. Það er gert í uppkasti að skýrslu sem er verið að vinna fyrir Evrópupíngið og starfsmenn Reut- ers-fréttastofunnar hafa undir höndum. í skýrslunni er því einnig haldið fram að gögn um fundar- höld utanríkisráðherra Bandaríkj- anna með leiðtogum ESB sýni að þeir hafi vitað um fangelsin. Bæjarfulltrúi segir bæjarstjórann í Ölfusi brjóta lög: Boruðu með leyfi bæjarstjórans Jeppadekkin frá Fáanleg í flestum stærðum fyrir 15,16,17 og 18" felgur Víðarhöföa 6 - Sími 577 4444 ■ Leyfið samræmist ekki lögum ■ Hvorki kynnt fyrir bæjarstjórn né íbúum athugun en það er ekki komin nein niðurstaða um hvort þetta sé mögu- legt yfirhöfuð," segir Sigrún. Að- spurð telur hún eðlilegt að fyrst sé unnið úr sýnum áður en nokkuð annað sé aðhafst. „Sýnin munu leiða í ljós hversu heilnæmt og hreint vatnið á svæðinu er. Fyrirfram myndi ég halda að mengunarhætta sé ekki mikil en hvar sem er fylgir alltaf einhver áhætta.“ það Alltaf hætta á mengun Sveitarfélög hafa heimild til þess að veita vatnssvæði vernd gegn ágangi, eins og verksmiðjum og iðn- aðarstarfsemi. Samkvæmt upplýs- ingum frá Orkustofnun eru jarðlög svæðisins viðkvæm þar sem þau eru lek fyrir leysingavatni. Örn bendir á að verksmiðjum fylgi alltaf hætta á mengun. „Það er alveg hægt að byggja verk- smiðju þannig að hún valdi ekki mengun en það er alltaf hætta á að eitthvað komi upp á. Hins vegar sé ég ekki tilganginn í því að taka þá áhættu til þess að stytta vatnsrörið um einhverja kílómetra,“ segir Örn. „Ég sé engan annan ávinning með þessu en þann að stytta vatns- rörið og því hefur þetta sáralítil áhrif á kostnaðinn. Sveitarstjórn- armenn skýla sér líklega bak við að þessi ákveðni iðnaður sé mengunarfrír. Að því að vatnsból er þá ég aldrei eyfa iðnað í kringum það.“ Hvorki náð- ist í Ólaf Áka on, bæjarstóra Ölfuss, né talsmenn IWH við vinnslu frétt- arinnar þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Ég átta mig ekki á því hvernig bæj- arstjórinn getur sjálfur veitt fram- kvæmdaleyfi án nokkurra stoða í lögum eða samþykkta í bæjarstjórn. Hann hefur sjálfur viðurkennt að hafa veitt þetta leyfi og í mínum huga er þetta klárt lögbrot," segir Ásgeir Ingvi Jónsson, bæjarfulltrúi í sveitarfélaginu Ölfusi og fulltrúi í skipulagsnefnd. Sveitarfélagið hefur samþykkt sölu jarðar við Hlíðarenda sem sam- kvæmt aðalskipulagi hefur verið merkt sem útivistarsvæði. Landið var selt fyrirtækinu Icelandic Water Holding, IWH, sem áætlar að færa vatnsátöppunarverksmiðju sína innan sveitarfélagsins og mynda nýtt vatnsból á jörðinni. Til þess hefur fyrirtækið óskað eftir því að vatnsvernd verði aflétt á hundrað hektara svæði á landinu og að tíu hektara svæði verði merkt sem brunnsvæði. Bæjarstjóri hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdum og segir þær tilraunaboranir. Samkvæmt lögum hefur sveitar- félagið ekki heimild til að veita framkvæmdaleyfi nema sam- þykkt aðalskipulags liggi fyrir. Það liggur ekki fyrir. Framkvæmt í leyfisleysi Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri um- hverfissviðsReykja- víkurborgar, furðar sig á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru í málinu. „Hvar í heim- inum er þetta eiginlega að eiga sér stað? Ég hef aldrei orðið var við það að vatns- verndhafiverið aflétt nokkurs staðar hér á landi, ekki nema þá verið sé að leggja niður vatnsból. Ef slíkt ætti sér stað innan Reykja- víkur, myndum við berjast hart gegn þeirri framkvæmd,“ segir Örn. Ásgeir Ingvi bendir á að fram- kvæmdir af hálfu Icelandic Water Holding hafi verið hafnar á landinu áður en salan var samþykkt í bæj- arstjórn. Nú þegar er búið að bora nokkrar holur og leggja veg upp í hlíðina. „Samþykkt hafði verið í aðalskipulagi að landið yrði útivist- arsvæði. Á einni nóttu var þeim áformum brey tt, án samráðs í bæjar- stjórn eða við íbúa, og það selt undir verksmiðju. Við furðum okkur á því að málið hafi ekkert verið kynnt,“ segir Ásgeir Ingvi. Vatnið ekki vottað Sigrún Guðmundsdóttir, fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, segir eftirlitið hafa tekið vatnssýni úr vatnslind á svæðinu. Niðurstöður liggja ekki fyrir. „1 gangi eru grunn- athuganir á því hvort yfirleitt sé mögulegt að færa verksmiðjurnar. Við höfum tekið þátt í þeirri Höfuðstöðvar Landsnets: Kostnaðurinn réði úrslitum „Hönnun annaðist þarfagreiningu og mat kostnað við nýbyggingar. Fyrirtækinu var ekki falið að gera tillögur um leiðir í aðstöðusköpun Landsnets og því var ekki farið gegn tillögum þess. Ég vil ítreka að sú leið sem valin var er hagstæðasti kostur Landsnets nú,“ segir Eiríkur Briem, framkvæmdastjóri fjár- og eignasýslu Landsnets. Þarfagreining Hönnunar gerði ráð fyrir 9.300 fermetra nýbygg- ingum og áætlaður byggingarkostn- aður var 1,2 milljarðar. Stjórn Lands- nets ákvað hins vegar að kaupa tæplega fjögur þúsund fermetra hús- Sljómarmenn i Landsneli gengu þverl á Þarlagreiningu vtö húsnaeölakaup: Keyptu minna og óhagstæðara húsnæði ■ Hagsýrn rM terötnrt ■ EkU lökst að sameina stsrtswnlna ■ Keyptu at bróöur og töftur stjftrnanða ■ Blaðið í gær. næði við Gylfaflöt 9, þrátt fyrir að ekki tækist að sameina fyrirtækið á einn stað, líkt og tekist hefði með ný- byggingu. Munurinn á kostnaði var hundrað milljónir. Páll Harðarson, stjórnarformaður Landsnets, segir kostnaðinn hafa ráðið úrslitum. „Það voru eingöngu hagkvæmnissjónarmið sem réðu ferðinni og ekkert annað. Því er ekk- ert að leyna og að því leyti stóð þessi kostur upp úr,“ segir Páll. „Það væri forkastanlegt ef stjórn myndi ekki leita hagkvæmustu leiða og við lögðum þunga áherslu á að kostnað- urinn réði ferð.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.