blaðið - 07.03.2007, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
blaðið
MlNNINGARSJÓÐUR
Margrétar Björgólfsdóttur
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
- FYRRI ÚTHLUTUN 2007-
Markmið sjóðsins eru að stuðla að heilbrigðu líferni og bættu mannlífi
og efla menntir, menningu og fþróttir. Markmiðum sfnum hyggst
sjóðurinn ná með þvf að styrkja einstaklinga, verkefni og félög til
mennta, framtaks, athafna og keppni - ekki sfst á alþjóðlegum vettvangi.
UTAN ÚR HEIMI
Keisaraynja veik
Michiko, keisaraynja í Japan, var flutt á sjúkrahús í gær eftir
hafa fengið ýmis einkenni innvortis blæðingar. I tilkynningu
frá keisarafjölskyldunni segir að Michiko þjáist af blæðingu
i þörmum, en ekki er Ijóst hversu alvarleg veikindin eru.
Michiko er 72 ára gömul og eiginkona keisarans Akihito.
; —BaBwaEKiliæiMI ■IHII I I
Kvartað undan aðstoð Sam-
tökin Geðhjálp gagnrýna fram-
kvæmd aðstoðar við fyrrum
j vistmenn Breiðavíkur og Byrg-
isins. Landlæknir telur eðlilega
j hafa verið brugðist við og segir
j engar kvartanir hafa borist.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef sjóðsins
www.minningmargretar.is
Umsóknir þurfa að berast í pósti fyrir 21. mars 2007.
Umsóknir skulu merktar: Minningarsjóóur Margrétar Björgólfsdóttur,
pósthólf 4180,124 Reykjavík
Framkv(emdcmefnd
um einkavceðingu
AUGLÝSING VEGNA SÖLU Á EIGNARHLUT RÍKISINS
I HITAVEITU SUÐURNESJA HF.
Til sölu er eignarhluti ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. Um er að ræða 1.133.356.000
krónur að nafnverði sem er 15,203% af heildar hlutafé félagsins. Umsjón með sölunni
hefur framkvæmdanefnd um einkavæðinu í umboði fjármálaráðherra.
Þeir sem óska eftir að gera tilboð í eignarhlutinn skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a. Tilboðsgjafi skal uppfylla skilyrði 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 34/1991, um fjárfestingar
erlendra aðila á (slandi, til fjárfestinga í íslensku atvinnufyrirtæki sem stundar orkuvinnslu og
orkudreifingu.
b. Eignarhluturinn verður eingöngu seldur í einu lagi til eins aðila (einstaklings eða lögaðila).
c. Tilboðsgjafi verður að sýna fram á fjárhagslegan styrkleika til að efna kaupin, hvort sem er með
eigin fé eða annars konar fjármögnun.
d. (slenskorkufyrirtæki (félög sem stunda starfsemi sem fellur undir raforkulög nr. 65/2003) íopinberri
eigu mega ekki bjóða í eignarhlut íslenska ríkisins. Sama gildir um dótturfélög framangreindra
fyrirtækja og önnur félög þar sem þau fara með yfirráð í skilningi samkeppnislaga.
Aðilar sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði og áhuga hafa á að bjóða í eignarhlut ríkisins skulu
tilkynna framkvæmdanefnd um einkavæðingu um áhuga sinn fyrir kl. 16:00 mánudaginn 2. apríl
2007. í tilkynningunni skal gera nákvæma grein fyrir væntanlegum bjóðanda ásamt nauðsynlegum
upplýsingum til þess að nefndin geti lagt mat á það hvort viðkomandi uppfylli skilyrði til að bjóða í
eignarhlutinn. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilursér rétttil að kalla eftirfrekari gögnum
og upplýsingum frá þeim aðilum sem lýsa yfir áhuga á því að bjóða í eignarhlutinn.
Aðilar sem tilkynna um áhuga innan ofangreindra tímamarka og uppfylla skilyrði til að bjóða í
eignarhlutinn fá kynningu á fyrirtækinu ásamt upplýsingum um söluferlið, nánari skilmálum fyrir
sölunni sem og fyrstu drög að formi fyrir kaupsamning. Stefnt er að því að Ijúka söluferlinu í lok
apríl.
Aðeins verður tekið við tilboðum sem eru í samræmi við söluskilmála og frá aðilum sem samþykkt
hafa endanleg drög að kaupsamningi. Samkvæmt samþykktum Hitaveitu Suðurnesja hf. á félagið
sjálft og núverandi hluthafar forkaupsrétt að eignarhlutnum. Athygli er vakin á að fyrirtækið
starfar á samkeppnismarkaði og lýtur eignarhald á hlut í félaginu ákvæðum samkeppnislaga.
