blaðið - 29.11.2006, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006
blaðiö
Sigur Kabila staðfestur
Hæstiréttur í Lýðveldinu Kongó hefur staðfest
sigur Jóseps Kabila í forsetakosningum í landinu.
Rétturinn hafnaði ákæru Jean-Pierre Bemba,
sem laut í lægra haldi fyrir Kabila, um að brögð
hafi verið í tafli í kosningunum
Þrengt að starfi Rauða krossins
Að sögn talsmanna Rauða krossins hefur herforingja-
stjórnin í Búrma gripið til aðgerða gegn hjálparsamtök-
unum og fyrirskipað að þeim fimm skrifstofum sem
pau reka í landinu verði lokað. Talsmenn hjálparsam-
takanna segja allt hjálparstarf í landinu í uppnámi.
SÞ verður ekki hleypt inn í landið
Omar al-Bashir, forseti Súdans, hefur útilokað að friðargæsluliðar á
vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) aðstoði friðargæsluliða Afríkubanda-
lagsins í Darfúr-héraði. Hann segir að Afríkubandalagið eigi eingöngu
að sjá um friðargæsluna í héraðinu. Forsetinn vísar því á þug að 200
þúsund hafi fallið í átökum í héraðinu síðustu ár heldur um níu þúsund.
Hagtölur héraðsdómstólanna:
Tólffalt fleiri héraðsdómar
vegna fíkniefnabrota
■ Oftast dæmt fyrir umferðarlagabrot ■ Sjaldnar sakfellt fyrir fölsun ■ Konur mun sjaldnar dæmdar
Umferðarlagabrot f I Fíkniefnabrot Auðgunarbrot
| ! Manndráp og líkamsmeiðingar Brot er varða fjárréttindi Fölsunarbrot
1.400 ------------------------------------------------------------------------------
1.200 .----------------------------------------------------------------- —:----------
1.000 ------------------------------—----------------------------------- -----------
Fjöldi sakfellinga vegna algengustu brota 1993-2005
Blóðbankinn:
Sárvantar blóð
Neyðarástand hefur skapast
í Blóðbankanum vegna mikils
skorts á blóði. Sveinn Guðmunds-
son, forstöðumaður Blóðbank-
ans, segir notkun á blóði hafa
verið mikla síðustu vikurnar.
Blóðbankinn náði að rétta úr
kútnum fyrir tveimur vikum
í framhaldi af góðum undir-
tektum eftir að birgðastaðan
hafði verið mjög léleg. „Vegna
fjölda slysa og aðgerða hefur
síðan jafnt og þétt streymt út af
blóði þannig að blóðhlutabirgð-
irnar eru nú undir æskilegum
mörkum."
Sérstaklega er óskað eftir blóð-
gjöfum í O-blóðflokki, en Sveinn
gerir ráð fyrir að Blóðbankinn
verði opinn eitthvað lengur en
venjulega þessa vikuna.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Sakfellingum í héraðsdómum lands-
ins vegna fíkniefnabrota á árunum
1993 til 2005 hefur fjölgað mest á
tímabilinu eða úr 53 í 603, að því
er greint er frá í Hagtíðindum sem
Hagstofa íslands gefur út. Lang-
algengustu brotin sem dæmt var
fyrir á þessu tímabili eru hins vegar
umferðarlagabrot.
1 upphafi tímabilsins voru næst-
flestir dæmdir fyrir þjófnað en í
lokin voru næstflestir dæmdir fyrir
fíkniefnabrot.
1 Hagtíðindum kemur fram að
konur eru mun sjaldnar dæmdar í
opinberum málum en karlar. Sakfell-
ingum yfir konum vegna þjófnaðar
hefur fjölgað mest á þessu tímabili
eða úr sjö árið 1993 í 69 árið 2005.
Sakfellingum yfir konum vegna
fíkniefnabrota hefur fjölgað úr sjö
í 53 en sakfellingum vegna umferð-
arlagabrota úr 73 í 161 á fyrrgreindu
tímabili. Sakfellingum vegna fíkni-
efnabrota fjölgar mikið allt tímabilið
en sýnu mest á allra síðustu árum
og hlutfallslega mest í Héraðsdómi
Reykjaness. Þar hafa þær meira en
þrefaldast frá árinu 2000 en fólks-
fjölgun þar hefur reyndar verið tölu-
vert umfram fólksfjölgun á lands-
vísu. 1 Héraðsdómi Reykjavíkur hafa
sakfellingar vegna fíkniefnabrota
meira en tvöfaldast á sama tímabili.
Mun meiri sveiflur eru milli ára í
fjölda sakfellinga vegna annarrabrota
en almennt má greina fjölgun sakfell-
inga á síðari árum vegna þjófnaða,
umferðarlagabrota og minni háttar
líkamsárása. Sakfellingum vegna
fölsunarbrota fækkar hins vegar.
I
I
Það er sama á hvernig skóm
þú mætir á Pergo-parket útsöluna
Pergo þolir áganginn og slabbið.
Nú færðu allt að 4Q*>
af slitsterku og fallegu * 1
■
IIH PERGO
Háteigsvegur 7 • 105 Reykjavík • sími 511 1100
Draupnisgata 4 ■ 600 Akureyri • sími 466 3311
www.rymi.is
j