blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 12
blaðið Barnamergð í Dimmuborgum: Þingeysk leikskólabörn hitta jólasveina Það var aldeilis líf í tuskunum í Dimmuborgum þegar leikskóla- börn víðsvegar úr Þingeyjarsýsl- unum mættu þangað ásamt leik- skólakennurum til að heilsa upp á jólasveinana. Stéttarfélögin í þessum tveimur sýslum brydduðu upp á þvi að bjóða tveimur elstu árgöngunum í öllum leikskólum í sýslunum að koma í skemmtilega rútuferð að hitta jólasveina sem hafa verið að vafra um í Dimmu- borgum. Börn víðsvegar úr Þing- eyjarsýslunum lögðu í þetta ferða- lag og kom til dæmis hópur barna frá Kópaskeri en þau þurftu að leggja á sig 150 kílómetra ferðalag til þess að hitta karlana. Það voru alls 115 manns, leik- skólabörn og leikskólakennarar, sem mættu uþþ úr hádegi 13. des- ember til að heilsa upp á bræðurna. Fljótlega eftir að í Dimmuborgir var komið byrjuðu Stúfur og Þvör- usleikir að skjóta upp sínum gráa kolli og fljótlega höfðu bræður þeirra, Stekkjastaur og Ketkrókur, bæst í hópinn. Jóna Matthíasdóttir, sem er sérstakur milligöngu- maður milli jólasveinanna og umheimsins, segir að ferðin hafi heppnast gríðarlega vel, veðrið hafi verið gott og börnin mjög kát með að fá að hitta og leika sér við jólasveinana. „Börnin þurftu að tala mikið við þá, segja þeim að þau væru stillt og þæg að sofna og ræða um hvað kæmi í skóinn." Eftir að börnin höfðu eytt dá- góðri stund í Dimmuborgum með jólasveinunum var haldið í tveimur rútum í Sel, hótel þar sem börnin fengu heitt kakó, kleinur og piparkökur. Stekkja- staur og Ketkrókur fengu að koma með í rútuna og vakti það mikla lukku barnanna að hafa bræðurna með í rútunni. Jóna segir að skemmtilegasta afleið- ingin af ferðinni hafi verið sú að börnin fengu að kynnast öðrum börnum sem eru í öðrum leik- skólum. „Ég hitti eina stelpu sem er á Laugum og hún sagði ein- mitt við mig að hún væri í svona ferð og það væri ekki bara að hún myndi hitta jólasveina, hún myndi líka hitta krakka á öðrum leikskólum og myndi kynnast nýjum börnum.“ Nokkrar góðar jólamyndir Jólin og ekki síst jólaundirbúning- urinn er tími fjölskyldunnar. f að- draganda jólanna er fátt þægilegra en að öll fjölskyldan kúri sig saman yfir góðri jólamynd til að gleyma stress- inu sem fylgir oft jólunum. Hér fyrir neðan fylgja nokkrar ráðleggingar um góðar jólamyndir sem henta fyrir alla fjölskylduna en einnig nokkrar sem henta hinum eldri. It's a wonderful life. Klassísk jólamynd frá árinu 1946. James Stewart leikur hér mann sem er orð- inn svo bugaður af .«« áhyggjum að hann íhugar að binda enda á líf sitt á jólunum. Þá kemur til sög- unnar góðhjartaður verndarengill sem sýnir hversu mikilvægur hann er öllum þeim sem í lífi hans eru og hvernig líf annarra hefði orðið ef hann hefði aldrei fæðst. Mirade on 34th street. ^ Önnur klassísk jóla- , mynd frá árinu 1947 ) f™ semhefurveriðendur- Mí gerðfyrirþásem vilja 34 ekki horfa á gamlar myndir. Gamall maður sem tekur að sér að vera jólasveinn í stór- verslun lendir í vanda þegar hann fer að lýsa því yfir að hann sé hinn eini sanni jólasveinn. How the Grinch stole Christmas. Grínleikarinn Jim Carrey fer á kostum í hlutverki hins ill- gjarna Trölla sem leiðist jólahald ná- granna sinna og ákveður því að stela frá þeim jólunum. Fyndin jóla- mynd fyrir alla fjölskylduna. PAYNE Scrooged Endurgerð á hinu klassíska ' jólaævin- týri Charles Dick- ens. Hér leikur Bill Murray illgjarnan fjölmiðlamann sem glímir við að setja upp beina útsendingu á jólaævin- týri Dickens um leið og hann þarf að glíma við sína eigin þrjá drauga sem vilja beina honum á hinn rétta veg í lífinu. Kannski ekki fyrir börnin en fín fyrir hina fullorðnu. Elf Will Farrell fer á kostum í hlutverki manns sem hefur alist upp á norður- pólnum á meðal álfa en kemst svo skyndilega að því á þrítugsaldri að hann er ekki álfur. Hann heldur því til New York til að hafa uppi á föður sínum til að endurnýja kynnin. Perlan • Öskjuhlíð • Sími: 562 0200 ■ Fax: 562 0207 • perlan@perlan.is SKOTU • Skötu- og jólahlaðborð • Þorláksmessa - 23. desember Frá hádegi á Þorláksmessu og fram eftir degi bjóða matreiðslumeistarar Perlunnar upp á sannkallaða skötuveislu sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Jólahlaðborðið er einnig opið á meðan. Gjafabréf Allt árið um kring! Gjafabréf Perlunnar má nota hvenær sem hentar. Skemmtileg gjöfsem gleður sælkerana. Gefðu einstaka kvöldstund í Perlunni í jólagjöf. Jólahladborð Milli jóla og nýárs Eitt vinsælasta jólahlaðborð á landinu heldur áfram milli jóla og nýárs. Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum eðalvínum. Verð: 6.250 kr. Allt í steik Janúar &febrúar Hin árlega steikarveisla Perlunnar „Allt í steik“ hefst strax eftir áramót. Ekki er seinna vænna en að panta borðið þitt strax. Fjögurra rétta veisla frá aðeins 3.990 kr.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.