blaðið - 29.11.2006, Side 17

blaðið - 29.11.2006, Side 17
blaöið MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 49 kolbrun@bladid.net Það er betra að skilja lítið en að misskilja mikið Anatole France Afmælisborn dagsins C.S. LEWIS RITHÖFUNDUR, 1898 LOUISA ALCOTT RITHÖFUNDUR, 1832 ( (/<). , Uiýtt RÖGNU A ÐMlSTEffíSDÓTTUR A LAUGABÖU Reynir Traustason 4 (Kíu) C Örlagasaga kvenskörungs Hjá Vöku-Helgafelli er komin út Ljósið í Djúpinu. Örlagasaga Rögnu Aðalsteinsdóttur á Lauga- bóli. Reynir Traustason skráði. Ragna elst upp við misjöfn kjör í Inndjúpinu áfyrri hluta 20. aldar og þarf á barnsaldri að sjá á eftir móður sinni og systur. Hér er sögð einstök saga sterkrar og sjálfstæðrar konu sem upplifir meiri sorgir en lagðar eru á flest fólk. Náttúruhamfarir á Vest- fjörðum taka tvö börn hennar og barnabarn. Þrátt fyrir þung áföll býr Ragna yfir einstökum krafti sem samferðafólk hennar hefur notið góðs af, ekki síst þeir sem átt hafa undir högg að sækja í lífinu. Bakgrunnur þessarar örlagasögu eru miklar þjóðfélags- og þjóð- lífsbreytingar síðustu aldar, en í forgrunninum stendur ótrúleg kona sem á stundum virðist hafa samband við aðra heima. Ragna Aðalsteinsdóttir er kvenskörungur í bestu merkingu þess orðs. Áhugavert líf frumskógar- stelpu Bókaútgáfan Útkall hefur sent frá sér bókina Frumskógar- stelpan eftir Sabine Kuegler. Frum- skógar- stelpan er ótrú- leg en sönn saga um ein- falda ogfrum- stæða tilveru sem breytt- ist þegar Sabine Kuegler kom til Evr- ópu - af steinaldarstigi inn í vestræna menningu. Þegar Sabine var barn fluttist hún með fjölskyldu sinni til afskekkts frumskógarsvæðis í Indónesíu. Fayu-ættbálkurinn, ósnortinn af nútímamenningu, var þá nýlega uppgötvaður. Bernskunni var ekki varið við dúkkuleiki heldur lék hún sér með snáka og al- vöruboga og örvar. Hún borðaði ekki sætindi heldur ristaðar leðurblökur og skordýr. Þegar Sabine settist að í Evr- ópu, 17 ára að aldri, átti hún erfitt með að fóta sig en tókst þó smám saman að aðlagast vestrænu samfélagi. Frumskóg- urinn togaði þó ávallt í hana - og gerir enn. Nú er Sabine 33 ára, á fjögur börn og býr í Þýskalandi en er ákveðin í að snúa aftur í frumskóginn þegar börnin vaxa úr grasi. Húmor og trúarvissa PV útgáfa hefur sent frá sér Ljóðmæli Jóns Arasonar biskups. Þetta er í fyrsta skipti sem öll ljóð Jóns Ara- sonar koma saman í einni bók. Ásgeir Jónsson hagfræðingur skrifar formála að verkinu. „Ég ólst upp á Hólum, fluttist þangað ellefu ára gamall og þá kviknaði áhuginn á Jóni,“ segir Asgeir. „Ég hef alltaf haft áhuga á sögu, hef skrifað tölu- vert um sagnfræði og tók raunar hag- sögu sem aukasvið í doktorsnámi mínu í Bandaríkjunum. Þá fjallaði BS-ritgerðin mín um tímabilið 1400-1600 sem liefur raunar verið mér mjög hugleikið síðan. Árið 2003 gerðum við kona mín, Gerður Bolla- dóttir söngkona, geisladisk með lög- um eftir ljóðum Jóns Arasonar. Þá fór ég að skoða kveðskap hans vand- lega. Mér fannst einkennilegt að ljóð hans skyldu ekki hafa verið gefin út í einni bók sem kannski lýsir því hve hin svokallaða „miðöld“ í íslenskri bókmenntasögu hefur þurrkast úr minni þjóðarinnar. En miðöld hefst þegar ritun Islendingasagna lauk um 1350 og stóð þar til Hallgrímur Pétursson kom fram á sautjándu öld.