blaðið


blaðið - 05.06.2007, Qupperneq 3

blaðið - 05.06.2007, Qupperneq 3
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MATUR-19 Ný kaffilína frá Rapunzel: Sanngirniskaffi úr lífrænt ræktuð- um kaffibaunum Ný kaffilína er nú fáan- leg frá þýska fyrirtækinu Rapunzel í Þýskalandi. Rapunzel er þekkt fyrir að framleiða einungis vörur úr vottuðu, líf- rænt ræktuðu hráefni og einnig fyrir að leggja áherslu á sann- girnisviðskipti í öllum sínum viðskiptum við framleiðendur í löndum þriðja heims- ins. Þessi framleiðsla er Hand-in-Hand- vottuð, en sú vottun tryggir að varan sé bæði lífræn og Fair- trade. Vottunin fer fram í náinni sam- vinnu við þýsku þróunaraðstoðina. Kaffið kallast Gu- sto-kaffi og kemur það frá Karíbahafinu. Þar liggja kaffiræktunarsvæðin í óað- gengilegu hálendi í Barahona. Hefð er fyrir blandaðri rækt af kaffi, bönunum, sítrusávöxtum og trjám sem veita skugga. Því kemst vistkerfið í jafnvægi eins og um náttúrulegan skóg væri að ræða. Með Hand-in-Hand-sam- starfinu hafa smá- bændurnir unnið sér trausta markaðshlut- deild og það hefur einnig tryggt störf í þorpinu og á svæð- inu, bæði við rækt- unina en einnig í verksmiðju þar sem kaffið er vandlega flokkað. Það tryggir einnig konunum á einu af fátækustu svæðunum í Dómi- níska lýðveldinu störf og tekjur. Hand-in-Hand-sjóð- urinn hefur einnig veitt styrki til að byggja skóla, leggja götur og útbúa vatnstanka til að safna í regnvatni. Þetta gerir það að verkum að konurnar þurfa ekki að ganga í marga tíma niður að á til að ná í vatn. Um er að ræða kaffibaunir og malað kaffi úr arabica- og ro- busta-baunum. Innflytjandi er Yggdrasill sem sérhæfir sig í líf- rænt ræktuðum vörum. Burritos með kjúklingahakki Uppskrift fyrir 4 400 g kjúklingahakk, eða smátt skornar kjúklingabringur 14 laukur 1 poki taco-krydd 1 dl vatn 1 krukka af taco-sósu 1 dós maískorn 1 smátt skorin rauð paprika 1 dl rifinn ostur 8 hveititortillur Guacamole 1 lárpera smávegis sítrónusafi 1 hvítlauksrif, smátt saxað salt og pipar Hitið ofninn í 175°C og hitið tortillurnar eftir leiðbeiningum á pakkanum. Steikið kjúklingahakk og lauk í olíu eða smjöri eftir smekk. Bætið taco-kryddi út í ásamt taco-sósu og vatni. Látið malla í nokkrar mínútur. Bætið þá maís- kornum og papriku saman við. Setjið kjötfyllingu í tortillu og rúllið saman. Leggið rúllurnar í eldfast fat og stráið rifnum osti yfir. Gratínerið í ofni við 225°C eða þar til osturinn er bráðnaður. Skerið lárperu til helminga og fjar- lægið steininn. Stappið kjötinu með gaffli og blandið sítrónusafa og hvítlauk saman við. Bragð- bætið með salti og pipar. Berið burritos fram með salati, sýrðum rjóma, tómatsalsa, lár- perumauki og límónubátum. Kókossúkkulaðimakarónur Þetta eru mjög góðar og hollar kökur. Ef fólk er að hugsa um heilsuna en vill samt gæða sér á sætindum þá er þessi uppskrift mjög hentug. Uppskriftin hentar sérstaklega vel fyrir einstaklinga sem eru á hráfæði. 3 b kókosmjöl 1 14 b hrátt kakó eða carob 1/2 b agave nectar, hrátt, eða hrátt hunang 1/2 b hlynsíróp 1/3 b kókóssmjör, hrátt 1 tsk. vanilluduft 1/2tsk. sjávarsalt Blandið öllu vel saman í ma- tvinnsluvél. Best er þó að hita kókosfituna í þurrkofni eða vatns- I baði og setja hana síðan í bland- arann. Gott er að nota minnstu gerðina af ísskeið og búa til litlar kúlur á plötu og þurrka í 12-24 tíma í þurrkofni eða borða beint (kælið ef þær eru ekki þurrkað- ar). Kökurnar geymast í margar vikur við stofuhita í kökuboxi. TURB0CHEF Eldunar gæði matreiðslumeistarans a allt að 12 X Styttrí tíma Matreiðslubókin er komin á netið 1) Farðu inn á www.turbochef.com 2) Smelltu fyrst á „Commercial" og svo á "Cookbook.Turbochef.com". 3) Síðan er fljótlegt að fletta upp réttum með uppskript og eldunartíma. Allar nanari uppl. hjá sölumönnum í S: 567 88 88 1771 /ast miðar & tækl om. Auglýsingasíminn er 510 3744 Welcome to cookbook.turbochef.com! Your qulck-reference online cookbook that helps you take ful! advamage of your TurboChef oven's extraordinary capabililies. Here you’ll have easy access to our catalogue of over 150 palette pleaslng recipes, specially deslgned for your specific oven. Q The C3 @ The Tornado © The High h Batch Grísalærisvöðvi beint á grillið! Beinlaus -100% nýting Fljótleg og fitulítil máltíð... FERSKAR KJÖTVÖRUR HAGKAUP b/ kus J

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.