blaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 2
18 • KONAN
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 blaðiö
Inniheldur hátt hlutfall Omega
3 fitusýrur
ÓRTÚLEGUR ARANGUR
POLAROLÍU!!!!!
"Eftir að hafa verið of þungur í
mörg ár og þjáðst af verkjum í
liðum og stoðkerfi tók ég mig
til og létti mig um 65-70 kg. Ég
sat eftir með þessar þjáningar
og reyndi allt til að mér liði
betur. Það var ekki fyrr en ég
uppgötvaði POLAROLÍU að
þjáningar mínar hurfu og nú
get ég þess vegna hlaupið
100 m grindarhlaup."
---------------\
Polarolje
Selolía
einstökolía
Gott fyrir:
* Lidina
• Maga- og þarma-
starfsemi
• Hjarta og æöar
• Ónæmiskerfið
Polarolían fæst í apótekum, heilsuhusum og Fjarðarkaupum
Útsölustaðir: Esar Húsavík, Dalakjör Búöardal, Snyrtivöruverslunin Nana Lóuholum,
Heimahorniö Stykkishólmi, Smart Vestmannaeyjum, Efnalaugin Vopnafiröi, Pex Reyöarfirði
öpavogi Sími 544 4088
Læknar
mæla
með
þessum
haldara
Verð kr.
3.990.-
www.ynja.is
Konur á krossgötum
Sjálfstyrking eftir skilnaðinn
1 aprílmánuði munu fara af stað
sex vikna námskeið fyrir konur sem
eiga það sameiginlegt að standa
á tímamótum í lífinu. Lagt er upp
með sjálfstyrkingu og alhliða efl-
ingu ásamt fróðlegum fyrirlestrum
og öðrum skemmtilegheitum.
Að sögn aðstandenda námskeiðs-
ins er námskeiðið sérstaklega sniðið
að konum sem gengið hafa í gegnum
skilnað eða aðrar sem orðið hafa fyrir
skakkaföllum hverskonar. „Þetta er
kannski aðallega stilað inn á konur
sem lent hafa í skilnaði en alls ekki
einskorðað við þær eingöngu. Á nám-
skeiðunum eiga líka heima konur
með önnur vandamál, hvort sem
eitthvað mikið er að eða lítið. Þetta
er ekki aldursbundið heldur viljum
við bara sjá þær sem telja sig þurfa til-
breytingu í lífið og að gera eitthvað
róttækt í sinum málum,“ segir Gyða
Laufey Kristinsdóttir, eigandi fyrir-
tækisins Ég um mig, en hún ásamt
Magðalenu Einarsdóttur á veg og
vanda af þessum skemmtilegu nám-
skeiðum sem haldin verða í Heilsu-
akademíunni Egilshöll.
Jafnvægi á gömul mein
Enda þótt skilnaðurinn eða þau
vandamál sem um ræðir séu ekki ný
af nálinni eiga konur engu að síður
erindi á námskeiðið. Gyða bendir
á að margar konur eyði nokkrum
árum í vanlíðan án þess að fá rönd
við reist.
„Þetta geta verið konur sem
kannski skildu fyrir ári eða löngu
fyrr en hafa einhverra hluta vegna
ekki unnið úr skilnaðinum. Það
skiptir oft engu máli þótt langt sé
liðið, sumir eru með pakkann á bak-
inu alltaf og fara jafnvel í næsta og
næsta samband án þess að taka á
málunum,“ segir Gyða, sem kveðst
þess fullviss að námskeiðin muni
reynast konum góð. „Þetta verður
verulega gott fyrir konurnar og við
leggjum áherslu á að þetta verði
mjög skemmtilegt allt saman. Svo
auðvitað kynnast konurnar og fá að
spjalla um heima og geima auk þess
að fá útrás og þá fræðslu sem boðið
er upp á. Við munum byrja á því að
fara í góða líkamsrækt og fá þar smá
útrás, svo munum við fá holla hress-
ingu og loks förum við í fræðslu og
skemmtun.“
Helga Braga kennir daður
Að sögn Gyðu verður boðið upp á
hin ýmsu fræðsluerindi ásamt léttri
hreyfingu og góðri hressingu. Hafa
nú þegar fjölmargir sérfræðingar
boðað komu sina, en allir munu þeir
leiðbeina konum og efla til dáða.
„Það kemur til dæmis fjármála-
ráðgjafi sem fer yfir peningamálin
og hvernig hægt er að halda betur
utan um þau mál. Eins fáum við
sálfræðing sem byggir konurnar
upp á jákvæðan hátt og Ólöf Ásta
Farestveit uppeldisfræðingur mun
tala um börn og uppbyggingu á
sjálfsmatibarna. Þákemurlögfræð-
ingur sem fjallar um grunnatriði
í skilnaðar- og sambúðarlögum,
s.s. forræði barna og umgengnis-
rétt,“ segir Gyða og bætir við að
skemmtunin sé að sjálfsögðu ekki
látin lönd og leið. „Svo má auð-
vitað ekki gleyma Helgu Brögu,
sem ætlar að kenna konunum
að daðra og Þórhalli Heimissyni
sem fjalla mun um samskipti eftir
skilnað. Þetta verður allavega mjög
skemmtilegt."
Skráning á námskeiðin hefst i vik-
unni á vefsíðunni www.egummig.is.
Benda má á að boðið er upp á
barnapössun á meðan námskeiðið
stendur yfir.
Faliegir fætur
án fyrirhafnar
Við viljum gjarnan einblína á
fallegt útlit en gleyma öðrum at-
riðum sem skipta ekki síður máli.
Fætur eru til dæmis sá þáttur sem
oft vill gleymast í umhirðunni og
er ekki óalgengt að sjá glæsilega
konu í öllum sínum skrúða en
með óheppilega langar táneglur
eða sigg á fótum. Er þetta afar
bagalegt, sérstaklega í Ijósi þess
að fæturnir bera okkur allan dag-
inn og þurfa því að vera vel á sig
komnir.
En þetta má laga á auðveldan
hátt án þess að það taki óratíma.
Til dæmis má stilla fótakremi
upp á náttborðinu og hafa bala
og naglaklippurtil taks á bað-
herberginu til að minna okkur á.
Fótabað með góðri olíu getur gert
gæfumuninn og lagað lappirnar
til muna, sérstaklega ef baðið er
klárað með rakagefandi fótakremi
og léttu nuddi á iljum og tám. Þá
má auðvitað leyfa sér örlítinn
munað stöku sinnum og láta
snyrtifræðing um herlegheitin.