blaðið - 05.06.2007, Síða 3
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007
MATUR-19
Ný kaffilína frá Rapunzel:
Sanngirniskaffi
úr lífrænt ræktuð-
um kaffibaunum
Ný kaffilína er nú fáan-
leg frá þýska fyrirtækinu
Rapunzel í Þýskalandi.
Rapunzel er þekkt fyrir
að framleiða einungis
vörur úr vottuðu, líf-
rænt ræktuðu hráefni
og einnig fyrir að
leggja áherslu á sann-
girnisviðskipti í öllum
sínum viðskiptum
við framleiðendur í
löndum þriðja heims-
ins. Þessi framleiðsla
er Hand-in-Hand-
vottuð, en sú vottun
tryggir að varan sé
bæði lífræn og Fair-
trade. Vottunin fer
fram í náinni sam-
vinnu við þýsku
þróunaraðstoðina.
Kaffið kallast Gu-
sto-kaffi og kemur það
frá Karíbahafinu. Þar liggja
kaffiræktunarsvæðin í óað-
gengilegu hálendi í Barahona.
Hefð er fyrir blandaðri rækt af
kaffi, bönunum, sítrusávöxtum
og trjám sem veita skugga. Því
kemst vistkerfið í jafnvægi
eins og um náttúrulegan skóg
væri að ræða. Með
Hand-in-Hand-sam-
starfinu hafa smá-
bændurnir unnið sér
trausta markaðshlut-
deild og það hefur
einnig tryggt störf
í þorpinu og á svæð-
inu, bæði við rækt-
unina en einnig í
verksmiðju þar sem
kaffið er vandlega
flokkað. Það tryggir
einnig konunum á
einu af fátækustu
svæðunum í Dómi-
níska lýðveldinu störf
og tekjur.
Hand-in-Hand-sjóð-
urinn hefur einnig
veitt styrki til að byggja
skóla, leggja götur og
útbúa vatnstanka til að
safna í regnvatni. Þetta
gerir það að verkum að konurnar
þurfa ekki að ganga í marga tíma
niður að á til að ná í vatn.
Um er að ræða kaffibaunir og
malað kaffi úr arabica- og ro-
busta-baunum. Innflytjandi er
Yggdrasill sem sérhæfir sig í líf-
rænt ræktuðum vörum.
Burritos með kjúklingahakki
Uppskrift fyrir 4
400 g kjúklingahakk, eða smátt
skornar kjúklingabringur
14 laukur
1 poki taco-krydd
1 dl vatn
1 krukka af taco-sósu
1 dós maískorn
1 smátt skorin rauð paprika
1 dl rifinn ostur
8 hveititortillur
Guacamole
1 lárpera
smávegis sítrónusafi
1 hvítlauksrif, smátt saxað
salt og pipar
Hitið ofninn í 175°C og hitið
tortillurnar eftir leiðbeiningum á
pakkanum.
Steikið kjúklingahakk og lauk
í olíu eða smjöri eftir smekk.
Bætið taco-kryddi út í ásamt
taco-sósu og vatni. Látið malla í
nokkrar mínútur. Bætið þá maís-
kornum og papriku saman við.
Setjið kjötfyllingu í tortillu og
rúllið saman. Leggið rúllurnar í
eldfast fat og stráið rifnum osti
yfir. Gratínerið í ofni við 225°C
eða þar til osturinn er bráðnaður.
Skerið lárperu til helminga og fjar-
lægið steininn. Stappið kjötinu
með gaffli og blandið sítrónusafa
og hvítlauk saman við. Bragð-
bætið með salti og pipar.
Berið burritos fram með salati,
sýrðum rjóma, tómatsalsa, lár-
perumauki og límónubátum.
Kókossúkkulaðimakarónur
Þetta eru mjög góðar og hollar
kökur. Ef fólk er að hugsa um
heilsuna en vill samt gæða sér á
sætindum þá er þessi uppskrift
mjög hentug. Uppskriftin hentar
sérstaklega vel fyrir einstaklinga
sem eru á hráfæði.
3 b kókosmjöl
1 14 b hrátt kakó eða carob
1/2 b agave nectar, hrátt,
eða hrátt hunang
1/2 b hlynsíróp
1/3 b kókóssmjör, hrátt
1 tsk. vanilluduft
1/2tsk. sjávarsalt
Blandið öllu vel saman í ma-
tvinnsluvél. Best er þó að hita
kókosfituna í þurrkofni eða vatns-
I
baði og setja hana síðan í bland-
arann. Gott er að nota minnstu
gerðina af ísskeið og búa til litlar
kúlur á plötu og þurrka í 12-24
tíma í þurrkofni eða borða beint
(kælið ef þær eru ekki þurrkað-
ar). Kökurnar geymast í margar
vikur við stofuhita í kökuboxi.
TURB0CHEF
Eldunar gæði matreiðslumeistarans a allt að 12 X Styttrí tíma
Matreiðslubókin er komin á netið
1) Farðu inn á www.turbochef.com
2) Smelltu fyrst á „Commercial" og svo á "Cookbook.Turbochef.com".
3) Síðan er fljótlegt að fletta upp réttum með uppskript og eldunartíma.
Allar nanari uppl. hjá sölumönnum í S: 567 88 88
1771
/ast miðar & tækl om.
Auglýsingasíminn er
510 3744
Welcome to cookbook.turbochef.com! Your qulck-reference online
cookbook that helps you take ful! advamage of your TurboChef
oven's extraordinary capabililies. Here you’ll have easy access to
our catalogue of over 150 palette pleaslng recipes, specially
deslgned for your specific oven.
Q The C3
@ The Tornado
© The High h Batch
Grísalærisvöðvi
beint á grillið!
Beinlaus -100% nýting
Fljótleg og fitulítil máltíð...
FERSKAR
KJÖTVÖRUR
HAGKAUP
b/ kus J