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér rétt til þess að hafna öllum boðum ef viðunandi
verð er ekki boðið fyrir eignarhlutinn. Ekki er um að ræða almennt útboð samkvæmt lögum um
verðbréfaviðskipti nr. 33/2003.
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur ráðið Capacent ehf. sem ráðgjafa nefndarinnar við sölu
á hlut rikisins i Hitaveitu Suðurnesja hf. Hægt er að nálgast ýmis gögn um Hitaveitu Suðurnesja hf.
og söluferlið á vefslóðinni www.capacent.is/hs.
Tilkynningu um áhuga á að bjóða í eignarhlutinn skal skilað til:
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu
Fjármáiaráðuneytið
do Stefán Jón Friðriksson
Arnarhvoli, 150Reykjavík
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar um ráðherra:
Þeir svíkja
gefin loforð
■ Ráðherra vísar á landlæknisembættið
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ráðherrarnir hafa alls ekki staðið
við sín loforð. Ekki bara það heldur
hentar sú framkvæmd sem sett var
í gang ekki öllum eintaklingunum,
það finnst okkur skelfilegast í
þessu. Við gerum þá kröfu að ríkið
nái í fólkið og hjálpi því ekki seinna
en strax,“ segir Sveinn Magnússon,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Geðhjálp hefur sent ríkisstjórn-
inni kröfu um aukna aðstoð við
fyrrum vistmenn Byrgisins og
Breiðavíkur. Samtökin eru þeirrar
skoðunar að meðferðarúrræðin
sem í boði eru hjálpi aðeins hluta
vistmannanna og finna þurfi aðrar
leiðir hið allra fyrsta.
Vísa málinu frá
Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi
félagsmálaráðuneytisins, vísar
málinu frá ráðuneytinu og segir
það á ábyrgð heilbrigðisráðherra.
Hann bendir á sérstök teymi sem
mynduð voru á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi til að taka á þessu.
„Ríkisstjórnin fól heilbrigðisráðu-
neytinu og landlæknisembættinu
útfærslu á aðstoð við þessa hópa.
Aðstoðin er ekki veitt á stofnunum
sem heyra undir félagsmálaráðu-
neytið heldur tilheyra þær heil-
brigðissviði,“ segir Þór.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra vísar málinu alfarið yfir til
landlæknisembættisins þar sem þar
sé haldið utan um framkvæmdina.
Engin kvörtun borist
Matthías Halldórsson landlæknir
tekur upp hanskann fyrir ráðherr-
ana og telur framkvæmdina í eðli-
legum farvegi. Hann segir enga
kvörtun hafa borist til embættisins
og undrast að Geðhjálp hafi ekki
sett sig í samband við embættið.
„Ég er þeirrar skoðunar að vel hafi
verið brugðist við og tel gagnrýnina
ekki eiga rétt á sér. Hingað hefur
ekki nokkur kvörtun borist og ekki
Ráðherrarnir
hafa alls ekkl
staðið við sin
loforð
Sveinn Magnússon,
framkvæmdastjóri
Geðhjálpar.
Égerþeirrar
skoðunarað
velhafi verið
brugðist við
Matthías Halldórsson,
landlæknir.
nokkur maður haft samband,“ segir
Matthías. „Ég tel þetta vera í réttum
farvegi og þetta hefur gengið þokka-
lega vel. Ég tel enga ástæðu til sér-
tækra aðgerða í þessum efnum enda
okkar besta fólk sem við treystum til
verksins. Vandamál þessa fólks eru
mjög flókin og verða hvorki leyst á
einu augnabliki né í einhverjum
fljótheitum."
Aðeins hluta hjálpað
í tilkynningu frá geðsviði Land-
spítalans kemur fram að þarfir vist-
manna Byrgisins séu metnar hverju
sinni og brugðist við þeim eins vel
og hægt er. Ollum fyrrverandi vist-
mönnum Breiðavíkur stendur til
boða sálfræðiaðstoð sem veitt er
utan spítalans, þeim að kostnaðar-
lausu. Jafnframt er ítrekað að geð-
deildin sé heilbrigðisstofnun og að
hún hafi ekki yfir að ráða neinum
sértækum félagslegum úrræðum.
Aðspurður telur Sveinn eingöngu
hluta þeirra fá hjálp sem þurfa á
henni að halda. Hann segir fjölda
fólks hafa leitað til samtakanna
sem sætt hafi harðræði, ofbeldi,
eða kynferðislegri misnotkun
meðan á stofnanavistun þess á áby-
rgð hins opinbera stóð. „Fólkið þarf
meira en auglýsingu til að fá lausn á
sínum málum og finna þarf önnur
úrræði. Það þarf að ná í fólkið, meta
hvert mál fyrir sig og taka á því á
faglegum nótum,“ segir Sveinn.