blaðið - 09.12.2006, Síða 49
blaðið
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2006 49
listaverk og fyrir mér er það húmor-
inn í myndinni en ég ætlast ekki til
að allir skilji þetta á sama hátt og ég.
Ég vil að fólk upplifi hana á sinn hátt.
Mér finnst þetta verkefni óskaplega
skemmtilegt og mig langar til að
takast meira á við þetta listform í
framtíðinni.“
Er ekki reiður listamaður
Sigtryggi verður tíðrætt umhúmor,
enda segir hann að sér sé nauðsyn-
legt að hafa húmor í list. „Ég alhæfi
ekki um list, að list eigi að vera
svona eða hinsegin. Mér finnst ekki
nauðsynlegt að allir hafi húmor í list.
Mér finnst list eiga að vera afskap-
lega órætt og skringilegt kvikindi
og það sem kætir mig við list er að
hún skuli vera eins margræð og und-
arleg og hún er. Það væri skelfilegt ef
)að væru einhverjar reglur sem við
)yrftum að fara eftir í þeim efnum.
mínu lífi skiptir húmor mig miklu
máli, húmor veitir mér ánægju,
hjálpar mér að takast á við hluti og
gefur mér innsýn. Sum þeirra verka
sem hafa hvað mest áhrif á mig eru
hálfgerðar háðsádeilur. Mér finnst
oft sem húmor nái að varpa góðu
ljósi á hluti og hann nær að sýna
hluti út frá ákveðnu sjónarhorni,
jafnvel nýju sjónarhorni. Hann nær
líka að umvefja hlutina ákveðinni
umhyggju. Fyrir mér er húmor voða
mikil umhyggja fyrir verkefninu, að
minnsta kosti eins og ég nálgast það.
Ég geri grín að sjálfum mér eins og
öðrum. Eg vil meina að ég eigi skilið
að lifa af list og hafi til þess hæfileika
sem mér beri að nýta. Hins vegar er
ég mjög þakklátur fyrir það og þakka
fyrir það að geta lifað af minni list-
sköpun. Það eru margir listamenn
sem eru mjög reiðir, ég er ekki reiður
listamaður. Ég hef aldrei verið það,
ekki einu sinni þegar ég var pönkari,
enda var ég aldrei mjög góður pönk-
ari. Ég held ég hafi verið alltof glaður
og það hefur ekkert breyst.“
Útlendingafælni
Sigtryggur og fjölskylda hans
bjuggu í Bandaríkjunum í sjö ár og
flytja þaðan til Hollands árið 2000
þar sem Sigtryggur varð stúdíónörd,
eins og hann orðar það sjálfur. „Ég
setti upp lítið stúdíó heima hjá mér
og eyddi miklum tíma þar. Fyrir
utan það eru Hollendingar með út-
lendingafælni sem við Islendingar
Íiurfum að vara okkur á að fá ekki.
slendingar hafa alltaf verið vasaras-
istar og það er voða stutt í það hérna.
Þegar við fáum útlendinga í miklu
magni til þess að vinna hér þá er
voða stutt í hagsmunaárekstra og
fælni. Það verður að taka á þessum
málum af alúð og skilningi vegna
þess að við þurfum að geta boðið fólk
velkomið hingað til þess að vinna.
Ef við erum að flytja inn fólk til að
vinna hérna fyrir okkur þá þúrfum
við að geta tekið á móti þeim. Þetta
upphlaup í kringum Frjálslynda
flokkinn var sjokkerandi. Verst
að þeir skyldu reyna að nota þetta
sem lýðskrum, að minnsta kosti var
þannig lykt af því,“ segir Sigtryggur
sem hefur áhuga á stjórnmálum en
reynir að gaspra ekki mikið um það.
„Ég er þverpólitískur, málefnalega
sinnaður en lítið fyrir flokka. Flokks-
pólitíkin höfðar ekki til mín.“
Enn ástfanginn
Sigtryggur talar um að hann sé af-
skaplega mikill fjölskyldumaður og
hafi alltaf verið. „Við hjónin erum
búin að vera saman síðan við vorum
krakkar, síðan ég var 18 ára og hún
16 ára.
