blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 heils heilsa@bladid.net Súkkulaði er gott Gott er að neyta dökks súkkulaðis í hófi enda er það fullt af járni og magnesíum auk þess sem i því er mikið af andoxun- arefnum. Eftir því sem hlutfall kakós í súkkulaðinu lækkar á kostnað mjólkur eykst magn kaloría og mettaðrar fitu í því. blaðiö Drekkum vatn I dag er góður dagur til aö fá sér vatnssopa enda alþjóðlegur dagur vatnsins. Vatn er hollt og gott og án efa einhver besti svaladrykkur sem hægt er að hugsa sér. Islensku lýðheilsuverölaunin íslensku lýðheilsuverðlaunin verða veitt í fyrsta skipti þann 24. apríl næstkomandi en þeim er ætl- að að styðja framtak stofnana, fé- lagasamtaka eða fyrirtækja til að bæta heilsu landsmanna. Hægt er að skila tilnefningum til heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins á þar til gerðum eyðublöðum. Einn- ig er hægt að senda útfyllt eyðublöð sem viðhengi með tölvupósti gegn- um vefsíðu ráðuneytisins. Hægt er að tilnefna stofnanir, félaga- samtök eða fyrirtæki sem hafa lagt sig fram um að stuðla að bættu heilsufari landsmanna, einstakra þjóðfélags- hópa, umfram lögbundið hlut verk eða markmið. Jafnframt þarf að fylgja um- sóknunum greinargóður rökstuðning- ur fyrir því hvers vegna viðkomandi stofnun, félagasamtök eða fyrirtæki verðskuldi verðlatmin. Frestur til að skila inn tilnefning- um er til 11. apríl næstkomandi. Sungið fyrir gott málefni Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) og Jóharm Friðgeir Valdimarsson eru meðal fjölda tónlistarmanna sem koma fram á styrktartónleikum í Salnum í kvöld. Mynd/Jim Smai Styrktartónleikar í Salnum Lionsklúbburinn Engey gengst fyrir tónlistardagskrá í Salnum í Kópavogi til styrktar kaupum á brjóstaómtæki fyrir röntgendeild Krabbameinsfélags íslands í kvöld klukkan 20. Yfirskrift dagskrárinn- ar er Gleðistund í góðum tilgangi og kennir þar ýmissa grasa. Boðið verður upp á tónlist úr óperum og söngleikjum í bland við dægurtón- list og djass. Fjölmargir tónlistarmenn koma fram á tónleikunum og leggja þar með málefninu lið og má þar nefna Önnu Sigríði Helgadóttur, Ágúst Ólafsson, Áslaugu Hálfdánardóttur, Davíð Ólafsson, Guðrúnu og Soffíu Karlsdætur, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Kynnarkvöldsins eru Davíð Ólafs- son og Stefán Stefánsson. Miðaverð er 3000 krónur. Náðu kjörþyngd kíktu inn á metasys.is metasys.is Þarf að gefa lífinu innihald Það er ekki nóg að setja þak yfir höfuðið á fólki og sjá til þess að það geti borðað. Við verðum líka að gefa lífi þess inninhald. Það er það sem skiptir máli og mér finnst að heilbrigðiskerfiö hafi svolítið klikkað á því. Elín Ebba Asmundsdóttir flytur fyrirlestur um geðrækt Eins og tígrisdýr í dýragarði Fyrir daga heilbrigðis- kerfa, sérfræðingatey ma og lyfjalausna þurfti fólk sjálft að læra að bjarga sér þegar það lenti í áföll- um í lífinu. Enn þann dag í dag getum við nýtt okkur margt af því sem forfeður okkar gerðu í því skyni að efla andlega vellíðan okkar og aðferð- irnar þurfa ekki endilega að vera flókn- ar. Margt sem tengist grunneðli okkar og þörfum, eins og til dæmis þörfin fyrir að koma sér þaki yfir höfuðið, útvega sér mat og eiga í samskiptum við annað fólk og deila með því lífsins gæðum getur stuðlað að bættri geð- heilsu. Vandamálið er að nú á dögum getum við auðveldlega lifað af án þess að við tengjum það þessu grunneðh okkar. Elín Ebba Ásmundsdóttir, for- stöðuiðjuþjálfi á geðdeild LSH og lekt- or við Háskólann á Akureyri, Qallar um þessi atriði ásamt fleirum í fyrir- lestri í Hátíðarsal Háskóla fslands í dag klukkan 12:10. Elín Ebba telur að nútímamaðurinn hafi fjarlægst þetta grunneðli sitt. Langt frá upprunalegu eðli „Ég tengi þetta við tígrisdýrið sem er komið inn í dýragarðinn. Það er allt í einu hætt að fjölga sér og vill ekkert með börnin sín hafa því að það er komið svo langt frá sínu upp- runalega eðli, en það lifir af. „Við erum í rauninni að hlúa að tígrisdýrínu í dýra- garðinum en við erum ekki að hjálpa fólki að lifa í takt við eigið eðli. Eðli okkar gengur út á að vera í hópi en ekki einangruð eins og fatlaðir verða oft. Það geng- ur út á að vera saman og acI allir leggi eitthvað af mörkum til samfélagsins." Það er ekki nóg að setja þak yfir höfuðið á fólki og sjá til þess að það geti borðað. Við verðum líka að gefa lífi þess innihald. Það er það sem skiptir máli og mér finnst að heil- brigðiskerfið hafi svolítið klikkað á því. Við erum í rauninni að hlúa að tígrisdýrinu í dýragarðinum en við erum ekki að hjálpa fólki að lifa í takt við eigið eðli. Eðli okkar gengur út á að vera í hópi en ekki einangruð eins og fatlaðir verða oft. Það gengur út á að vera saman og að alíir leggi eitthvað af mörkum til samfélagsins," segir hún. Áhrif nútímalifnaðarhátta Elín Ebba bendir jafnframt á að nútímalifnaðarhættir geri það að verkum að við erum í minni tengslum við grunneðli okkar. Áð- ur þurfti fólk til dæmis sjálft að draga björg í bú sem krafðist hreyf- ingar. „Núna getum við bara farið á Netið og jafnvel pantað mat og svo kemur hann heim. Þess vegna er hreyfing svona mikilvæg og hún skilar meira en lyf við kvíða og þunglyndi þegar til lengri tíma er litið. Þess vegna ætti að leggja meiri áherslu á að við byrjum á að hjálpa fólki að hreyfa sig en að nota einhverjar instant lausn- ir,“ segir Elín Ebba og bendir jafn- framt á að nútímalífi geti fylgt meiri einangrun. „Áður gátum við ekki verið ein. Við dóum ef við vorum ein en í samfélagi dagsins í dag getum við verið einhvers staðar ein fyrir fram- an tölvu og ekki í samskiptum við einn né neinn nema í gegnum tölv- una. Þá vantar þessa nærveru sem er hluti af samskiptum fólks. Ekki fjölgar maður sér í gegnum tölv- una,“ segir hún og bendir á að þá sé maður ekki í takt við eigið eðli. Elín Ebba segir að við séum orðin svo upptekin af sérfræðiþekkingu og sérfræðilausnum að við höfum gleymt grunninum og almennri dómgreind (common sense). „Ég er bara að reyna að koma comm- on sense á kortið aftur,“ segir Elín Ebba að lokum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.