blaðið - 20.03.2007, Qupperneq 1
0^ « mm ^ fijf Y-1 Opið: VIRKA DAGA 10-18 LAUGARDAG 10-16 SUNNUDAG 12-16
úlpur kápur jakkar Mörkinni 6, sími 588 5518
18
Námskeið fyrir
konur á krossgötum
20
Rómantík í
vortískunni
22
Snyrtibudda
mánaðarins
23
Farðaðu þig
eins og Madonna
24
Dragsíðir kjólar
að detta inn
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Snyrtivörurnar frá Rifka hafa
verið mjög vinsælar hér á landi enda
gæðavörur sem henta íslenskum
konum einkar vel. Ásthildur Dav-
íðsdóttir, sölustjóri hjá Rifka, segir
úrvalið hjá Rifka vera mikið og því
alltaf hægt að finna eitthvað við
sitt hæfi. Aðspurð hvaða litir séu
í tísku segir hún fjólubláan vera
mjög vinsælan. „Hvaða litir eru í
tísku fer eftir þeim fötum sem eru
í tísku. Núna eru svört og hvít föt í
tísku og að sama skapi er „smokey“-
förðun alltaf vinsæl. I sumar verður
fjólublátt, appelsínugult og brúnt í
tísku og þá verður mikið keypt af
ferskjulituðum og appelsínugulum
förðunarvörum.“
Maskari fyrir viðkvæm augu
Ásthildur segir að létt förðun sé
vinsæl í dag ásamt fallegu glossi
og maskara. „Rifka er til dæmis
með sniðugan farða sem er með 20
í sólarvörn en samt mjög léttur og
með örlítinn gljáa. Hann er mjög
vinsæll á sumrin og þá má til að
mynda fara með hann á ströndina í
sólarlöndum. Við erum með góðan
maskara sem hentar fyrir konur
sem eru viðkvæmar til augnanna
og hann er frábær fyrir konur sem
eru með linsur því hann er einstak-
lega mildur. Ég veit líka til þess að
konur sem hafa reynt allt annað
þola Rifka-maskarana,“ segir Ást-
hildur og bætir við að box með þre-
földum augnskugga sé mjög vinsælt.
,Það er hægt að velja um tíu liti sem
allir tóna vel saman. Þessi box eru
bara fyrir þrjá augnskugga en við
erum líka með box þar sem hægt er
að velja nokkra augnskugga og það
er að sama skapi vinsælt.“
Góður augnabrúnalitur
Ásthildur talar um að vinsæl-
ustu vörurnar séu augnskuggar og
varalitir þó vel seljist af öllu. „Við
erum með nokkrar mismunandi
tegundir af Rifka-glossum, glans-
andi, þekjandi og þunn. Svo má
ekki gleyma „stardust“ sem er alltaf
mjög vinsæll. Bleikur „stardust“ er
sérstaklega vinsæll á sumrin því
hann er ekki bara notaður á augu
heldur líka kinnbein og varir,“ segir
Ásthildur og viðurkennir að bleikir
kinnalitir séu líka mjög vinsælir á
sumrin. „Sólarpúður frá Rifka er
alltaf vinsælt en vinsælustu kinna-
litirnir eru bleikir og ferskjulitaðir.
Við erum líka með fallegan kinnalit
sem er þrefaldur og blandað saman
með burstanum en hann er bleikur
og ferskjulitaður. Ein vinsælasta
varan okkar er brúnn augnskuggi
sem er mikið notaður í augabrúnir
þar sem liturinn fer ofan í húðinni
og það kemur frábærlega út. Hann
hentar sérstaklega vel fyrir konur
sem hafa misst augabrúnir eða eru
með þunnar augabrúnir."
Sólbaðsstofan
Sælan
Englnn glldlstíml
karTum
Sólbaösstofan Sælan - Bæjarlind 1 201 Kópavogur - S: 5442424 - www.saelan.is