blaðið - 29.11.2006, Síða 20
blaöið
MIÐVIl
29. NOVEMBER 2006
Fundur a Hotel Borg
Félagiö Ísland-Palestína stendur fyrir opnum fundi á Hótel Borg í kvöld í tilefni af al-
þjóðlegum samstöðudegi Sameinuðu þjóðanna með réttindum Palestínumanna og 19
ára afmæli félagsins. Ræðumaður kvöldsins er Ziad Amro og hljómsveitin Bardukha
leikur fyrir gesti. Allir velkomnir.
. •
Italía á hvita tjaldinu
ítölsk kvikmyndahátíð er í fullum gangi í Háskólabíói en henni lýkur um
næstu helgi. Þar leynist margur gullmolinn og er meðal annars hægt að
sjá nokkrar af myndum Pupi Avati sem er einn virtasti leikstjóri Itala um
þessar mundir.
'T
Fóstbræður með
Sinfóníunni
Karlakórinn Fóstbræður undir
stjórn Árna Harðarsonar stígur
á stokk með Sinfóníuhljómsveit
íslands á morgun. Tónleikarnir til-
heyra gulu röð hljómsveitarinnar
og á efnisskránni eru forleikur
að Don Giovanni eftir Mozart,
Jon Juan eftir Richard Stauss
og þrettánda sinfónía Dímítríj
Sjostakovitsj. Rumon Gamba
stjórnar hljómsveitinni og Sergei
Aleksashkin syngur einsöng. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 19:30.
Aðventutónar
í sveitinni
Kammerkór Akraness heldur tón-
leika í Hallgrímskirkju í Saurbæ,
Hvalfjarðarsveit, laugardaginn
2. desember klukkan 17. Á efn-
isskrá tónleikanna í Saurbæ er
flutningur á Kantötu nr. 61 eftir J.
S. Bach sem kórinn flytur ásamt
strengjasveit og einsöngvurum.
Auk þess verður flutt falleg
aðventutónlist frá ýmsum tímum
og má þar nefna meðal höfunda
Johann Eccard, Andrew Carter
og Báru Grímsdóttur. Einsöngv-
arar með kórnum eru þau
Laufey Geirsdóttir sópran, Jón
Þorsteinsson tenór og Stefán
Sigurjónsson bassi. Stjórnandi
Kammerkórs Akraness er Sveinn
Arnar Sæmundsson, organisti
Akraneskirkju. Aðgangseyrir inn
á tónleikana er 1500 krónur.
futénleika i kvöld
Oður til áttunda áratugarins
tefán Hilmarsson og Eyj-
ólfur Kristjánsson hafa
árum saman glatt lands-
menn með hugljúfum
tónum og ómþýðum
röddum og hafa þeir oft verið kallað-
ir Simon og Garfunkel íslands. Um
þessar mundir eru ákveðin tímamót
hjá þeim félögunum en þeir gáfu ný-
verið út sína fyrstu plötu saman. Af
því tilefni verður mikið um dýrðir
í Borgarleikhúsinu í kvöld en þeir
halda þar tvenna tónleika með full-
skipaðri hrynsveit, bakröddum og
sextán manna strengjasveit. „Þetta
byrjaði eiginlega allt með Draumi
um Nínu árið 1991 þegar við keppt-
um í Evrovisjón fyrir lslands hönd.
Okkur finnst gott að setja upphafs-
punktinn þar enda hefur það lag
lifað góðu lífi með þjóðinni æ síðan
og við megum varla sjást tveir sam-
an án þess að við séum beðnir að
taka Nínu,“ útskýrir Eyjólfur Krist-
jánsson þegar hann er inntur eftir
því hvernig samstarfið farsæla hafi
byrjað.
Vináttan mikilvæg
Eftir sextán ára samstarf þótti
þeim félögum kominn tími til að
fara í hljóðver og vinna efni til út-
gáfu, enda líklega margir aðdáend-
ur orðnir langeygir eftir plötu frá
þeim. Platan leit dagsins ljós á haust-
dögum og ber titilinn Nokkrar nota-
legar ábreiður. „Okkur fannst vera
komin tími á þetta, enda yngjumst
við ekki úr þessu,“ segir Eyjólfur
hlæjandi. „Við erum á góðum stað
á ferlinum, enn í mjög góðu formi
og því er þetta prýðileg tímasetning
fyrir okkur.“ Stebbi og Eyvi hafa all-
an þennan tíma verið að vinna að
sínum verkefnum hvor í sínu lagi.
Stebbi hefur sungið með Sálinni og
Eyvi hefur gefið út fimm sólóplötur
með eigin efni. Þráðurinn hefur þó
aldrei slitnað á milli þeirra tveggja
þrátt fyrir að þeir hafi haft í nógu
að snúast á öðrum vígstöðvum.
