blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 1
57. tólublað 3. árgangur fimmtudagur 22. mars 2007 FRJÁLST, ÖHÁO & ÓKF^'^l ■ FOLK Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjáns- son ferðast nú um landið og spila en þeir eru hvað þekktastir fyrir „þjóð- sönginn" um Ninu | síða ie ■ HEILSA _ Elín Ebba Ásmundsdóttir forstöóu iðjuþjálfi telur nútíma- lifnaðarhætti fjarlægjast grunneðli okkar f síða34 Framtíðarlandið: Leynir styrktaraðilum Nítján grænir þingmenn ■ Tölvupósti rignir yfir þingmenn Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Tæplega 4.800 höfðu skrifað undir sáttmála Fram- tíðarlandsins á heimasíðu félagsins um klukkan sex í gær og eru nítján þingmenn þar á meðal. Enginn þingmaður úr Sjálfstæðisflokknum eða Frjálslynda flokknum er skráður. Ekki fæst upp- gefið hverjir styrktaraðilar Framtíðarlandsins eru þar sem sumir styrkjenda vil/a ekki láta nafns síns getið, samkvæmt Viðari Þorsteinssyni, starfs- manni og vefstjóra Framtíðarlandsins. Kostnaður við auglýsingaherferð félagsins fæst heldur ekki uppgefinn. „Áttatíu til níutíu prósent erum við félag sem er fjármagnað af sjálfboðavinnu og haldið uppi þannig,“ segir Viðar. „Síðan höfum við sóst eftir styrktaraðilum eins og félagasamtök af þessu tagi gera. Bæði fjársterkir einstaklingar og fyrirtæki hafa stutt við okkur í þessu og áður líka.“ Af þeim nítján þingmönnum sem hafa skrifað undir sáttmálann eru þrettán úr Samfylkingunni, fimm úr Vinstri grænum og einn úr Framsóknar- flokknum. Þegar Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er spurð að því af hverju eng- inn þingmaður úr flokknum hefur skrifað undir segir hún að sáttmáli Framtíðarlandsins hafi ekki verið ræddur sérstaklega innan þingflokksins. Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra og eini þingmaður Framsóknarflokksins sem hefur skrifað undir sáttmálann, segist ekki halda að það felist nein merking í því hvort þeir séu búnir að skrifa undir eða ekki: „Ég er bara til vitnis um grænan lit Framsóknarflokksins. Eðlilegt er að um- hverfisráðherrann beri þann lit.“ Á heimasíðu Framtíðarlandsins kallast þeir þing- menn sem hafa skrifað undir „grænir þingmenn" og geta notendur vefsins í gegnum heimasíðuna beðið þingmenn um að skrifa undir sáttmálann. Fá þá viðkomandi þingmenn sendan tölvupóst með beiðninni. Arnbjörg segir þessa aðferð Fram- tíðarlandsins vera sérkennilega og komi ekki nægi- lega skýrt fram hvað um sé að ræða. Segist hún vera búin að fá yfir tvö hundruð slíka tölvupósta. „Þetta fyllir hjá manni tölvupóstinn og gerir mann frekar ergilegan heldur en hitt.“ Fórnarlömb bruna lögð til hinstu hvílu Prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar leiddi athöfn í kirkjugarði í bænum Kamyshevatskaya í suðurhluta Rússlands þar sem rúmlega sextíu manns voru lagðir til hinstu hvflu í gær. Hin látnu létust öll í miklum bruna sem braust út á hjúkrunarheimili í bænum aðfaranótt þriðjudagsins. kjólinn fyrir páska Kate Winslet segist ekki drekka áfengi, ekki borða brauð og takamarka allan unn- inn mat nokkrum vikum fyrir hátíðleg tilefni tll þess að hún komist í þrönga kjóla. VEÐUR Talsverö úrkoma Suðlægari og rigning eða súld í dag en þurrt að kalla norðaustanlands. Sunnan 15-20 og talsverð úrkoma vestantil í kvöld. Hiti víöa 2 til 7 stig síðdegis. » siða 2 I VIÐTAL Átta síöna sérblaö um börn og uppeldi fylgir meö Blaöinu í dag » sidur 21-29 Börn & upp NY SENDING Urban sneaker Nr. 70771 Stærðir: 19-26 Verö: 5.995 kr- (2CCO Kringlan - Laugavegur - Smáralind NÚSTENDURYFIR IJEPPLINGAE Q B8l . ood V .bilolond.is. VEXTIR FRÁ AÐEINS 3,2% Miðaö við myntkörfu 4, Libor-vextir 29.1.2007. Þannig er má með vexti ... ... að það er hægt að létta greiðslubyrðina FRJÁLSI

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.