blaðið - 05.06.2007, Side 5

blaðið - 05.06.2007, Side 5
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MATUR• 21 Bragðgott morgunkorn: Góð byrjun á deginum Það er ekki ofsögum sagt að morg- unmaturinn er mikilvægasta mál- tíð dagsins. Hinn venjulegi morgun- verður meðal íslenskra fjölskyldna samanstendur af kaffi og ristuðu brauði fyrir hina fullorðnu og skál af morgunkorni fyrir börnin. Hvernig væri til tilbreytingar að bjóða fjöl- skyldunni upp á heimagert morg- unkorn sem er í senn hollt og gott? Hin fjölhæfa Oprah Winfrey býður lesendum heimasíðu sinnar, og um leið lesendum Blaðsins, upp á upp- skrift að girnilegu morgunkorni. Sesam- og appelsínumorgunkorn 1 bolli kókosflögur % bolli jurtaolía 1/3 bolli hlynsíróp rifinn börkur af tveimur stórum appelsínum 4 bollar hafrar 1 bolli niðurskornar möndlur 1 bolli grófskornar ósaltar cashew-hnetur 1/3 bolli hunang 2 teskeiðar kanill 1/2 teskeið nýsaxaður múskat 1/3 bolli sesamfræ 1 bolli niðurskornir þurrkaðir ávextir, til dæmis, döðlur, epli, apríkósur eða blanda af öllu þrennu. Forhitið ofti í 190°C Dreifið kókosflögunúm á bökun- arplötu. Bakið í miðjuifi ofninum í u.þ.b. ío mínútur þar til þær eru orðnar sæmilega ristaðar. Hrærið reglulega í kókosflögunum á meðan þær ristast svo að þær brenni ekki. Geymið svo í stórri skál. Hitið olíuna, sírópið og appelsínu- börkinn upp að suðu á miðlungshita Canneloni með kjúklingahakki Uppskrift fyrir 3 400 g kjúklingahakk 2 msk. smjör 6 lasagne-plötur 4 msk. olía 2 rauðlaukar 1 hvítlauksrif 150 g ferskt spínat 1 dós ricotta-ostur um það bil 4 msk. parmesanostur salt og pipar Hitið ofninn í 225°C. Steikið kjötið á pönnu og leggið síðan til hliðar. Sjóðið lasagne-plöturnar í söltuðu vatni í 5 mínútur (ef ekki eru notaðar ferskar sem er betra). Leggið plastfilmu á bök- unarplötu og penslið hana með ólífuolíu. Leggið síðan lasagne- plöturnar þar á. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og skolið spínatið. Steikið rauðlauk og hvítlauk og bætið síðan spínatinu á pönnuna. Takið af hitanum og bætið kjöthakki og ricotta saman við. Bragðbætið með salti og pipar. Leggið blöndu á hverja la- sagne-plötu og rúllið upp eins og pönnuköku. Leggið því næst rúllurnar í eld- fast mót og rífið parmesanost yfir. Bakið í ofni í 10 mínútur. Berið fram með góðu salati. á pönnu. Blandið höfrunum, möndl- unum, hnetunum, hunanginu, kanil, negul og sesamfræjunum saman í blandara á hægum hraða í um mín- útu. Blandið svo olíunni, sírópinu og berkinum saman við og hrærið í smástund. Dreifið blöndunni á tvær bökunarplötur og hafið hvert lag um einn sentimetra að þykkt Bakið morgunkornið í ofninum í u.þ.b. 15 mínútur þar til blandan er orðin fallega gyllt. Á meðan það bakast er gott að hræra reglulega í því. Einnig ef bakað er á báðum plöt- unum í einu er gott að víxla þeim svo að þær fái jafnan hita. Blandið að lokum kókosflögunum saman við. Morgunkornið er gott með jógúrt eða súrmjólk. Ef fólk vill þá er hægt að tvöfalda skammt- inn og geyma í mánuð, í loftþéttum umbúðum. MOSFELLS BAKARI Kaffið frá Te & Kaffl Þú finnur kaffi við þitt hæfi frá Te & Kaffí í verslunum um land allt.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.