blaðið - 20.12.2006, Síða 4

blaðið - 20.12.2006, Síða 4
26 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 blaöiö i^atnsrúm Vatnsrúmin eru komin aftur flottari og betri, þetta er það besta á markaðinum i dag þú átt það skilið að láta þér líða vel í rúminu. Vaknar út hvíld/ur og tekur brosandi á við daginn . 15 ára ábyrgð það gerist ekki betra Vatnsmm ehf. @!T® [fd^DöSlJ® ® I www.4you.is Kársnesbraut 114 • sími 564 2030 - 690 2020 m m Orvaðu barnið þitt j til frekari þroska/: litrík, brakandi, hringlandi, tístandi leikföng með margskonar áferð. Námið hefst við fæðingu. Barnið og Lamaze leikföng. www.ymus.is pi(| te veidikortid.is vciumwi uu.io 29\ratnasvæði fyrír aðeins 5000 krónur! Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir! Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsiuna Jóhann Hansen: „Við firtnum markvisst fyrir þvíað salan hefur aukist íkjölfar lista- verkalánanna enda eru lánin vaxtalaus fyrir viðskiptavininn sem er frábært þvf íslensk list gerir hús að heimili Blodld/Frlkkl Vaxtalaus listaverkalán hjá Gallerí Fold r Islensk list gerir hús að heimili Listaverkalánin svokölluðu hafa verið mjög vinsæl undanfarin ár og Jóhann Ágúst Hansen, listmunasali hjá Gallerí Fold, segir að sala lista- verka hafi aukist um 25 prósent í kjöl- far lánanna. „Við finnum markvisst fyrir því að salan hefur aukist í kjöl- far listaverkalánanna og aukningin er talsverð. Það eru þrjú ár síðan byrjað var að bjóða upp á listaverka- lán en þetta er samstarfsverkefni Reykjavikurborgar, SPRON, gall- ería og listamannsins sem skipta vöxtunum á milli sín. Lánin eru því vaxtalaus fyrir viðskiptavininn sem er frábært því íslensk list gerir hús að heimili." Allt að 600 þúsund króna lán Listaverkalánin bjóðast til þriggja ára og hámarkslán sem einstak- lingur getur fengið er 600 þúsund. „Þetta eru 90 prósenta lán þannig að kaupandi greiðir 10 prósent af verkinu. Ef ætlunin er að kaupa dýrara verk en 600 þúsund má vit- anlega borga hærri hlut út í verkinu. Lágmarkslán er 40 þúsund en fyrir minni upphæðir bjóðum við líka upp á vaxtalaus lán frá Visa. Það er því hægt að fá lán fyrir öllum upp- hæðum upp að 600 þúsund,“ segir Jó- hann og bætir við að listaverkalánin hafi verið tilraunaverkefni fyrstu þrjú árin. „Það hefur sýnt sig að fólk kaupir sér stærri verk en það hefði ella gert. Eins má sjá að listamenn sem seldu minna áður selja verk sín í miklum mæli núna. Lánin hafa því hækkað laun listamanna gríðarlega og gera fleirum kleift að Iifa af list sinni. Það má því segja að lánin séu beinn styrkur til listamanna." Sígilt að gefa listaverk Aðspurður hvort það sé annríki í gallerium fyrir jól rétt eins og versl- unum segir Jóhann það vissulega vera. „Það er sígilt að gefa listaverk og ég hugsa að allir hafi einhvern tímann fengið listaverk í jólagjöf. Það er því mikið keypt af lista- verkum á þessum tíma og margir eru að kaupa minni gjafir, frá 5-20 þúsund. 1 síðustu viku fyrir jól koma makar og kaupa dýrari gjafir. Svo eru hjón jafnvel að koma saman og kaupa fyrir heimilið og þá er oft um stærri upphæðir að ræða.“ Jó- hann segir að það séu fimmtán til tuttugu listamenn sem seljast mest og eru vinsælastir í dag. Það sé eng- inn einn sem stendur upp úr. „Þetta eru listamenn á borð við Karólínu Lárusdóttur, Harald Bilson, Sossu, Soffíu Sæmundsdóttur og Gunnellu. Hins vegar má greina tískusveiflur í listaverkasölu eins og öllu öðru. Sið- ustu ár hefur mínimalisminn verið vinsæll en við finnum að þetta er að breytast aftur. Litir eru mikið að verða vinsælir aftur en ekki bara svart og hvítt. Verk sem eru litaglöð seljast mjög vel um þessar mundir.“ Undirföt vin í jólapakkann Svo virðist vera sem margar konur um heim allan fái falleg undirföt í jólapakkann að þessu sinni. Um þetta má lesa á erlendum vefsíðum. Bandaríska undirfataverslana- keðjan Victoria Secret heldur mikla og fagurskreytta sýningu fyrir jólin þar sem sýnd eru kynþokkafull und- irföt fyrir ungar konur og er víst að sú sýning hefur áhrif á margan karlmanninn sem er ófeiminn við að koma í verslanir Victoriu að sýn- ingu lokinni til að versla handa unn- ustu eða eiginkonu. Rauð undir- föt hafa verið vinsæl til jólagjafa undanfarin ár og svo er einnig nú. Hins vegar hafa svört og mis- lit undirföt einnig orðið vinsæl fyrirþessijól. Hérá landi hefur undirfata- K , verslunum fjölgað og má víst telja að ís- lenskar konur fái und- irföt í sína pakka rétt eins og stallsystur þeirra í öðrum löndum. Jólin hjá hinni leyndu Viktoríu Raud undirföt eru vinsæi ijólapakkann.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.