blaðið - 29.11.2006, Blaðsíða 13
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 13
Svíþjóö:
Ákæröir vegna
tölvuinnbrots
Sex hafa verið ákærðir vegna
innbrota sænska Þjóðarflokks-
ins inn á innri vef Jafnaðar-
mannaflokksins í aðdraganda
sænsku þingkosninganna.
Þessir fulltrúar flokksins
öfluðu sér þannig mikilvægra
upplýsinga um baráttuaðferðir
jafnaðarmanna, en upp komst
um innbrotið um mánuði fyrir
kosningarnar.
Meðal hinna ákærðu eru Jo-
han Jakobsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Þjóðarflokksins,
og Niki Westerberg, fyrrverandi
upplýsingafulltrúi flokksins.
Réttarhöld hefjast að öllum lík-
indum skömmu eftir áramót.
Vinstri-grænir:
Steingrímur
efstur ^
Steingrimur J.
Sigfússon, formaður yR/r
Vinstri-grænna, var
efsti maður í leiðbeinandi forvali
flokksins í Norðausturkjördæmi.
Þuríður Backman var önnur,
Björn Valur Gíslason þriðji,
Hlynur Hallsson fjórði, Ingibjörg
Hjartardóttir fimmta og Jóhanna
Gísladóttir sjötta.
Sautján gáfu kost á sér í for-
valinu, en uppstillingarnefnd
mun nú hefja vinnu við að gera
tillögu að framboðslista með
hliðsjón af úrslitum forvalsins.
Kjördæmisþing verður haldið ío.
desember þar sem listinn verður
endanlega ákveðinn.
ggl’URINA1
PROPLAN
I’rotects Wltile it Nourishcs
Pro Plan
fæðulínan
sérsniðin fyrir
hundinn þinn
GARÐHEIMAR
Söluaðiii:
Garðheimar i Mjódd • Stekkjarbakka 6
109 Reykjavík • sími 540 3300 • www.grodur.is
Ríkið sýknað af kröfu Ásatrúarfélagsins:
Ásatrúarmenn
áfrýja til Hæstaréttar
Islenska ríkið var í gær sýknað
af kröfum Ásatrúarfélagsins um
greiðslu sambærilegra gjalda og
greidd eru í Kirkjumálasjóð og Jöfn-
unarsjóð sókna. I niðurlagi dómsins,
sem kveðinn var upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur, sagði hins vegar að um
ákveðna mismunun væri að ræða en
dómurinn gæti ekki búið til reglu um
greiðsluskyldu stefnda sem engin
heimild væri fyrir í settum lögum.
„I sjálfu sér kom dómurinn ekki á
óvart. Það kom hins vegar þægilega
á óvart að í niðurlagi dómsins skuli
Bjuggumst
irið að þurfa
að átrýja
Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoöi
sagt að misrétti sé í gangi þótt það
sé ekki á valdi dómsins að leiðrétta
það. Þetta er ágætis veganesti þegar
við höldum áfram með málið,” segir
Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjar-
goði Ásatrúarfélagsins.
Hann segir málinu verða áfrýjað
til Hæstaréttar og farið með það fyrir
Mannréttindadómstólinn í Strass-
borg ef þurfa þykir. „Við bjuggumst
aldrei við öðru en að þurfa að áfrýja.
Maður gat ekki látið sig dreyma um
að héraðsdómur færi að ganga gegn
landslögum. En hluti af þessu var að
sýna fram á að galli væri í lögunum.
Hæstiréttur hefur undanfarin 10 til
15 ár sýnt djörfung og kjark í svona
málum og farið fram á að lögum
verði breytt.”
Ásatrúarfélagið fær sóknargjöld
en benti á í málflutningi sínum að
Þjóðkirkjan og sjóðir hennar fengju
margar aðrar greiðslur frá ríkinu og
þess vegna væri jafnræðis ekki gætt.
Málskostnaður var látinn falla
niður.
PAfílS
SJDNA RHOLL
Gjafabréf, gleraugu og fylgihlutir til jólagjafa
r
A laugardögum, opið frá 11:00 til 15:00 í desember.
Verið velkomin í nýbakaðar smákökur
Reykjavíkurvegur 22, 220 Hafnarfirði www.sjonarholl.is