blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007
blaðið
VEÐRIÐ í DAG
Urkoma
Suðlægari og rlgning eða súld, en
þurrt að kalla norðaustanlands.
Sunnan 15 til 20 og talsverð úrkoma
vestantil í kvöld. Hiti víða 2 til 7 stig
síðdegis.
ÁMORGUN
Skúrir
Suðvestan 8 til 15 m/s og
skúrir eða él á vestanverðu
landinu og rigning suðaust-
anlands, en þurrt að kalla á
Norðausturlandi.
VÍÐAUM HEIM |
Algarve 14
Amsterdam 6
Barcelona 12
Berlín 3
Chicago -3
Dublin 4
Frankturt 5
Glasgow 5
Hamborg i
Helsinki 3
Kaupmannahöfn 6
London 7
Madrid 5
Montreal 3
New York
Orlando
Osló
Palma
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
4
17
4
17
6
4
6
Á FÖRNUM VEGI
HVERNIG LEGGJAST
KOSNINGARNAR í
VOR í ÞIG?
Þorgeir Starri Hermannsson
Bara þokkalega.
Helgi Pétur Guðjónsson
Mjög vel.
Katrín Baldursdóttir
Vel. Þær verða mjög spennandi
og ég hlakka til að sjá út-
komuna.
Steinunn Þórðardóttir
Hef ekki náð að kynna mér það
vegna anna.
Víglundur Gunnarsson
Þær leggjast mjög vel í mig.
j Skýrsla faghóps um eflingu lýðheilsu:
Ognin er ofát og
hreyfingarleysi
■ íþróttakennarinn á lægri launum ■ Þungir foreldrar eiga of þung börn
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Hreyfiþroski barnanna í Heilsuleik-
skólanum Urðarhóli í Kópavogi er
mun meiri en barna í öðrum leik-
skólum, að því er rannsókn hefur
leitt í ljós. Börnin sem verið hafa í
Heilsuleikskólanum Urðarhóli iðka
frekar íþróttir eftir að þau hætta í
leikskóla en börn sem verið hafa í
öðrum leikskólum. í leikskólanum,
þar sem er sérstakur íþróttasalur,
hefur verið starfandi íþróttakenn-
ari í sjö ár þótt ekki hafi mátt ráða
hann sem slíkan.
„Nú er hann að fara að hætta og
mér var sagt hjá Kópavogsbæ núna
fyrir nokkrum vikum að ég mætti
ekki auglýsa eftir íþróttakennara
þar sem samkvæmt lögum megi
bara ráða leikskólakennara í leik-
skólasegir Unnur Stefánsdóttir
leikskólastjóri sem bætir því við að
íþróttakennarinn sé álægri launum
en leikskólakennararnir.
I skýrslu faghóps um eflingu lýð-
heilsu á Islandi, sem skipaður var
af forsætisráðherra í október 2005,
er lagt til að hreyfing og næringar-
fræðsla verði ekki bara efld í leik-
skólum, heldur á öllum skólastigum.
Fram kemur í skýrslunni, sem kynnt
var á Alþingi í síðustu viku, að brey t-
ingar á holdafari barna og unglinga
á Islandi séu áhyggjuefni. Hlutfall 9
ára barna af höfuðborgarsvæðinu,
sem greinast yfir kjörþyngd, var 23
prósent á árunum 2004 til 2005.
Þorgrímur Þráinsson, formaður
faghópsins, segir ofneyslu, hreyf-
ingar- og agaleysi meðal þess sem
helst ógni heilsu landsmanna. Aga-
leysið segir hann rikja í mataræði,
sjónvarpsáhorfi og tölvuleikjum.
,Við foreldrarnir gefum okkur ekki
nægan tíma fyrir börnin og það
kemur niður á heilsu þeirra. Þau
ákveða sjálf hversu lengi þau sitja
fyrir framan sjónvarpið og hvað þau
borða,“ segir Þorgrímur sem leggur
til að komið verði á samstarfi milli
leikskóla og íþróttakennaraháskóla
þannig að íþróttakennaranemarnir
komi í leikskólana og kenni ákveðna
hreyfitækni svo að börnunum þyki
hreyfing sjálfsagður hlutur þegar
þau koma í grunnskóla.
