blaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 23
blaðið
Skaöar á sjúkrahúsum
Fyrirhugað er að gera rannsókn á tiðni óvæntra skaða á
sjúkrahúsum hér á landi í samvinnu landlæknisembætt-
isins og Landspítala-háskólasjúkrahúss, Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
2007
31
FIMMTUDAGUR 22
Goður svaladrykkur
Vatn er ekki aðeins einhver besti svaladrykkur sem völ er
á heldur er það jafnframt hollt og ódýrt. Þá fer það ekki
illa með tennurnar sem verður því miður ekki sagt um
ýmsa drykki aðra sem fólk lætur ofan í sig.
Ástundun leiklistar getur verið góð fyrir heilsuna
Eins og atvinnumaður í íþróttum
Starf leikarans getur reynt mikid á
likamlega og segir Ivar Örn Sverrisson
leikari að það sé stundum ekki ósvipað
Blciðid/Eyþór
því að vera atvinnumaður iiþróttum.
Áhrif á við
fíkniefni
Reykingar valda langvarandi
breytingum á heilanum sem
eru ekki
ólíkar þeim
breytingum
sem koma
fram hjá
dýrum
þegar þeim
eru gefin
kókaín,
heróín
og önnur
fíkniefni.
Þetta er
niðurstaða
bandarískra vfsindamanna sem
hafa kannað áhrif reykinga á
heilastarfsemi manna.
Vísindamennirnir könnuðu
heilavefi látinna reykingamanna
og einnig heilavefi fólks sem
aldrei hafði reykt og báru saman.
Breytingarnar komu f Ijós hjá
reykingamönnunum jafnvel þó
að þeir hefðu hætt að reykja
mörgum árum fyrir andlát sitt.
Fólk sem hafði reykt reyndist
vera með meira magn
af ákveðnum ensfmum í
heilavefjunum en fólk sem
aldrei hafði reykt. Sams konar
breytingar hafa komið fram hjá
tilraunadýrum sem hefur verið
gefið fíkniefni eins og kókaín og
heróín.
Þessar niðurstöður þykja renna
stoðum undir að þau áhrif sem
reykingar hafa á heilann ýti
undir fíkn reykingamanna.
Mikilvægt er að leikar-
arséuígóðuandlegu
og líkamlegu formi
enda þurfa þeir oft
að takast á við erfið
verkefni sem geta bæði reynt á lík-
ama og innri mann. Ástundun leik-
listar getur einnig á vissan hátt ver-
ið leið til heilsueflingar og andlegrar
uppbyggingar. Henni fylgir gjarnan
mikil hreyfing auk þess sem hún efl-
ir sjálfstraust fólks og hæfni þess til
að koma fram og tjá sig.
Eins og atvinnuíþróttamaður
fvar Örn Sverrisson leikari segir
að starf leikarans sé stundum ekki
ósvipað því að vera atvinnumaður í
íþróttum.
„Maður þarf að halda sér í formi
af því að leiksýningarnar krefjast
þess oft að maður geri hluti sem
eru líkamlega erfiðir. Það er mik-
ilvægt að vera i formi því að ann-
ars er maður bara úr leik ef maður
meiðist. Maður þarf því að vera í
stakk búinn að gera erfiða hluti
og geta gert „stöntin“ (áhættuat-
riðin) sín sjálfur,“ segir ívar Örn
og bætir við að líkt og hjá íþrótta-
mönnunum geti álagsmeiðsli fylgt
leiklistinni.
„Eins og ég vinn leiklist þá þarf
maður alltaf að vera í góðu sam-
bandi við eigin líkama því að maður
notar hann óhjákvæmilega í leiklist.
Ég er alltaf með góða upphitun fyrir
líkamann og blanda stundum smá-
dansi inn í þetta því að ég hef líka
verið i honum og honum fylgir oft
mikil „aksjón“,“ segir ívar Örn.
Leiklist fyrir fullorðna
Leiklist getur ekki aðeins gert
manni gott líkamlega því að hún
er að mörgu leyti hentugt tæki fyr-
ir þá sem vilja losna við feimni og
auka sjálfstraust og hæfileika til að
koma fram.
Fyrr í vetur stóð ívar Örn fyrir
leiklistarnámskeiðum fyrir börn og
unglinga í Dansstúdíói World Class
þar sem áhersla var meðal annars
lögð á að finna leiðir til að auka
sjálfstraust í framkomu og tjáningu,
ná tökum á streituþáttum með slök-
un og virkja jákvæða innri orku.
ívar segir að nú á dögum sé svolítið
um að boðið sé upp á slík námskeið
fyrir þennan aldurshóp.
„Ég held að það mætti jafnvel gera
meira af því að bjóða upp á svona
fyrir fullorðna af því að vinna
fólks í dag kallar oft á að það þurfi
að koma fram og standa fyrir sínu
máli,“ segir Ivar Örn og tekur und-
ir að mörgum finnist það erfitt og
kvíði því jafnvel. „Ég held nefnilega
að það sé alveg hægt að hjálpa fólki
með þetta og að leiklistin sé mjög
gott tæki til þess,“ segir hann.
Þau leiklistarnámskeið sem full-
orðnum standa til boða eru aðal-
lega á vegum áhugaleikfélaga en
þau henta ekki endilega öllum. ívar
Órn telur að það mætti vera meira
um námskeið þar sem áherslan er
lögð á þætti eins og framkomu og
tjáningu.
„Það eru ekki endilega allir sem
hafa áhuga á því að setja upp leikrit.
Þeir vilja kannski fá aðeins meiri
hæfni í því að koma fram og standa
fyrir máli sínu. Maður þarf bara að
fá æfingu í því og leiklistin er ör-
ugglega gott tæki til að spreyta sig á
þessu sviði,“ segir hann.
Streitulosun og útrás
Ástundun leiklistar getur einnig
verið leið til að losa um streitu og fá
andlega útrás en Ivar Örn segir að
það fari þó eftir því hvað sé lagt upp
með. „Það er hægt að fara svo marg-
ar leiðir. Það er hægt að einblína á
tækniatriðin, raddbeitingu, hugar-
farið og annað slíkt. Svo er hægt að
fara út í slökun og vinna með hug-
myndaflug og jafnvel prófa að leika
aðra persónu en mann sjálfan,“ seg-
ir Ivar Örn.
„Það sem ég held að sé gott við
leiklistina er að þar þarftu oft að
standa með sjálfum þér og hún býð-
ur upp á að maður noti sitt eigið hug-
myndaflug og læri að treysta á það
og framkvæma. Síðan þarf maður
að standa með því sjálfur fyrir fram-
an aðra Ég held að það sé mjög hollt,“
segir Ivar Örn að lokum.
Opið frá 9:00 til 1 8:00 virka daga
Bakvaktir um helgar
og á kvöldin
Seljum einnig fóður og gæludýravörur
Skólavörðustígur 35 - Sími 552 3621 vaktsími 8623621 - dagfinnur@dagfinnur.is
www.hills.is
Fóðrið sem dýralœknirinn velur
fyrir sín eigin gœludýr !
þekking
á
dýrum
og
virðing
fyrir
nœringar
þörfum
þeirra
ROY4L CkNIN