blaðið - 20.03.2007, Side 7
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007
---------------V
KONAN ■ 23
Eina vandamáliö í sambandi viö konur er karlmenn. - Kathie Sarachild
Rauðar og
kyssilegar varir
Allar konur þurfa að eiga einn
rauðan varalit. Rauður varalitur
getur gert heilmikið fyrir heildar-
útlitið auk þess sem hann setur
skemmtilegan svip á dress sem
annars eru látlaus. Þannig má klæð-
ast svörtum klassískum fatnaði
og flikka svo upp á heildina með
rauðum varalit sem setur punktinn
yfir i-ið. Þá má ekki gleyma
kynþokkanum í þessu
samhengi, en rauðar
varir eru óneit-
anlega ávísun á
aukinn þokka
ásamt því að
draga fram
v a r i r n a r
og gera þær
kyssilegri.
Meikið á Madonnu
Mesta áherslan á
Það verður seint sagt að söng- og leikkonan Madonna líti illa út. Þvert á
móti má fullyrða að hún líti næstum óþægilega vel út miðað við aldur og ugg-
laust er hún sú sem flestar konur líta upp til. Sérstaða Madonnu felst öðrum
þræði í þeirri staðreynd að hún getur sett sig í hvaða múnderingu sem er og
plumað sig óaðfinnanlega hvort sem er í íþróttagallanum eða í galakjólnum.
En hvað sem því líður notar þessi glæsilega stjarna yfirleitt sömu förðunina
við flestöll tilefni, sem gjarnan einkennist af svartri augnlínu, úfnum auga-
brúnum og viðamiklum augnhárum.
Fylgdu eftirfarandi skrefum og reyndu að komast nær því að ná fram fal-
legri förðun Madonnu.
augun
■ Gott og rakagefandi andlitskrem
Til þess að ná fram fersku útliti Madonnu er mjög mikilvægt að nota and
lits krem sem gefur mikinn raka og setur náttúrulegan gljáa á andlitið.
■ Léttur, fljótandi farði
Notaðu léttan farða sem þekur andlitið vel án þess að mynda óskemmti
lega grímu á andlitinu. Farðinn má alls ekki vera áberandi, heldur ein
göngu í formi þunns lags sem hylur fínar línur.
■ Létt púðuriag
Sefíu lítið lag af púðri yfir allt andlitið, án þess þó að nota ofmikið. Aðal
áherslan á að vera á ennið og önnur mislit svæði. Varast ber að nota of
dökkt púður.
■ Mótun augabrúna
Notaðu augabrúnabursta til að móta brúnirnar og passaðu að gera þær
ekki ofsettlegar. Augabrúnirnar á Madonnu eru sem náttúrulegastar,
greiddar upp í móti og hreinlega fremur sjúskaðar.
■ Ljós augnskuggi
Settu frísklegan og Ijósan augnskugga á allt augnlokið og upp að auga-
brúnum. Notaðu helst blautan augnskugga sem dreifist vel og sést varla.
Með aðeins dekkri lit býrðu svo til létta skyggingu á augunum með því að
setja smá skugga á efsta svæði augnloksins og dreifa því niður á við.
■ Augnlína í kringum augun
Með sama augnskugga og þú notaðir í skygginguna seturðu þykka línu á
augnlokið, alveg upp við efri augnhárin. Síöan er stuðst við blautan augn
línupensil og búin til fremur gróf lína á sama stað. Byrjaðu í augnakrókn-
um og gerðu línuna þykkari eftir því sem lengra dregur.
■ Krulluð augnhár og vel þekjandi maskari
Með augnhárabretti má krulla aðeins upp á augnhárin og gera þau viða
meiri. Þá er gott að setja Ijósa næringu á augnhárin, en slíka næringu má
fá í öllum helstu snyrtivöruverslunum. Oft erhægt að fá tvöfalda maskara
með bæði lit og næringu. Að lokum eru augnhárin þakin góðum ma-
skara og jafnvel gerðar tvær umferðir.
■ Litur og gljái í kinnar
Settu Ijósrauðan kinnalit á kinnbeinin og dreifðu vel úr litnum, helst þann
ig að þú sitjir ekki uppi með tvö epli á kinnunum. Liturinn þarfað vera
borinn létt á og koma mjúklega út á kinnunum. Að auki er verulega smart
að setja sanseraðan gljáa, t.d. Ijósan og glansandi kinnalit, til þess að
setja punktinn yfir i-ið.
■ Varablýantur og náttúrulegt gloss
I lokin drögum við fína línu íkringum varirnar með Ijósrauðum varablý
anti og mótum þannig varirnar. Loks er rauður og glansandi varalitur sett
ur á allar varirnar og glært gloss jafnvel ofan á herlegheitin. Passið bara
að rauði varaliturinn sé ekki alltof dökkur.
\_______________________________________________________________J
990 kr
iA
-.’Af -
842 kr.
■nvixai
Lífrænt alla leið
Hágæðasnyrtivörur frá
og
á frábæru verði
Af hverju áttu að nota Logona og Sante hár- og húðsnyrtivörur?
• Þær eru framleiddar úr lífrænt ræktuðum jurtum og bestu fáanlegu hráefnum
• Engin skaðleg, kemísk aukefni
• Nákvæm innihaldslýsing á umbúðum
• Viðurkenndar og prófaðar af húðsjúkdómafræðingum
• Margverðlaunaðar fyrir hreinleika og gæði
• Fyrirtækin setja umhverfismál á oddinn ásamt sanngirni og heiðarleika í viðskiptum
1.040 kr.
Jt
maður lifandi i,M'oxv SAMTE
SANTE
867 kr.
Maður lifandi, Borgartúni 24, sími 58 58 700 og Hæðasmára 6, sími 58 58 710, www.madurlifandi.is. Opið virka daga kl. 10-20, laugardaga kl. 10-17.