blaðið - 29.11.2006, Page 14

blaðið - 29.11.2006, Page 14
blaðiö Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúar: Ár og dagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elín Albertsdóttir og Janus Sigurjónsson Að skara fram úr Það er hætt að koma á óvart þegar íslendingar skara fram úr og vinna til verðlauna á erlendum vettvangi. Hver kippir sér upp við það þótt Magnús Scheving fái virt bresk verðlaun fyrir framleiðslu sína á Latabæ? Eða að hann hafi komið þáttum sínum til sýninga í yfir eitt hundrað löndum víða um heim? Við íslendingar erum svo framarlega í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur að við erum hætt að undrast, yppum í það mesta öxlum og segjum; flott hjá honum. Auðvitað er þetta stórkostlegur árangur hjá Magnúsi, það vita allir sem fylgst hafa með honum og Latabæj- arferlinu. Við eigum bara orðið svo mikið af snillingum að þeir eru orðnir hversdagslegir. Það er þó ekkert voðalega langt síðan íslendingar ærðust af kæti ef einhver náði árangri á erlendum vettvangi. Hver man ekki eftir hvernig við hömpuðum Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara ár eftir ár og telst hann þó varla enn þá heimsfrægur. Við supum hveljur af grobbi þegar Vigdís varð fyrst kvenna lýðræðislega kosin forseti. Síðan varð Hófí fegurst allra kvenna í heimi og Jón Páll sterkasti karlinn. Svo áttum við mikinn kaupahéðinn í Ameríku sem gat þar að auki skrifað bækur. Og við eignuðumst fljótt aftur fegurstu konu í heimi, Lindu Pétursdóttur. Það má auðvitað fara enn lengra aftur í tímann og minnast þess heiðurs sem íslendingar hlutu þegar Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin. Og aftur í nútímann því það þótti ekki heldur lítill heiður þegar Friðrik Þór Frið- riksson var tilnefndur til sjálfra Óskarsverðlaunanna fyrir kvikmynd sína, Börn náttúrunnar. Það varð þó enginn íslendingur heimsfrægur fyrr en Björk Guðmundsdóttir hóf upp raust sína og heillaði heiminn meira en nokkur annar Islendingur fyrr eða síðar. Björk hefur fengið mörg verð- laun, m.a. virt bresk tónlistarverðlaun og hún hefur líka fengið tilnefn- ingu hjá Óskarsverðlaunaakademíunni þar sem hún stal reyndar athygli frá öllum frægustu Hollywoodstjörnunum með óvenjulegum svanakjól sem hún klæddist. I tónlistargeiranum er hljómsveitin Sigur Rós einnig að ná frægðarljóma og er orðin vel þekkt bæði í Bretlandi og í Bandaríkj- unum svo og Nylon-flokkurinn. Af allri þessari íslensku frægðarsúpu eru enn ótaldir íslenskir kaupsýslumenn sem hafa verið að mála bæinn rauðan víða um lönd og vekja mikla athygli í útlendum viðskiptablöðum. Björgólfur Thor Björgólfsson siglir hratt upp milljarðastiga tímaritsins Forbes og hver veit nema við eignumst ríkasta mann í heimi áður en langt um líður. Yrðum við hissa? Það er ekkert skrítið þótt danskir og breskir fjölmiðlar velti vöngum og klóri sér í kollinum yfir þessari fámennu þjóð sem stígur hvern frægð- ardansinn á fætur öðrum um heim allan, og það þótt þjóðin telji aðeins 300 þúsund manns. Það hlýtur að búa í okkur íslenskt ofurgen, að ekki sé talað um ofurgreind. Við ættum að nota þá greind til að hlúa betur að þeim útlendingum sem hingað vilja flytja og taka að sér láglaunastörfin sem við viljum ekki lengur sinna. Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Aflmiklar og hljóðlátar \ Frábærhönnun A 2204 / A 2604 ■ Sýgur blautt og þurrt ■ Einnig fyrir útblástu ■ 18 / 25 Itr tankur VC 5200 / VC5300 ■ Afl: 1800/2000 w ■ Hepa 12 sía ■ Sérlega nett ■ Hæöarstilling / á röri /i ■ 3,3 Itr poki /m Snúra dregst inn Snúningshringur á legu snýst 360° HEPA 12 sia hreinsar 99,5% óhreininda Fylgihlutir geymast I vél 4 lítra flíspoki VC 6100 /VC 6200 RAFVER ■ Afl: 1800/2000 w ■ HEPA 12 sía ■ Hæðarstilling á röri ■ Aukahlutir SKEIFAN 3E-F • SÍMI 581-2333 ■ FAX 568-0215 • WWW.RAFVER.IS 14 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 blaöiö J5S, Vj-P G'ETxjM F\LVeCi 5kít<5T á A& ^ Kcr-rA yETWÆN F? ViP GtruM TEAiGrp KEU-rNG /Jf ET Vf-P V/^liRJ-dtldlTUM LíKA AO sé itATSYóks Það sem helst hann varast vann Formaður Framsóknarflokksins sagði á miðstjórnarfundi flokksins að ákvarðanir íslenskra stjórnvalda varð- andi Íraksstríðið hafi verið rangar og byggst á röngum upplýsingum. Jón Sigurðsson kýs með þessu að hörfa lítið eitt til að það líti út fyrir að meiri skynsemi ríki nú í röðum framsóknar- manna en áður. En staðhæfing Jóns Sigurðssonar er röng. Ákvarðanir Dav- íðs Oddssonar og Halldórs Ásgríms- sonar byggðust ekki á röngum upplýs- ingum heldur vilja til að fara að vilja Bandaríkjastjórnar. Með því brutu Eieir gegn stefnumörkun lýðveldisins slands í utanríkismálum frá lýðveld- isstofnun. Island fer ekki með hernaði á hendur öðrum þjóðum. Stefna sem Bjarni Bendediktsson, fyrrverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins, á mesta heiðurinn af. Davíð og Halldór mót- uðu nýja þjóðhættulega stefnu í utan- ríkismálum sem byggðist á skamm- sýni en ekki röngum upplýsingum. Colin Powell, fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, baðst í september 2005 afsökunar á að hafa logið að umheiminum með staðhæf- ingum um gereyðingarvopn Iraka. Powell sagðist hafa verið blekktur. Þar sagði Colin Powell ósatt í annað sinn. Fyrrum yfirmaður Bandaríska herr- áðsins og reyndur hershöfðingi eins og Colin Powell vissi vel að Saddam Hussein átti engin gereyðingarvopn. Á sama tíma og Bush og Blair með aðstoð íslensku ríkisstjórnarinnar ákváðu að ráðast með ólögmætum hætti inn i Irak sagði Robin Cook, fyrr- verandi utanríkisráðherra Breta, sig úr ríkisstjórn Tony Blair og hélt við það tækifæri eftirminnilega ræðu þar Klippt & skorið Samkvæmt nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar skaða vax- andi ríkisumsvif í Rússlandi hagkerfi landsins til lengri tíma litið... Á síðasta ári hafa umsvif ríkisfyrirtækja vaxið mikið í landinu og hafa þau ráðandi stöðu í mikil- vægum geirum efnahagslífsins." Þessa frétt mátti lesa í Blaðinu í gær. Kynni sumum að þykja þetta fyrirboði um hvað frumvarpið um Ríkis- útvarpið kynni að hafa í för með sér á fjölmiðlamarkaði. Pétur Gunnarsson, fyrr- verandi fréttastjóri, skrifar á síðu sinni að hann skilji að útvarpsstjóri fagni frumvarpinu. „En það verður að setja afli ríkisins á fjölmiðlamark- aði skorður. Forskotið er of mikið." sem hann benti á að allir sem hefðu almenna skynsemi vissu að engin gereyðingarvopn væru í Irak. Sama sagði Hans Blix, yfirmaður vopna- eftirlits Sameinuðu þjóðanna í frak. Upplýsingar sem sýndu blekkingar Bandarikjanna og Beta í málinu lágu því fyrir og voru gegnsæjar. Þessu áttu þeir sem héldu um stjórnvölinn i landsmálunum og á Morgunblaðinu að gera sér grein fyrir. Þeir hafa enga afsökun. Jón Magnússon Innrásin í I rak er brot á 2. grein sátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Ályktun Sameinuðu þjóðanna frá því í nóv- ember 2002 nr. 1441 þar sem Irak var gefið síðasta tækifærið heimilaði engu ríki að grípa til einhliða hern- aðaraðgerða gegn írak. Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, viðurkenndi áður en til innrásarinnar kom að Irak hefði færri gereyðingarvopn en Líbýa, Norður Kórea eða Iran. Þessar stað- reyndir voru allar fyrir hendi þegar ákvörðun var tekin um að blanda Islandi inn í þessa ólögmætu innrás. Það var því ekki hægt að blekka aðra Pétur hefur miklar efa- semdir um heimildir “ RÚV til að fá kostun utan úr bæ. „Það þarf að taka á henni, ég vil banna kostun í RÚV, hún þurrkar út eðlileg mörk efnis og auglýsinga og á ekki heima í almannaþjónustuútvarpi. Við þær þröngu aðstæður sem stofnunin hefur búið undanfarin ár hefur hún nýtt sér mögu- leika kostunar út í ystu æsar. Mér hefur sýnst að hún hafi jafnvel rutt brautina inn á nýjar og ósmekklegar leiðir í kostun, ekki síst á Rás 2." Pétur segist hafa heyrt sögur af að útgef- endur tónlistar og forsvarsmenn tónlistar hafi látið bjóða sér ýmislegt í samskiptum við RÚV til að hjálpa því að sinna menningar- hlutverki sínu. en þá sem vildu láta blekkja sig. For- maður Framsóknarflokksins steig eitt skref til baka. Hann baðst þó ekki afsökunar. Hann fór ekki fram á að ísland yrði tekið af lista yfir hinar viljugu þjóðir. Hvaða tilgangi þjónaði þá þessi hálfkveðna vísa formanns Framsóknarflokksins? I dag er stríð í Afganistan sem ís- land blandast í. Þar situr þægur þjónn Bandaríkjanna sem forseti í skjóli er- lends hers. Varnarbandalaginu NATO var att út í afskipti af átökum. Utan- ríkisráðherra Islands ætti að beita sér fyrir því að NATO dragi allan her út úr Afganistan þó ekki væri nema vegna þess að það er ekki verkefni varnarbandalags að fara með her til annarra landa. Það er engin skynsam- leg réttlæting fyrir því að fórna lífi ungs fólks frá NATO-ríkjunum í því tilgangsleysi sem afskipti vestrænna ríkja eru nú af Afganistan. Framsókn- armenn og sjálfstæðismenn verða sennilega vitrir eftir á í þessu sem öðru í utanríkismálum. Það er kaldhæðni örlaganna að ólög- mæta innrásin í Irak virðist vera að leiða til þess að það myndist bandalag Irans, íraks og Sýrlands til að koma á friði í Irak vegna þess að Banda- ríkin ráða ekki við það. Afleiðing Íraksstríðs Bush, Blair og okkar yrði þá dráp hundruð þúsunda saklausra borgara og ómældar hörmungar al- mennings í frak og að fran yrði að valdamesta ríkinu á svæðinu. Þá sannast hið fornkveðna. Það sem helst hann varast vann hlaut þó aðkoma yfir hann. Höfundur er hæstaréttarlögmaður Jónas Kristjánsson ritstýrði áratugum saman mestu lausasölublöðum landins. Hann ersvartsýnn áframtíð áskriftarblaðs- ins sem eftir er. „Með hverju árinu kemur nýr árgangur inn (samfélag fullorðinna án þess að þurfa á dagblöðum að halda. í gamla daga gerð- ist fólk áskrifendur, þegar það stofnaði heimili. Ekki lengur. Lesendur Moggans eru miðaldra og gamalt fólk. Timi áskriftarblaða rennur smám saman út... Þetta er vont mál, því að engir miðlar hafa burði til að taka upp viðtæka frétta- þjónustu dagblaða. Tvær síður í Mogganum jafngilda hálftíma fréttum í sjónvarpi." brynjolfur@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.