blaðið - 11.01.2007, Blaðsíða 12
30 I HEIMILI & HÖNNUN
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2007 blaöiö
Þegar hressa skal andann og heimilið
Feng shui eru ævaforn kínversk
fræði sem ganga út á að bæta heilsu,
samskipti, fjármál og í leiðinni lífs-
gæði öll. Svala Rún Sigurðardóttir,
feng shui-ráðgjafi, sat fyrir svörum
varðandi feng shui og heimilið.
„Við gerum þá grunnkröfu til
heimilis að það sé griðastaður íbúa
þar sem þeim geti liðið vel. f raun
er það meginmarkmið feng shui að
búa þannig um hnútana að heimilið
sé sannkallaður óskastaður.” Svala
bætir við að oft á tíðum standi heim-
ili alls ekki undir fyrrnefndum
grunnkröfum. „Með hjálp feng shui
er hægt að gera „leiðréttingar" á
orku innan heimilis og snúa henni
til betri vegar.” Staðreyndin er sú
að á mörgum bæjum er orkan of
þung eða jafnvel stöðnuð. Þá reyn-
ist oft vel að gera breytingar á hí-
býlum, sem þurfa þó ekki að vera
stórvægilegar.
Þegar Svala er fengin inn á heim-
ili, byrjar hún á því að meta 5 grunn-
þætti íbúa út frá fæðingardögum;
eld, jörð, vatn, málm og tré. Hver
einstaklingur hefur eitthvert fyrr-
nefnt efni í meirihluta. Svala reiknar
einnig út heimilið og sér samkvæmt
því hvernig íbúar þess passa inn í
það og hvað þarf að betrumbæta.
„Eftir útreikninga
á íbúum og híbýlum
sé ég oft skörun sem
þá þarf að gera „leið-
réttingu" á. Það getur
verið t.d. þegar „málm“-
svefnherbergi er málað
hvítt, en þá er orkan
algerlega sett á hvolf.“
Svala segir algengt að
fjölskyldur séu á sama
stigi, en það er alls ekki
alltaf. Oft reynist mjög
flókið að raða saman
tölum, heimilisfólki og
húsakynnum.
„Mikilvægt er að taka
reglulega til og henda
út því sem ekki er notað.
Einnig er nauðsynlegt að
reyna að takmarka raf-
segulbylgjur í svefnher-
bergjum landsmanna.
Sagt er að umhverfið
móti manninn (og öfugt)
og þá er eins gott að hafa
það í lagi; orkuflæði og
andrúmsloft. Hægt er að
nálgast Svölu, feng shui-
ráðgjafa, í gegnum tölvu-
póstfangið svalarun@
msn.com.
Barrtré á íslandi:
Krúnudjásn
Heimili fólks er athvarf þess.
Fólk treystir því að það sé
öruggt heima hjá sér, því líði
vel og allt sé þar eins og það
vill hafa það. En það er frekar
tilgangslaust að fylla heimili sitt
af fallegum hlutum ef garðurinn
er illa raektaður og fullur af alls
kyns illgresi. Fallegur garður er
oft ávísun á fallegt heimili en í
mörgum tilfellum kann fólk lítið
sem ekkert að hugsa um það líf
sem vex og dafnar í garðinum.
Nú fyrir jólin kom út þriðja bókin
í bókaflokknum Við ræktum og
ber hún nafnið Barrtré á íslandi,
handhægur leiðarvísir fyrir rækt-
endur. Margir einkagarðar skarta
stórum fallegum barrtrjám sem
eru til fleiri hluta nytsamleg en
að hengja á jólaseríurnar í einn
mánuð á ári.
Auður I. Ottesen, ritstjóri bókar-
innar, segir að Barrtré á íslandi
fjalli um fimm ættkvíslir og 34 teg-
undir barrtrjáa sem vaxa á íslandi,
uppruna þeirra og reynslu hér á
landi. Einnig er komið inn á aðra
þætti sem tengjast trjánum. „Við
tökum líka fyrir umönnun þeirra,
fuglana sem sækja í trén og skor-
dýrin og sjúkdómana sem herja
á þau.“ Hún segir að bókin gefi
góða mynd af því hvernig barrtré
þrífast á íslandi. „í bókinni er að
finna áhugaverðar upplýsingar
um hvenær trén bárust til íslands,
hvernig þau hafa vaxið, upplýs-
ingar um hvar sé að finna hæstu
einstaklingana og vaxtarlíkur
þeirra og framtíðarhorfur.“ Hún
bætir við að bókin henti jafnt fag-
mönnum sem áhugamönnum.
Flest barrtré sem vaxa á (slandi
eru ættuð frá norðurhveli jarð-
ar. Frumbyggjar Norður-Ameríku
litu á trén sem lífsbjörg og nýttu
sér þau til matar, lækninga og
sem smíðavið. í bókinni eru
teknir saman margir skemmtilegir
punktar um það hvernig barrtré
hafa verið notuð í gegnum tíð-
ina og þar voru frumbyggjarnir
einstaklega framtakssamir. Þeir
notuðu til dæmis mýralerki til
að smíða snjóþrúgur og örvar.
Mjúkar barrnálarnar notuðu þeir
sem fyllingu í kodda eða sængur.
Trjákvoða fjallaþinsins var tuggin
gegn andremmu og nálarnar voru
brenndar til að bæta lyktina í
híbýlum þeirra sem og til að fæla
burt flugúr. Einnig voru nálarnar
malaðar niður til að nota í barna-
púður og ilmvötn.
Barnahúsgögn sem stækka
Barnahúsgögnin okkar bjóða upp á ótai samsetningarmöguleika og
sveigjanleika sem gerir þér kleift að nota eitt og sama rúmið allt frá því barnið
hættir í grindarrúminu og fram á unglingsár.
' 'r'í-JÖ ■. r
3ja ára
6 ára
12 ára
g Hægt er að
i hækka rúmin
I á öruggan og
fljótlegan
hátt.
Stigar með sterkum
handriðum.
Álagsprófaðar heilsudýnur sem endast vel.
Mikið úrval fylgihluta fyrir stelpur og stráka.
UUiUKitiíl JJÍIÍOILID
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík | Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 | www.husgogn.is