Ég held að það hve ólík við erum
hafi haldið okkur saman. Þetta er
eitt af þessum samböndum afskap-
lega ólíkra einstaklinga sem bera
gagnkvæma virðingu hvor fyrir
öðrum. Ég held að við náum aldrei
að skilja hvort annað til fulls og það
sé að hluta til einhver aflvaki í okkar
sambandi,“ segir Sigtryggur og við-
urkennir að hann sé enn ástfanginn.
„Ekki á sama hátt og ég var fyrir tutt-
ugu árum. Ástin breytist af því fólk
eldist, þroskast og elskast. Það er Hka
svo gott að fá að eldast. Þetta gengur
voða mikið út á það að vera sáttur við
sjálfan sig, og það sem maður er að
gera, sína nánustu og sitt umhverfi.
Fólk er mikið í baráttu við sjálft sig
og umhverfi sitt. Mér finnst við alltof
lítið einbeita okkur að því hvað við
erum mikið forréttindapakk. Við
búum á landi sem er erfitt en gífur-
lega fagurt, hreint og ómengað. Við
umgöngumst það að mörgu leyti eins
og sóðar og þá meina ég í mörgum
skilningi."
Ósáttur við virkjunarstefnuna
Enda segir Sigtryggur að hann sé
ósáttur við virkjunarstefnu Islend-
inga. „Ég er ósáttur við að fólk haldi
að við þurfum endilega að selja ein-
hverjum stórfyrirtækjum orku til
álframleiðslu til að draga fram lífið
á þessu skeri. Ég held að það sé grát-
legur misskilningur. Ekki það að
fólk fyrir austan þarf að vinna og
fá atvinnu. Mér finnst að ástæðan
fyrir stóriðjustefnu stjórnvalda sé
jafnmikið kvótakerfið eins og hvað
annað. Það sem mér finnst fallegast
við bók Andra Snæs Magnasonar er
að hann er að tala um heildarsýnina,
hvernig lítum við á það sem við erum
að gera í þessu landi. Að sumu leyti
er gagnrýni sjómanna á Austurlandi
á listamenn í Reykjavík réttlætanleg,
ég skil hana. Ég skil að þeir séu að
hæðast að kaffihúsapakkinu í Reykja-
vík sem situr og er að skrifa merki-
legar bækur. Ég skil þetta en þeir hafa
ekki alfarið rétt fyrir sér þvi Andri
er að tala um pólitik. Bókin hans er
einhver sú pólitískasta bók sem ég
hef lesið, einmitt út af því að hún
fjallar um hugafar, sem er eitthvað
sem skiptir máli. Það skiptir máli að
mynda sér gott hugarfar.“
svanhvit@bladid.net
Sigtryggur Baldursson:
,Mér finnst list eiga að vera
afskapiega órætt og skringi■
legt kvikindi og það sem
kætir mig við list er aö hún
skuli vera eins margræð og
undarleg og hún er.“
Nýr jólakortavefur
POSTURINN
Sparaðu tíma og fyrirhöfn, sendu
falleg jólakort - farðu á
Jólakortavefinn á www.postur.is
og kláraðu málið.
Swrí'r
Falleg og persónuleg jólakort
í tölvunni þinni á www.postur.is
Með Jólakortavefnum á www.postur.is
verða jólakortasendingar að laufléttri
skemmtun fyrir framan tölvuna.
Þetta er svona einfalt:
a) Þú ferð inn á www.postur.is og smellir
á „Jólakortavefur"
b) Þú velur mynd eða myndir úr myndabanka
Póstsins eða þínar eigin myndir til að senda
viðtakendum. Þú getur sent viðtakendum
mismunandi myndir.
c) Þú skrifar textann á kortið. Þú getur sent
viðtakendum mismunandi texta.
d) Þú útbýrð heimilisfangalista á vefnum
sem síðan uppfærist sjálfkrafa.
e) Eftir að þú hefur lokið við kortin sér
Pósturinn um afganginn:
Sendir kortin til prentsmiðju þar sem
þau eru prentuð og þeim pakkað:
Pósturinn sér svo um að koma þeim
til viðtakenda, heim að dyrum.