Það er mat faghópsins að í ljósi auk-
innar ofþyngdar og hreyfingarleysis
sé hætta á að heilsufar íslenskra
barna geti farið versnandi og að
Má ekki
auglýsa eftlr
íþróttakennara
Unnur Stefánsdóttir
leikskólastjóri
Foreldrar gefa
sér ekki nægan
tíma
Þorgrímur Þráinsson,
formaður faghóps um
eflingu lýðheilsu
það leiði í framtíðinni til aukningar
á sjúkdómum, svo sem hjarta- og
æðasjúkdómum, sykursýki, krabba-
meini og stoðkerfisvandamálum.
Samkvæmt niðurstöðum lands-
könnunar á mataræði árið 2002
voru um 57 prósent karla og 40 pró-
sent kvenna á aldrinum 15 til 80 ára
yfir kjörþyngd og 12,5 prósent íslend-
inga teljast of feit samanborið við 7,5
prósent árið 1990. Rannsóknir sýna
að um 95 prósent þungra foreldra
eiga of þung börn og 50 til 60 pró-
sent feitra barna eru einnig of feit
sem fullorðnir einstaklingar.
Grænland:
Fimmtungur
reynt sjálfsvíg
Niðurstöður rannsóknar
danskrar lýðheilsustöðvar benda
til þess að rúmlega tuttugu
prósent grænlenskra ungmenna
á aldrinum fimmtán til sautján
ára hafi reynt að fremja sjálfs-
víg. Hlutfallið er umtalsvert
hærra meðal stúlkna, eða 33
prósent, samanborið við ellefu
prósent drengja. Rannsóknin
sýnir að helmingur grænlenskra
stúlkna hafi íhugað sjálfsvig,
en tuttugu prósent drengja.
Á fréttavef Jyllands-Post-
en segir að sjálfsmorðstíðni
grænlenskra stúlkna sé
fimmtíu sinnum hærri en
meðal danskra stúlkna.
Suðurlandsvegur:
Kona lést
við árekstur
Kona á fimmtugsaldri lést
eftir árekstur jappabifreiðar
hennar við vörubifreið sem kom
úr gagnstæðri átt. Bílstjóri flutn-
ingabifreiðarinnar var fluttur
á sjúkrahús, en hann er ekki
talinn alvarlega slasaður.
Slysið átti sér stað í hádeginu
í gær, við Kotströnd skammt frá
Hveragerði. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Selfossi
er ekki talið að hálka hafi verið
á veginum. Segir hún töluvert
hafa verið um alvarleg slys á
þessum vegarkafla. Bloggarar
landsins brugðust við fréttum af
banaslysinu með því að minna
á þá kröfur sem upp hafa komið
um að tvöfalda veginn.
34% afsláttur fyrir 20 þús km.
á 2006 Range Rover Vouge
Bílinn var í eigu Land Rover í Evrópu og er
uppfærður og yfirfarin af verksmiðjunni.
Allur fáanlegur búnaður er í bílnum. Til sýnis á staðnum.
Nývirði um 13.550 þús. Okkar verð: 8.990 þús.
Afsláttur 4.560 þús.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
Fasteignir á Vellinum til sölu:
Sú stærsta á 187 milliónir
Rúmlega 20 byggingar, flestar
skemmur og iðnaðarhúsnæði, á svo-
kölluðu varnarsvæði á Miðnesheiði
hafa verið auglýstar til sölu. „Það
hafa mjög margir haft samband
og höfðu reyndar áður en við aug-
lýstum,“ segir Kjartan Eiríksson,
framkvæmdastjóri Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar. Flestir hinna
áhugasömu eru af suðvesturhorni
landsins og hafa þeir hug á að
nota byggingarnar undir ýmiss
konar iðnað og verktakastarfsemi.
Stærsta skemman er 2.76 fermetrar
og kostar 186.940 milljónir króna.
Minnsta skemman er 297 fermetrar
og kostar 17.820 milljónir króna.
Margir eigendur litilla flugvéla
hafa falast eftir skýlisplássi á svæð-
inu. „Mér heyrist að menn séu svo-
lítið aðþrengdir á Reykjavíkurflug-
velli. Sumir hafa haft orð á því að
þeir séu jafnvel tilneyddir að taka
vélarnar sínar í sundur og setja þær
í geymslu. Skýli sem heyrir undir
okkur er hins vegar stórt og mikið
og með stórar hurðir og hentar því
kannski ekki undir minni vélar,“
segir Kjartan.
Um frekari starfsemi á svæðinu
segir Kjartan að vangaveltur séu
uppi sem lúti að tækni- og þekk-
ingarfyrirtækjum. Erlendis fjölgi
slíkum fyrirtækjum sem vilji vera
nálægt flugvöllum til að verja sem
minnstum tíma í ferðir vegna
funda.