“ Eru trúarljóð Jóns hefðbundin mið- að við sinn tíma? „Já, þau eru það. Eysteinn munkur skapaði ákveðna hefð í trúarskáld- skap með Lilju sem byggðist á því að yrkja til alþýðunnar með skýru kjarnmiklu orðalagi. Jón Arason er mjög trúr þessari stefnu. Hann yrk- ir á alþýðlegu og léttleikandi tungu- máli með myndrænum lýsingum þannig að það er auðvelt að læra hann utanbókar . Hann or.ti einnig jafnhendis heit trúarkvæði og gam- anbragi. Þannig að hvort sem litið er á trúarkvæði eða veraldleg kvæði er Jón Arason einn helsti merkisberi „miðaldar' í íslenskum skáldskap og vel til þess fallinn að kynna nútíma- fólki þennan gleymda tíma. ” Jón orti líka veraldleg kvœði og margir kunna etin utan að brot úr þeim. Geturekki verið að ein skýring- in á því hversu þjóðinni hefur alltaf þótt vœnt um Jón biskup sé hversu skemmtilegur og húmorískur hann er í veraldlegum vísum sínum? „Það kemur fram í mörgum heim- ildum að Jón Arason þótti óhemju skemmtilegur maður og eins Ari son- ur hans. Jón komst skjótt til valda vegna þess að hann var röggsamur og vel fallinn til þess að skapa kirkjunni alþýðufylgi. Kvæði hans áttu sinn þátt í vinsæld- um hans enda leiftra þau af húmor sem sést bæði þegar hann lýsir baráttu góðs og ills í trúarkvæðun- um eða baráttu sjálfs sín í gamankvæðum. Kímnin í kvæðum Jóns er raunar töluvert í andstöðu við það níð og heimsverk (weltschmerz) sem varð síðar ein- kennandi í íslenskum skáldskap, og t.d. sést vel hjá Bólu-Hjálmari. Er ekki staðreynd að Jón var býsna gott skáld? „Jú, mér finnst það og vona að aðrir komist á sömu skoðun við að lesa ljóðin hans. Jón er einn- ig talinn hafa haft mikil áhrif á lúthersk trúar- skáld sem komu á eftir honum, eins og til dæm- is Hallgrím Pétursson. Hann sneyðir hjá kaþólskum yrk- isefnum, sem er ákveðin þversögn. Síðasti kaþólski biskupinn á íslandi reyndist vera sá lútherskasti þegar kemur að trúarkveðskap." Ásgeir Jónsson „Kvæði hans áttu sinn þátt í vinsældum hans enda tt leiftra þau af húmor “ segir hann B um veraldleg kvæði Jóns Arasonar m biskups. BlaÖiÖ/Frikki Cary Grant deyr Á þessum degi árið 1986 lést leik- arinn Cary Grant af völdum hjarta- áfalls, 82 ára gamall. Kvikmynda- ferill hans spannaði rúm þrjátíu ár. Grant birtist fyrst á hvíta tjaldinu ár- ið 1932, það var þó ekki fyrr en seint á fjórða áratugnum sem hann fann sinn eigin stíl. Persóna hans á hvíta tjaldinu var hinn fyndni en um leið fágaði karlmaður sem konum þótti ómótstæðilegur og karlmenn öfund- uðu. Hann lék í fjölda mynda og átti afar farsæla samvinnu við Alfred Hitchcock í myndum eins og Not- orious og North by Northwest. Einkalíf Grants var viðburðaríkt en hann kvæntist fimm sinnum og átti í nokkrum ástarsamböndum, þar á meðal við Sophiu Loren. Hann dró sig í hlé frá kvikmynda- leik árið 1966. Tveimur áratugum eftir dauða sinn er hans enn minnst sem eins athyglisverðasta leikara í sögu Hollywood. Brottfarir _ Departures DMK Reglulegur sparnaður* - verðlaunaður með sérstöku mótframlagi! Kynntu þér DMK Reglulegan sparnað og aðra þjónustuþætti DMK á spron.is * skv. útlánareglum SPRON ^spron 1

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.