„Við höfum verið með þetta sem
hliðarverkefni og áhugamál með-
fram öðrum verkefnum. Við höfum
svipaðan tónlistarsmekk og það er
líklega helsta ástæðan fyrir því að
þetta samstarf hefur staðið svona
lengi og gengið svona vel. Þetta er
yndisleg og afslappandi tónlist sem
við spilum og það er gott að hoppa
yfir í þetta þegar maður er orðinn
þreyttur á öðrum verkefnum. Svo
erum við Stebbi ekki bara sam-
starfsaðilar í tónlistinni, við erum
góðir vinir og verjum miklum tíma
saman þótt við séum ekki að spila.
Við höfum til dæmis báðir mikinn
áhuga á góðum vínum og golfi og
sinnum þessum áhugamálum okk-
ar saman.“
Ljúf og þægileg músík
Tónlistin sem þeir félagar hafa
spilað í gegnum tíðina hefur ver-
ið einstaklega hugljúf og er nýja
platan þeirra, Nokkrar notalegar
ábreiður, engin undantekning.
„Já, við höldum okkur við þann
stíl, enda hefur hann virkað vel
fyrir okkur í gegnum árin. Þetta
er voðalega Ijúft allt saman og það
má segja að platan sé nokkurskon-
ar óður til áttunda áratugarins.
Mörg laganna eru bandarísk og
kannski ekki vel þekkt hér á landi
en allt lög sem við höldum upp á
og höfum verið að hlusta mikið á
í gegnum tíðina," segir Eyjólfur.
Fyrri tónleikar þeirra félaga hefj-
ast í Borgarleikhúsinu klukkan 20
en þeir síðari klukkan 22.
<vp^
PÓSTURIN N
Glæpir á Grand Rokk
Jólastörf
við móttöku og afgreiðslu
íslandspóstur hf. óskar eftir afgreiðslufólki sem
fyrst í jólavinnu á pósthús víðs vegar á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er líf og fjör og nóg að
gera hjá Póstinum fyrir jólin.
Nánari upplýsingar gefa Heiða í síma 580-1263
og Herdís í síma 580-1128.
Umsóknum skal skilað til: íslandspóstur hf.
Stórhöfða 29,110 Reykjavík, merkt
„afgreiðslustarf". Einnig er hægt að sækja um
á heimasíðu íslandspósts: www.postur.is
Vegur íslensku glæpasögunnar hef-
ur farið ört vaxandi hin síðari ár og
ber öflug útgáfa í þessum geira þess
glöggt merki. Hið íslenska glæpafé-
lag hefur undanfarin ár staðið fyrir
veglegu upplestrarkvöldi í byrjun
desember þar sem höfundar glæpa-
sagna lesa úr nýjum verkum sín-
um og annað kvöld blæs félagið til
þessa árlega viðburðar með pompi
og prakt.
Hið íslenska glæpafélag hefur verið
starfandi í nær áratug og sér með-
al annars um að tilnefna fulltrúa
íslands í samkeppnina um bestu
norrænu glæpasöguna en sá sem
fer með sigur af hólmi í þeirri við-
ureign stendur uppi með Glerlykill-
inn í fanginu en Arnaldur Indriða-
son hefur tvisvar hlotið lykilinn
góða, fyrir Grafarþögn og Mýrina.
Fimmtudagskvöldið 30. nóvember
klukkan 20:30 munu þau Páll Krist-
inn Pálsson, Stefán Máni, Steinar
Bragi, Yrsa Sigurðardóttir og Ævar
Örn Jósepsson lesa úr nýútkomn-
um bókum sínum auk þess sem
lesið verður úr bókum þeirra Arn-
aldar Indriðasonar, Jökuls Valsson-
ar og Stellu Blómkvist. Dagskráin
fer fram á Grand Rokk við Smiðju-
stíg og segir Eiríkur Brynjólfsson,
gjaldkeri Hins íslenska glæpafélags,
það vel við hæfi. „Við höfum hald-
ið okkur þar undanfarin þrjú ár og
átt prýðilegt samstarf við Grand
Rokk. Umgjörðin hentar líka vel
Sviðin jörð Magnús Einars-
son og Freyr Eyjótfsson munu
skemmta gestum á Grand
Rokk með lögum af nýút-
komnum diski sínum, Lög til
þar sem kráin er svolítið skugga-
leg við fyrstu sýn,“ segir Eiríkur
leyndardómsfullur. Að upplestri
loknum mun dauðakántrísveitin
Sviðin jörð leika vel valin lög af ný-
útkomnum diski sínurn, Lög til að
skjóta sig við. Því má búast við lævi
blöndnu lofti við Smiðjustíginn
annað kvöld. Aðgangur er ókeypis
og öllum opinn.